Afgreiðsla skipulagsnefndar um drög að tillögu vegna breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur og svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins - vaxtarmörk í Álfsnesi.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
31. (1846). fundur
Afgreiðslan varðar drög að tillögu vegna breytinga á aðalskipulagi Reykjavíkur og svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins varðandi iðnaðarsvæði fyrir efnisvinnslu við Álfsnesvík. Frestur til að skila umsögn er til 20. september og þá verður boðað til kynningarfundar fyrir miðjan september. Skipulagsnefnd telur ekki ástæðu til athugasemda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
7. (829). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að samþykkja verkefnalýsingu vegna tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins er varðar vaxtarmörk á Álfsnesi.
Bæjarráð Garðabæjar
04
14. (1829). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að samþykkja verkefnalýsingu vegna tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins er varðar vaxtarmörk á Álfsnesi.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
6. fundur
Lögð fram verkefnislýsing að breytingu svæðsskipulagsins Höfuðrborgarsvæðið 2040 sem gerir ráð fyrir breyttum vaxtamörkum á Álfsnesi. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða lýsingu.
Bæjarráð Garðabæjar
06
10. (1825). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
1. fundur
Skipulgasnefnd gerir ekki athugasemd við lýsinguna.
Bæjarráð Garðabæjar
09
49. (1815). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.