2. (1817). fundur
2. (1817). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
16.01.2018
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1712185
01
Viðhorfskönnun meðal starfsmanna Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun, (kynning á fundi).
Á fund bæjarráðs mætti Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri og gerði grein fyrir niðurstöðum viðhorfskönnunar meðal starfsfólks Garðabæjar um jafnréttismál, starfsþróun og endurmenntun en könnunin var unnin á vegum Jafnréttisstofu.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1707051
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 - lántaka
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum frá Arion banka og Íslandsbanka í umsýslukostnað vegna lántöku samkvæmt skuldabréfaútboði allt að fjárhæð 2,0 ma. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Íslandsbanka og felur bæjarstjóra að leita samninga við bankann um verkefnið.
María Grétarsdóttir og Halldór Jörgensson sitja hjá.
María Grétarsdóttir, fer fram á að bókað verði að hún telji rétt að leita til fleiri aðila varðandi umsjón með verkefninu.
Málsnúmer 1710039
03
Dýjagata 2-8 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gesti ehf., kt. 540109-1840 leyfi til að byggja þrjú raðhús á lóðinni að Dýjagötu 2-8.
Málsnúmer 1710221
04
Vinastræti 2-4 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir að afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG-íbúðum, kt. 600115-0220 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 18 íbúðum á lóðinni að Vinastræti 2-4.
Málsnúmer 1711124
05
Víkurgata 1-7 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gesti ehf., kt. 540109-1840 leyfi til að byggja fjögur raðhús á lóðinni að Víkurgötu 1-7.
Málsnúmer 1606034
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi endurbætur á Hafnarfjarðarvegi.
Bæjarráð lýsir yfir stuðningi við áherslur skipulagsnefndar um að Vegagerðin láti fara fram greiningu á eftirfrandi launsum, kostnaði við hverja lausn, sem og kostum og göllum hverrar lausnar út fra´umferðar tæknilegum sjónarmiðum og öryggisjónarmiðum.
a) Eingöngu verði sett fjögurra fasa ljós á gatnamótin til að tryggja að ökumenn þurfi ekki að þvera akandi umferð úr gagnstæðri átt.
b) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís.
c) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís. Undirgöng undir Vífilsstaðaveg frá Aktu taktu að Litlatúni.
d) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís. Breikkun Hafnarfjarðarvegar frá Hafnarfirði til Reykjavíkur vegna forgangsaksturs almenningsvagna.
e) Fjögurra fasa ljós, lenging afreinar frá Reykjavík til beygju inná Vífilsstaðaveg, tvöföldun beygjuakreinar úr Sjálandi til Reykjavíkur með breikkun undirganga við Olís. Breikkun Hafnarfjarðarvegar frá Hafnarfirði til Reykjavíkur vegna forgangsaksturs almenningsvagna. Undirgöng undir Vífilsstaðaveg frá Aktu taktu að Litlatúni.
f) Stokkalausn sem Vegagerðin/Verkís kynnti bæjaryfirvöldum árið 2009 og hvernig hægt er að áfangskipta þeirri framkvæmd.
g) Aðrar þær lausnir sem að Vegagerðin leggur til.
Þá er lagt til að skoðað verði bæði, að hringtorg á Vífilsstaðavegi við Flataskóla verði í samræmi við deiliskipulag sem bæjarstjórn hefur þegar samþykkt fyrir Vífilsstaðaveg og eins áhrif tvöföldunar þess hringtorgs með hliðsjón af ofangreindum lausnum. Mikilvægt er að Vegagerðin skili sínum greiningum til skipulagsnefndar Garðabæjar hið fyrsta þannig að hægt sé að kynna þær bæjarbúum á opnum fundi.
Málsnúmer 1706137
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Hvannalundi 4
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar og breytinga á einbýlishúsinu við Hvannalund 4. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Málsnúmer 1711071
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Lindarflöt 47.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata vegna lóðarinnar við Lindarflöt 47. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 1710157
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi óverulega breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis vegna lóðarinnar við Rjúpnahæð 13.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hæðahverfis vegna lóðarinnar við Rjúpnahæð 13. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Málsnúmer 1712067
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Garðahverfis vegna byggingareita við Breiðholt.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna erindi um breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóða við Breiðholt.
Málsnúmer 1711047
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Molduhrauns vegna lóðarinnar við Austurhraun 5.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðarinnar við Austurhraun 5.
Málsnúmer 1708475
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 22-24.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 22, 24 og 26, sem meðal annars gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 45 í 51 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 791.669 á íbúð m.v. BVT 683,8 stig í janúar 2018 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1707195
13
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Keldugötu 3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skipulagsskilmálum við byggingu einbýlishússins að Keldugötu 3 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1711017
14
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Sjónarveg 1.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum með svalatengingu tveggja íbúða í fjölbýlishúsinu við Sjónarveg 1 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1711101
15
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi frávik frá deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Sjónarveg 3.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis þó að vikið sé frá skilmálum með svalatengingu tveggja íbúða í fjölbýlishúsinu við Sjónarveg 3 en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1710156
16
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu vegna breytingar á svæðisskipulagi - Vaxtarmörk í Mosfellsbæ.
Lögð fram.
Málsnúmer 1712136
17
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verkefnislýsingu vegna breytingar á svæðisskipulagi - Vaxtarmörk á Álfsnesi
Lögð fram.
Málsnúmer 1710169
18
Skipun dómnefndar vegna alútboðs á hönnun og byggingu fjölnota íþróttahúss.
Bæjarráð samþykkir að að vísa til bæjarstjórnar að tilnefna fulltrúa í dómnefnd vegna mats á umsóknum um þátttökurétt í alútboði á hönnun og byggingu fjölnota íþróttahúss.
Málsnúmer 1302243
19
Bréf Skipulagsstofnunar varðandi athugasemdir við tillögu að aðalskipulagi 2016-2030, dags. 05.01.18
Lagt fram en bréfið hefur verið tekið fyrir á fundi skipulagsnefndar og efni þess vísað til úrvinnslu skipulagsráðgjafa.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1710188
20
Garðabær - þjónustukönnun 2017
Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal íbúa á árinu 2017 sem í öllum meginatriðum er jákvæð í helstu málaflokkum. Bæjarráð samþykkir að vísa þjónustukönnuninni til umfjöllunar nefnda.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801108
21
Bréf Jóns Ragnars Daðasonar um lækkun fasteignagjalda af íbúðarhúsi að Breiðabólsstöðum, dags. 08.01.18.
Bæjarráð samþykkir með vísan til heimildar í 5. mgr. 19. gr. laga um menningarminjar nr. 80/2012 að fella niður álagðan fasteignaskatt árið 2018 að fjárhæð kr. 98.800.
María Grétarsdóttir, situr hjá.
Málsnúmer 1703267
22
Samkomulag og uppgjör við Brú lífeyrissjóð um greiðslu framlaga til A-deildar sjóðsins.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir uppgjöri við Brú lífeyrissjóð vegna A-deildar sjóðsins. Fjármálastjóri sagði frá því að endurskoðendur bæjarins væru nú að fara yfir uppgjörið til að kanna réttmæti fjárhæða.
Bæjarráð vísar samkomulagi við Brú lífeyrissjóð starfsmanna sveitarfélaga um uppgjör vegna A-deildar sjóðsins til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð gerir fyrirvara um réttmæti fjárhæðar kr. 1.460.636.225 og varðandi greiðslu vegna Ísafoldar að fjárhæð kr. 91.095.824.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801148
23
Tillaga Bjartrar framtíðar um átak í brunavörnum, dags. 09.01.18.
Bæjarráð lýsir yfir stuðningi við tillöguna og felur tækni- og umhverfissviði að vinna að frekari úrvinnslu hennar í samráði við slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarráð vísar tillögunni til kynningar í mannréttinda- og forvarnarnefnd.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801147
24
Fyrirspurn Bjartrar framtíðar um umferðarmerkingar, dags. 09.01.18.
Lagt fram svar við fyrirspurninni.