Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 22-24.

Málsnúmer 1708475

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

2. (1817). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 22, 24 og 26, sem meðal annars gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 45 í 51 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 791.669 á íbúð m.v. BVT 683,8 stig í janúar 2018 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 3 sem nær til lóðanna Urriðaholtsstræti 22, 24 og 26 að lokinni auglýsingu skv.1.mgr.43.gr.og 41.gr.Skipulagslaga.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
-Breytt aðkoma að lóðum nr. 22 og 24.
-Minni háttar breyting byggingarreita allra lóða.
-Nýjir byggingarreitir fyrir opin bílskýli á lóðum nr. 22 og 24.
-Aukið byggingarmagn bílskýla um 500 m2.
-Fjölgun íbúða um 6 (úr 45 í 51 íbúð) Um tvær á hverri lóð.
-Innbyrðis breyting á fjölda heimilaðra minni og stærri íbúða milli lóða.
Auglýsing fór fram frá 23.nóvember til 29.desember. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna í samræmi við 41.gr.skipualagslaga.

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

15. (817). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 22, 24 og 26 sem gerir m.a. ráð fyrir aukningu á byggingarmagni og að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 45 í 51.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 783.681 á íbúð m.v. BVT 676,9 stig í október 2017 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Bæjarráð Garðabæjar

04

37. (1803). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 22, 24 og 26 sem gerir m.a. ráð fyrir aukningu á byggingarmagni og að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 45 í 51.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 783.681 á íbúð m.v. BVT 676,9 stig í október 2017 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

11. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 3 sem nær til lóðanna Urriðaholtsstræti 22, 24 og 26.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum.
Breytt aðkoma að lóðum nr. 22 og 24.
Minni háttar breyting byggingarreita allra lóða.
Nýjir byggingarreitir fyrir opin bílskýli á lóðum nr. 22 og 24.
Aukið byggingarmagn bílskýla um 500 m2.
Fjölgun íbúða um 6 (úr 45 í 51 íbúð) Um tvær á hverri lóð.
Inngyrðir breyting á fjölda heimilaðra minni og stærri íbúða milli lóða.
Lögð fram rök umsækjanda fyrir breytingartillögunni.
Höfundur byggingar er Arkís sem er um leið deiliskipualgshöfundur. Deiliskipulagshöfundar veitir jákvæða umsögn um tillöguna.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 43.gr.Skipulagslaga nr 123/2010.