37. (1803). fundur
37. (1803). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
03.10.2017
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1611189
01
Greinargerð Strategíu varðandi greiningu og könnun á störfum og starfsumhverfi bæjarfulltrúa. (Margrét Sanders mætir á fundinn)
Á fund bæjarráðs mætti Margrét Sanders, ráðgjafi hjá Strategíu og gerði grein fyrir greinargerð um greiningu og könnun á störfum og starfsumhverfi bæjarfulltrúa.
Bæjarráð vísar greinargerðinni til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1709320
02
Markarflöt 16 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jasmine ehf., kt. 580914-0470 leyfi fyrir viðbyggingu við núverandi hús við Markarflöt 16.
Málsnúmer 1709221
03
Unnargrund 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi fyrir byggingu búsetukjarna með sex íbúðum fyrir fatlað fólk að Unnargrund 2.
Málsnúmer 1709128
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar um grenndarkynningu á umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishús á lóðinni við Haukanes 16.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Haukanes 16 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 1302243
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar um samþykkt á nýju aðalskipulagi Garðabæjar 2016 -2030.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1709257
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi á Hliðsnesi
Bæjarráð samþykkir að leggja við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafin verði vinna við gerð deiliskipulag fyrir Hliðsnes.
Málsnúmer 1704011
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar um forkynningu á nýju deiliskipulagi við Holtstún á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi fyrir svæði sem nær til Evindarholts, Tjarnar, Asparvíkur og Stekks og að svæðið verði nefnt Holtstún. Samþykkt er að falla frá gerð lýsingar enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalskipulagi.
Málsnúmer 1708475
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Urriðaholtsstræti 22-26
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa til kynningar breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Urriðaholtsstræti 22, 24 og 26 sem gerir m.a. ráð fyrir aukningu á byggingarmagni og að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 45 í 51.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 783.681 á íbúð m.v. BVT 676,9 stig í október 2017 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1611184
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi lýsingu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Kópavogs vegna brúar yfir Fossvog.
Lögð fram.
Málsnúmer 1709371
10
Bréf heilbrigðiseftirlits varðandi fjárhagsáætlun 2018, dags. 28.09.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1709363
11
Bréf Kvennaráðgjafarinnar um styrk, dags. 25.09.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1709364
12
Bréf Samveru og súpu um styrk, ódags.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1709390
13
Bréf Skógarmanna KFUM um styrk, dags. 28.09.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1709388
14
Bréf Golfklúbbs Garðabæjar og Kópavogs um niðurfellingu á lóðarleigu, dags. 28.09.17.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara og vísar erindinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1701074
15
Drög að samkomulagi við Ás Styrktarfélag um samstarf við uppbyggingu á búsetuúrræði fyrir fatlað fólk.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.