Haukanes 16 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
1. (1816). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Svövu Helgu Carlsen, kt. 220171-3619 leyfi fyrir innri breytingum einbýlishússins að Haukanesi 16.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
19. (821). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á núverandi húsi við Haukanes 16. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Bæjarráð Garðabæjar
03
45 (1811). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna breytinga á núverandi húsi við Haukanes 16. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
14. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir breytingum á íbúðarhúsinu að Haukanesi 16. Ekkert deiliskiplag er í gildi á svæðinu.
Umsóknin hefur verið grenndarkynnt í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulags og byggingarlaga. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi samþykki byggingarleyfi samkvæmt grenndarkynntri tillögu.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
15. (817). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Haukanes 16 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
06
37. (1803). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi við núverandi hús við Haukanes 16 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
11. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókna að breytingum íbúðarhússins. Umsókninni er vísað til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr. skipulagalaga nr.123/2010 þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi í hverfinu. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum Haukaness 13, 14, 15, 17 og 18.