Beint í efni

14. fundur

16.11.2017
Skipulagsnefnd Garðabæjar

14. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

16.11.2017

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1703045

01

Deiliskipulag áfanga 1-4 í austurhluta Urriðaholts

Framkvæmdastjóri Urriðaholts, Jón Pálmi Guðmundsson ásamt deiliskipulagsráðgjöfunum Hrafnhildi Brynjólfsdóttur, Agli Guðmundssyni og Þráni Haukssyni kynntu drög að deiliskipulagi austurhluta Urriðaholts.

Vísað til áframhaldandi úrvinnslu.

Málsnúmer 1711044

02

Leyfi fyrir opnun vínbúðar í Kauptúni

Tekið fyrir erindi Víðbúðarinnar/ÁTVR dags 7.nóvember 2017 þar sem óskað er eftir heimild Garðabæjar til þess að opna áfengisverslun í Kauptúni.

Skipulagsnefnd lýsir yfir áhyggjum af auknu umferðarálagi í tengslum við opnun ÁTVR í Kauptúni. Opnunin kallar á að framkvæmdum við breytingar á gatnakerfinu eins og deiliskipulagsbreyting á síðasta ári gerir ráð fyrir, sé hraðað.

Nefndin lýsir yfir furðu sinni á því að ÁTVR hafi ekki komið til móts við óskir Garðabæjar um staðsetningu vínbúðar í miðbæ Garðabæjar. Í ljósi þess að ÁTVR, sem hefur einkarétt á smásölu áfengis, hefur lýst áhuga á að opna sérvöruverslanir með áfengi, þá er ÁTVR bent sérstaklega á áhuga Garðabæjar á því að slík verslun opni á miðbæjarsvæði Garðabæjar.

Árið 2003 var í íbúakosningu samþykkt að heimila starfsemi ÁTVR í sveitafélaginu. Í því ljósi leggst skipulagsnefnd ekki gegn því að veitt verði heimild til opnunar vínbúðar í Kauptúni, en áréttar jafnframt áhuga á að opna vínbúð í miðbæ Garðabæjar.

Málsnúmer 1709181

03

Víkurgata, einbýlishúsagerðir, dsk breyting

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta sem nær til einbýlishúsa við Víkurgötu að lokinni auglýsingu skv.1mgr. 43.gr.Skipulagslaga sem fór fram 29.september til 10.nóvember sl. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum: Grunnflötur byggingarreits án bílgeymslu í húsagerði E3 stækkar úr 100 m2 í 120 m2. Hæðarfjöldi breytist í "2 hæðir" úr "2-3 hæðir" í húsagerð E3. Hámarkshæð lækkar um 3 metra. Húsagerð á lóðum Víkurgötu 19 og 21 breytist úr húsagerði E1b í E1a. Viðmiðunarbyggingarmagn minnkar. Ákvæði um að heimilt sé að fylgja skilmálum fyrir húsagerði 11b á lóðum með húsagerði E1a er felld út gildi. Kennisnið E1a, E1c og E4 eru óbreytt.

Engar athugasemdir bárust við tillöguna.

Tillagan skoðast því samþykkt sem deiliskipulagbreyting í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála.

Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það.

Gjaldið er greitt við útgáfu á byggingarleyfi.

Málsnúmer 1711037

04

Lindarflöt 35-Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tilkynning til leyfisveitanda um tillögu að breytingum sem gera ráð fyrri því að núverandi bílageymslu sé breytt í íbúðarherbergi en framan við núverandi byggingu rísi 17 fermetra smábílageymsla.

Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1711071

05

Lindarflöt 47 - breyting deiliskipulag

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu á lóðinni Lindarflöt 47 sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækkar til vesturs um 2,5 m og fá lóðarmörkum að norðan til suðurs um 9,3 m. Flatarmál stækkunar 23,2 m2.

Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum lóðanna Lindarflöt 49. 45,5 og 7.

Málsnúmer 1711092

06

Sunnuflöt 42 - bílskýli undir bílskúr

Lögð fram fyrirspurn um hugmynd að bílageymslu undir núverandi bílageymslu þar sem aðkoma yrði um skábraut frá götu.

Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1606034

07

Hafnarfjarðarv/Vífilsstaðav. Endurbætur gatnamóta.

Skipulagsstjóri og bæjarverkfræðingur gera grein fyrir fyrirhuguðum endurbótum gatnamóta Hafnarfjarðarvegar við Vífilsstaðaveg annarsvegar og við Lyngás hinsvegar.

Undirbúningur er langt á veg kominn á vegum Vegagerðarinnar hvað hönnun varðar.

Næstu fundarliðir tengjast allir fyrirhuguðum framkvæmdum en ljóst er að gera verður breytingar á 6 skipulagsáætlunum vegna áformanna.

Vísað til frekar skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Málsnúmer 1305618

08

Vífilsstaðavegur og Bæjarbraut, deiliskipulag.

Tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar hefur þegar verið forkynnt og heimild hefur verið veitt til þess að auglýsa tillöguna. Vegna þeirra tillagna sem nú liggja fyrir frá Vegagerðinni um endurbætur gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar eru lagðar til óverulegar breytingar á útfærslu hringtorgs á gatnamótum Vífilsstaðavegar/Litlatúns/Flataskóla.

Vísað til skoðunar á tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1711132

09

Hörgatún 2, dsk breyting vegna hringtorgs

Vegna tillagna um útfærslu hringtorgs á gatnamótum Vífilsstaðavegar/Litlatúns/Flataskóla er ljóst að gera þarf breytingu á deiliskipulagi Hörgatúns 2 þar sem gera verður ráð fyrir breytingu lóðarmarka.

Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Málsnúmer 1711133

10

Ásgarður, dsk breyting vegna hringtorgs

Vegna tillagna um útfærslu hringtorgs á gatnamótum Vífilsstaðavegar/Litlatúns/Flataskóla er ljóst að gera þarf breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs þar sem gera verður ráð fyrir breytingum á aðkomu og lóðarmörkum.

Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Málsnúmer 1711135

11

Miðbær, neðsta svæði (svæði III), dsk br minnkun svæðis

Vegna tillagna um útfærslu á endurbætum gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar verður að gera þær breytingar á deiliskipulag Miðbæjar, neðsta svæðis, að mörk deiliskipulagsins færast að lóðarmörkum Litlatúns 1 og 3.

Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Málsnúmer 1711136

12

Hraunsholt eystra, dsk br, minnkun svæðis.

Vegna tillagna um útfærslu á endurbætum gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Lækjarfitjar verður að gera þær breytingar á deiliskipulagi Hraunsholts eystra að mörk deiliskipulagsins færast lítillega til suðurs.

Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Málsnúmer 1711137

13

Ásar og Grundir, dsk br., minnkun svæðis.

Vegna tillagna um útfærslu á endurbætum gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss verður að gera þær breytingar á deiliskipulag Ása og Grunda að mörk deiliskipulagsins færast lítillega til norð-vesturs.

Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Málsnúmer 1706330

14

Hlið, deiliskipulagsbreyting 2017

Tillaga að deiliskipulagi Hliðs lögð fram að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur c færist til norðurs og verður við vestan við núverandi íbúðarhús.

Tillagan var í auglýsingu frá 1.september til 16.otkóber. Engar athugasemdir bárust.

Tillagan skoðast því samþykkt sem deiliskipulagbreyting í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd minnir á að ráðast þarf í fornleifakönnun áður en að framkvæmdir hefjast.

Málsnúmer 1609380

15

Suðurhraun 1 og 3 - breyting á deiliskipulagi Molduhrauns

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns ásamt greinargerð lóðarhafa um bílastæðaþörf. Tillagan gerir ráð fyrir því að grunnflötur húss getur orðið allt að 60 % af stærð lóðar í stað 40 % og að nýtingarhlutfall geti orðið allt að 1 í stað 0,6. Ennfremur er gert ráð fyrir breytingu á grein 2.3. í skilmálum þannig að hægt sé að veita byggingarleyfi fyrir færri bílastæðum á lóð en skilmálar miða við ef sýnt sé fram á hvernig bregðast megi við ef aðstæður breytast sem kalla á fleiri stæði. (t.d. með bílastæðahúsi innan byggingarreits).

Tillagan var í auglýsingu frá 1.september til 16.otkóber. Engar athugasemdir bárust.

Tillagan skoðast því samþykkt sem deiliskipulagbreyting í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 1709140

16

Viðbygging við Hákotsvör 8, Álftanesi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir viðbygginu við íbúðarhúsið að Hákotsvör 8. Viðbygging samkvæmt umsókn er um 40 fermetrar að grunnfleti norðan við húsið. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Norðurmörk viðbyggingar eru í flútti við norðurmörk hússins að Hákostvör 10. Samþykki eigenda Hákotsvarar 10 og 6 liggur fyrir.

Umsóknin hefur verið grenndarkynnt í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulags og byggingarlaga. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi samþykki byggingarleyfi samkvæmt grenndarkynntri tillögu.

Málsnúmer 1707200

17

Steinás 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir því að bílageymslu sé breytt í almenna geymslu og íbúðarherbergi að lokinni grenndarkynningu. Samkvæmt tillögu skýst eitt horn byggingar að auki lítillega út fyrir byggingarreit.

Tillagan hefur verið grenndarkynnt í samræmi við 44.gr.Skipulagslaga. Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.

Málsnúmer 1710157

18

Rjúpnahæð 13 veggur við lóðamörk-Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulaginu Bæjargil II.áfangi (Hæðahverfi) sem gerir ráð fyrir byggingarreit í norðurhorni lóðar, að lóð nr.11. fyrir 1 hæðar smáhýsi undir háum stoðvegg sem er á lóðarmörkum en talsverður hæðarmunur er á þessum stað.

Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr.43.gr. og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum við Rjúpnahæð 8, 9, 10, 11, 12, 14 og 15. Ef samþykki þeirra sem grenndarkynning nær til liggur fyrir gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að skipulagstjóri stytti tíma grenndarkynningar.

Málsnúmer 1710136

19

Hörpulundur 6-Umsókn um byggingarleyfi

Málinu frestað þar til að deiliskipulagsferli Lundahverfis hefur verið lokið.

Málsnúmer 1710301

20

Haukanes 15-Umsókn um byggingarleyfi

Málinu frestað þar til deiliskipulag Arnarness hefur tekið gildi.

Málsnúmer 1709128

21

Haukanes 16 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir breytingum á íbúðarhúsinu að Haukanesi 16. Ekkert deiliskiplag er í gildi á svæðinu.

Umsóknin hefur verið grenndarkynnt í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulags og byggingarlaga. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi samþykki byggingarleyfi samkvæmt grenndarkynntri tillögu.

Málsnúmer 1507053

22

Heiðmörk Sandahlíð deiliskipulag

Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar sem gerir nokkrar athugasemdir við samþykkt deiliskipulag.

Skipulagsstjóri gerir grein fyrir athugasemdum þessum og tillögu að viðbrögðum við þeim.

Skipulagsnefnd samþykkir tillögu skipulagsstjóra um það að bílastæði við Hjallaflatir og á Hjallasniði verði felld út úr deiliskipulaginu þar sem þau eru innan grannsvæðis vatnsverndar. Ef til framkvæmda kemur á umræddum bílastæðum síðar þá þarf að vinna breytingu á deiliskipulagi í samráði við yfirstjórn vatnsverndar.

Málsnúmer 1710156

23

Verkefnalýsing vegna breytingar á svæðisskipulagi - vaxtarmörk í Mosfellsbæ

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða verkefnislýsingu og vísar henni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 23.gr.Skipulagslag og 2.mgr. 6.gr. laga um umhverfismat áætlana.

Málsnúmer 1710242

24

Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, efnisvinnslusvæði í Álfsnesvík

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugsemdi við verklýsinguna.