Ásar og Grundir, dsk br., minnkun svæðis.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (847). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (1877). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Lagðar fram að lokinni auglýsingu tillaga að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar sem gerir ráð fyrir bráðabirgðalagfæringum á stofnbrautinni ásamt tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar sem gerir ráð fyrir varanlegu útfærslum á umferðarkerfi. Lagðar fram tillögur að breytingum á deiliskipulagi Hörgatúns 2, deiliskipulagi Ásgarðs, deiliskipulagi Miðbæjar neðsta svæðis,deiliskipulagi Hraunsholts eystra og deiliskipulagi Ása og Grunda sem tengjast allar endurbótum umferðarkerfisins, bæði varanlegum og til bráðabirgða.
Lagðar fram athugasemdir og umsagnir sem borist hafa.
Lögð fram greinargerð með tillögum að svörum við athugasemdum.
Athugasemdir kalla ekki á breytingar á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Lagðar fram tillögur að breytingu deiliskipulags Ása-og Grunda sem gerir ráð fyrir breytingu á deiliskipulagsmörkum og öðru sem var nauðsynlegt að ráðast í til að laga deiliskipulagið að tillögum um endurbætur Hafnarfjarðarvegar.
5 erindi með athugasemdum og 3 umsagnir hafa borist. Athugasemdir og umsagnir lagðar fram.
Framlögðuum gögnum vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
3. (843). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
06
7. (1868). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda. Tillagan er til samræmis við tillögu að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar sem er nú vísað í auglýsingu samhliða. Forkynning tillögunnar hefur farið fram og kynningarfundur var haldinn þann 9. janúar sl sem var vel sóttur. Frestur til að skila inn ábendingum var til 28. janúar og alls bárust 10 erindi sem lögð eru fram á fundinum. Hafa þau verið send til ráðgjafa og Vegagerðarinnar til úrvinnslu. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
1. (841).. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deilskipulagi Ása og Grunda. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Bæjarráð Garðabæjar
09
2. (1863). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga 123/2010 tillögu að breytingu á deilskipulagi Ása og Grunda. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
16. fundur
Lögð fram tilllaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir breytingum á stígum ofl. næst Hafnarfjarðarvegi sem tengjast bráðabirgðaútfærslum á Hafjarfjarðarvegi og gatnamótum við Vífilsstaðaveg og Lyngás. Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 3.mgr 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
11
19. (821). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari kynning samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna svæðis við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalskipulagi.
Bæjarráð Garðabæjar
12
47. (1813). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari kynning samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna svæðis við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalsskipulagi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
15. fundur
Lögð fram tillaga að breytingun á deiliskipulagi Ása og Grunda. Skipulagssvæði hefur verið minnkað við gatnamót Lyngáss og Hafnarfjarðarvegar í tengslum við tillögur Vegagerðarinnar um lagfæringar á núverandi útfærslu Hafnarfjarðarvegar. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
14
14. fundur
Vegna tillagna um útfærslu á endurbætum gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss verður að gera þær breytingar á deiliskipulag Ása og Grunda að mörk deiliskipulagsins færast lítillega til norð-vesturs.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.