1. (841).. fundur
1. (841).. fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
17.01.2019
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Valborg Ösp Á. Warén - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 20. desember 2018 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 8/1 ´19
Fundargerð bæjarráðs sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.
1.17 - 1808350 - Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, dags. 04.01.19
Bæjarstjórn samþykkir tillögu svæðisskipulagsnefndar um að auglýst verði tillaga að breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 er varðar legu vaxtarmarka á milli þéttbýlis og dreifbýlis á Álfsnesi. Með breytingunni verður rými fyrir uppbyggingu og þróun efnisvinnslusvæðis sem staðsett yrði við jaðar núverandi iðnaðarsvæðis á Álfsnesi. Tillagan verður auglýst ásamt umhverfisskýrslu, breytingartillögum og umsögn við innkomnum athugasemdum í samræmi við 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 15/1 ´19.
Fundargerð bæjarráðs sem er 23 tl. er samþykkt samhljóða.
2.10 - 1808155 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu byggingarleyfis vegna lóðarinnar við Hæðarbyggð 22.
Fylgiskjöl
2.11 - 1806425 - Afgreiðsla skipulagsnefndar um óverulegt frávik frá skipulagi vegna lóðarinnar við Víkurgötu 14.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að heimila útgáfu byggingarleyfis að Víkurgötu 14 þó að vikið sé frá skilmálum við útfærslu handriða og stoðveggja en um óverulegt frávik er að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni. Þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skriflegt samþykki lóðarhafa þarf að liggja fyrir varðandi útfærslu á lóðarmörkum.
Fylgiskjöl
2.12 - 1809246 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Keldugötu 2-20.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir breytingum á húsagerðum við Keldugötu.
Fylgiskjöl
2.18 - 1901058 - Drög að viljayfirlýsing um uppbyggingu Alþjóðaskólans á Íslandi í Garðabæ.
Gunnar Einarsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi 18. tl., viljayfirlýsingu um uppbyggingu Alþjóðaskólans á Íslandi í Garðabæ.
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og ræddi 18. tl., viljayfirlýsingu um uppbyggingu Alþjóðaskólans á Íslandi í Garðabæ.
Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir viljayfirlýsingu um uppbyggingu Alþjóðaskólans á Íslandi í Garðabæ.
Fylgiskjöl
2.2 - 1711136 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra vegna endurbóta á Hafnarfjarðarvegi.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts eystra. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Fylgiskjöl
2.22 - 1804348 - Kaupsamningur um jörðina Kirkjubrú á Álftanesi.
Bæjarstjórn samþykkir kaupsamning um jörðina Kirkjubrú á Álftanesi.
Fylgiskjöl
2.3 - 1711135 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi miðbæjar - neðsta svæði vegna endurbóta á Hafnarfjarðarvegi og Vífilsstaðavegi.
Bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar - neðsta svæði. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi
Fylgiskjöl
2.4 - 1711133 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs vegna endurbóta á Hafnarfjarðarvegi.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Fylgiskjöl
2.5 - 1711132 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hörgatúns 2 vegna endurbóta á Vífilsstaðavegi.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar við Hörgatún 2. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi
Fylgiskjöl
2.6 - 1305618 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar vegna endurbóta við Vífilsstaðaveg.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Fylgiskjöl
2.7 - 1711137 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna endurbóta á Hafnarfjarðarvegi.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deilskipulagi Ása og Grunda. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Fylgiskjöl
2.8 - 1710083 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna uppbyggingar á Lyngássvæði L1 og L2.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna uppbyggingar á Lyngásvæði L1 og L2. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 17/12 ´18
Björg Fenger, ræddi 1. tl., íþróttahátíð Garðabæjar. Björg færði öllum þeim fjölmörgu sem fengu viðurkenningar hamingjuóskir með glæsilegan árangur.
Þá ræddi Björg, 2. tl., alþjóðlegt frisbímót á Vífilsstaðavelli og 3. tl., styrk til rafíþróttaklúbbs.
Ingvar Arnarsson, ræddi 1. tl. íþróttahátíð Garðabæjar og óskaði íþróttakarli og íþróttakonu Garðabæjar til hamingju með þeirra viðurkenningar. Þá ræddi Ingvar 2. tl., alþjóðlegt frisbímót á Vífilsstaðavelli.
Björg Fenger tók til máls að nýju.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., íþróttahátíð Garðabæjar og færði íþrótta- og tómstundaráði þakkir fyrir góða umgjörð á glæsilegri hátíð.
Fundargerðin er lögð fram.
05
Fundargerð ungmennaráðs frá 20/11 ´18.
Ingvar Arnarson, ræddi fundargerð ungmennaráðs og vakti athygli á vöntun á gögnum í fundargátt.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi fundargerð ungmennaráðs og verkefni ráðsins.
Fundargerðin er lögð fram.
06
Fundargerð ungmennaráðs frá 14/12 ´18.
Björg Fenger, ræddi. tl., forvarnarfræðslu.
Harpa Þorsteinsdóttir ræddi , 1. tl., forvarnarfræðslu og ungmennahús.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., forvarnarfræðslu.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., forvarnarfræðslu.
Ingvar Arnarsson, ræddi 1. tl., forvarnarfræðslu.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 1. tl., að nýju.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., að nýju.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., forvarnarfræðslu.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., forvarnarfræðslu og sagði frá fundi með Grunnstoðum.
Fundargerðin er lögð fram.
07
Fundargerðir stjórnar Sorpu bs frá 21/11 og 14/12 ´18.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 2. tl., fg. frá 21/11, notkun metans á strætisvagna, 6. tl., fg. frá 21/11, úttekt innri endurskoðunar, 1. tl. fg. frá 14/12, skýrslu Capacent um mögulega sameiningu Sorpu bs. og Kölku sf., 4. tl., fg. frá 14/12, bréf til Sorpstöðvar Suðurlands vegna móttöku úrgangs, og 6. tl., fg. frá 14/12, umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, bann við notkun burðarpoka.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 6. tl., fg. frá 14/12, umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, bann við notkun burðarpoka.
Ingvar Arnarson, ræddi 6. tl., fg. frá 14/12, umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, bann við notkun burðarpoka.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 6. tl., fg. frá 14/12, umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, bann við notkun burðarpoka.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls að nýju um 6. tl.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 6. tl., fg. frá 14/12, umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, bann við notkun burðarpoka.
Almar Guðmundsson, ræddi 6. tl., fg. frá 14/12, umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, bann við notkun burðarpoka og 2. tl., fg. frá 21/11, notkun metans á strætisvagna.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., fg. frá 21/11, notkun metans á strætisvagna.
Ingvar Arnarson, ræddi 2. tl., fg. frá 21/11, notkun metans á strætisvagna.
Almar Guðmundsson, ræddi að nýju 2. tl.
Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., fg. frá 21/11, notkun metans á strætisvagna.
Fundargerðin er lögð fram.
09
Fundargerð stjórnar SHS frá 7/12 ´18.
Björg Fenger, ræddi 6. tl., persónuverndarfulltrúi fyrir slökkviliðið.
Fundargerðin er lögð fram.
10
Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 21/12 18.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., leiðakerfismál, 3. tl., stefnumótun 2019, 5. tl., önnur mál ? beiðni um yfirmat vegna skaðabótakröfu Teits Jónassonar ehf.
Fundargerðin er lögð fram.
11
Kosning fulltrúa í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi einstaklinga í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks. Samráðshópurinn er skipaður samkvæmt 2. mgr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, sbr. 10. gr. laga nr. 37/2018.
Bjarni Th. Bjarnason, Strandvegi 1.
Bergljót Sigurbjörnsdóttir, Sjávargrund 13B.
Sara Dögg Svanhildardóttir, Lynghólum 7.
Bergþóra Bergsdóttir, Löngulínu 27, tilnefnd af Öryrkjabandalagi Íslands.
Elín H. Hinriksdóttir, Melási 12, tilnefnd af Öryrkjabandalagi Íslands.
Þorkell Jóhannsson, Lynghólum 1, tilnefndur af Landsamtökunum Þroskahjálp.
12
Kosning fulltrúa í öldungaráð
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi einstaklinga í öldungaráð Garðabæjar. Öldungaráð er skipað samkvæmt 2. mgr. 38. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, sbr. 8. gr. laga nr. 37/2018.
Almar Guðmundsson, Stekkjarflöt 15.
Bergljót Sigurbjörnsdóttir, Sjávargrund 13B.
Anna Guðrún Hugadóttir, Kirkjulundi 14.
Stefanía Magnúsdóttir, Garðatorgi 7, tilnefnd af Félagi eldri borgara í Garðabæ.
Ástbjörn Egilsson, Löngulínu 12, tilnefndur af Félagi eldri borgara í Garðabæ.
Ólafur Proppé, Vesturbæ, tilnefndur af Félagi eldri borgara á Álftanesi.
13
Fyrirspurn um kostnað við kaup og framkvæmdir á húsnæði fyrir fjölnota fundarsal.
Ingvar Arnarsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
,,Þegar farið er að taka saman kostnað og finna áætlanir sem tengjast kaupum og framkvæmdum við fjölnota fundarsal er erfitt að finna slíkt þ.a.l. legg ég fram eftirfarandi spurningar;
Hvað kostaði húsnæðið sem fjölnota fundarsalurinn er í?
Var gerð kostnaðaráætlun vegna breytingar á húsnæðinu í fjölnota fundarsal?
Hversu há upphæð var áætluð í framkvæmd við breytingar á húsnæðinu?
Hver er heildarkostnaður við framkvæmdir á húsnæðinu? Óskað er eftir sundurliðun kostnaðar.
Hve stór hluti verksins fór í útboð?
Með hvaða hætti hefur verið upplýst um framgang framkvæmda og kostnaðar til kjörinna fulltrúa?
Hver hefur eftirlit og umsjón með framkvæmdinni?“
Gunnar Einarsson, ræddi framkomna fyrirspurn og boðaði skriflegt svar við fyrirspurninni.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi framkomna fyrirspurn.
Gunnar Einarsson, ræddi framkomna fyrirspurn.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi framkomna fyrirspurn.
Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
14
Tillaga um að Garðabær taki í notkun umhverfisvænni bifreiðar.
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og fylgdi úr hlaði eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn Garðabæjar leggur til að bifreiðum í eigu bæjarins sem brenna jarðefnaeldsneyti verði í áföngum skipt út fyrir bifreiðar sem teljast umhverfisvænni. Á árinu 2019 verði 2-4 bifreiðum í eigu Garðabæjar skipt út fyrir umhverfisvænni og í framhaldinu gerð áætlun um hvernig best sé að skipta út öllum bifreiðum í eigu bæjarins.“
Greinagerð
Það er eitt af markmiðum umhverfisstefnu Garðabæjar að Garðabær verði vistvænt bæjarfélag og umhverfið heilnæmt og aðlaðandi. Ein af þeim leiðum sem nefndar eru í umhverfisstefnu Garðabæjar til að ná því markmiði er að stuðla að notkun minna mengandi farartækja og vistvænna orkugjafa. Með því að skipta út bifreiðum sem brenna jarðefnaeldsneyti er Garðabær að sýna vilja í verki og fara fyrir með góðu fordæmi.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi framkomna tillögu og lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.