Tillaga um að Garðabær taki í notkun umhverfisvænni bifreiðar.
Ferill máls
Umhverfisnefnd Garðabæjar
01
9. fundur
Umhverfisnefnd tekur undir tillöguna um að umhverfisvænni bílar verði keyptir þegar skipta þarf út bílum. Er það í samræmi við umhverfisstefnu Garðabæjar.
Umhverfisnefnd óskar eftir að skoðaðir verði möguleikar á því hvort rafmagnshjól gætu nýst á einhverjum stofnunum bæjarins.
Bæjarráð Garðabæjar
03
3. (1864.). fundur
Tillagan rædd.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögunni á þessu stigi til umfjöllunar umhverfisnefndar.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
1. (841).. fundur
Ingvar Arnarson, kvaddi sér hljóðs og fylgdi úr hlaði eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn Garðabæjar leggur til að bifreiðum í eigu bæjarins sem brenna jarðefnaeldsneyti verði í áföngum skipt út fyrir bifreiðar sem teljast umhverfisvænni. Á árinu 2019 verði 2-4 bifreiðum í eigu Garðabæjar skipt út fyrir umhverfisvænni og í framhaldinu gerð áætlun um hvernig best sé að skipta út öllum bifreiðum í eigu bæjarins.“
Greinagerð
Það er eitt af markmiðum umhverfisstefnu Garðabæjar að Garðabær verði vistvænt bæjarfélag og umhverfið heilnæmt og aðlaðandi. Ein af þeim leiðum sem nefndar eru í umhverfisstefnu Garðabæjar til að ná því markmiði er að stuðla að notkun minna mengandi farartækja og vistvænna orkugjafa. Með því að skipta út bifreiðum sem brenna jarðefnaeldsneyti er Garðabær að sýna vilja í verki og fara fyrir með góðu fordæmi.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi framkomna tillögu og lagði til að tillögunni verði vísað til bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.