Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
Ferill máls
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
01
2. fundur
Yfirlit yfir málaflokk fatlaðs fólk í Garðabæ.
Pála Marie Einrsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi fór yfir glærur um stöðu málaflokks fatlaðs fólks í Garðabæ og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
02
2. fundur
Minnisblað um ferðaþjónustu fatlaðra lagt fram til umræðu.
Mál lagt fram nr. 1812089, minnisblað um ferðaþjónustu fatlaðra. Farið yfir minnisblaðið og þau áhersluatriði sem þar komu fram. Greint er frá því að margt hafi breyst til hins betra en ennþá mikilvæg atriði sem ekki hafa verið lagfærð þrátt fyrir ábendingar. M.a. er mikilvægt að huga sérstaklega að öryggi viðkvæmra hópa sem eru að nýta þjónustuna, að í einhverjum tilfellum sé tryggt að sömu bílstjórarnir sinni ákveðnum ferðum, tryggja að forsjáraðilar geti haft beint samband við bílstjóra ef eitthvað kemur upp á og eins að bílstjóri geti haft samband við forsjáraðila. Mjög mikilvægt að tryggja að gengið verði frá samningum sem fyrst.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
03
1. fundur
Erindisbréf fyrir samráðshóp um málefni fólks með fötlun lagt fram til kynningar.
Erindisbréf samráðshópsins lesið upp fyrir fundarmenn.
Bæjarráð Garðabæjar
04
9. (1870). fundur
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir samráðshóp um málefni fatlaðs fólks og felur bæjarstjóra að hlutast til um að kalla ráðið saman til fyrsta fundar.
Fylgiskjöl
Fjölskylduráð Garðabæjar
05
2. fundur
Drög að erindisbréfi vegna samráðshóps um málefni fatlaðs fólks lagt fram til kynningar.
Lagt er fyrir fjölskylduráð mál nr. 1812089 um skipun samráðshóps um málefni fatlaðs fólks í Garðabæ. Drög að erindsbréfi er lagt fram til kynningar og umræðu.
Fjölskylduráð Garðabæjar
06
1. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1812089 Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks.
Samkvæmt 2. mgr. 42. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga m.s.b. eiga sveitarfélög að skipa samráðshóp um málefni fatlaðs fólks sem er samráðsvettvangur innan sveitarfélagsins þar sem fjallað skal um þjónustu við við fatlað fólk og framkvæmd og þróun þjónustunnar. Í samráðshópnum sitja þrír fulltrúar kosnir af sveitarstjórn og þrír fulltrúar tilnefndir af hagsmunasamtökum fatlaðs fólks.
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
1. (841).. fundur
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi einstaklinga í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks. Samráðshópurinn er skipaður samkvæmt 2. mgr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, sbr. 10. gr. laga nr. 37/2018.
Bjarni Th. Bjarnason, Strandvegi 1.
Bergljót Sigurbjörnsdóttir, Sjávargrund 13B.
Sara Dögg Svanhildardóttir, Lynghólum 7.
Bergþóra Bergsdóttir, Löngulínu 27, tilnefnd af Öryrkjabandalagi Íslands.
Elín H. Hinriksdóttir, Melási 12, tilnefnd af Öryrkjabandalagi Íslands.
Þorkell Jóhannsson, Lynghólum 1, tilnefndur af Landsamtökunum Þroskahjálp.