Beint í efni

1. fundur

23.01.2019
Fjölskylduráð Garðabæjar

1. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

23.01.2019

Kl. 16:00 - 19:50

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Sigþrúður Ármann - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi

Ritari

  • Hildigunnur Árnadóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1707104

01

Húsnæðisáætlun - Garðabær

Tekið er fyrir mál nr. 1707104, húsnæðisáætlun Garðabæjar. Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri, situr fundinn undir þessum lið.

Ráðið fjallaði að nýju um drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.

Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri fór yfir stöðu mála á helstu uppbyggingarsvæðum Garðabæjar á næstu árum. Þar er um að ræða Urriðaholt, Lyngás/Stóras, miðsvæði Álftaness og Hnoðraholt/Vetrarmýri.

Ljóst er að fyrirliggjandi áætlanir uppbyggingar nægja, og gott betur, til að mæta þeirri þörf sem verður fyrir íbúðir í Garðabæ á næstu árum. Á þetta við hvort sem litið er til heildarfjölda íbúða eða mismunandi íbúðartegunda.

Samþykkt var að afgreiða áætlunina í núverandi mynd frá ráðinu til meðferðar í bæjarráði og bæjarstjórn. Fjölskylduráð mun fjalla um áætlunina aftur verði breytingar gerðar á henni í meðförum bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Málsnúmer 1812252

02

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr.1812252, umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um málið. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1901160

03

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr.1901160, umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um málið. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1901050

04

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr.1901050, umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um málið. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1812186

05

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr.1812186, umsókn um fjárhagsaðstoð. Fjölskylduráð fjallar um málið. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1812088

06

Öldungaráð

Tekið er fyrir mál nr. 1812088, öldungaráð.

Samkvæmt 2. mgr. 38. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga m.s.b., eiga sveitarfélög að skipa öldungaráð sem er samráðsvettvangur innan sveitarfélagsins þar sem fjallað skal um þjónustu við aldraða og framkvæmd öldrunarmála. Áður var í lögunum heimildarákvæði til að skipa sérstakt öldungamálaráð. Garðabær hafði ekki nýtt sér þá heimild en á síðasta kjörtímabili var starfrækt nefnd um málefni eldri borgara. Sú nefnd var lögð niður við upphaf kjörtímabils 2018 -2022. Sum verkefni þeirrar nefnda geta eftir atvikum fallið undir verksvið öldungaráðs en mörg önnur verkefni nefndarinnar verða á borði annarra nefnda s.s. fjölskylduráðs og íþrótta- og tómstundaráðs. Öldungaráð tekur við hlutverki þjónustuhóps aldraðra sem starfaði samkvæmt lögum um málefni aldraðra.

Í öldungaráði sitja þrír fulltrúar kosnir af sveitarstjórn og þrír fulltrúar tilnefndir af félagi eldri borgara, auk eins fulltrúa frá heilsugæslunni.

Málsnúmer 1812089

07

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

Tekið er fyrir mál nr. 1812089 Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks.

Samkvæmt 2. mgr. 42. gr. laga nr. 40/1991, um félagsþjónustu sveitarfélaga m.s.b. eiga sveitarfélög að skipa samráðshóp um málefni fatlaðs fólks sem er samráðsvettvangur innan sveitarfélagsins þar sem fjallað skal um þjónustu við við fatlað fólk og framkvæmd og þróun þjónustunnar. Í samráðshópnum sitja þrír fulltrúar kosnir af sveitarstjórn og þrír fulltrúar tilnefndir af hagsmunasamtökum fatlaðs fólks.

Málsnúmer 1901223

08

Endurnýjun leyfis fyrir stuðningsfjölskyldu

Tekið er fyrir mál nr. 1901223 beiðni um endurnýjun leyfis fyrir stuðningsfjölskyldu. Fjölskylduráð fjallar um málið. Nánari bókun er í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1810028

09

Tillaga um eflingu lýðræðislegra vinnubragða í tenglsum við afgreiðslu á fjárhagsáætlun 2019.

Tekið er fyrir mál nr. 1810028, tillaga um eflingu lýðræðislegra vinnubragða. Bæjarráð samþykkir að vísa minnisblaðinu til umfjöllunar fjölskylduráðs.

Ráðið fjallaði um minnisblað vegna lýðræðisverkefna í Garðabæ.

Ráðið lýsir yfir ánægju sinni með undirbúning málsins og telur mikilvægt að koma verkefninu af stað á þessu ári. Þá samþykkti ráðið að vinna að endurnýjun á lýðræðisstefnu Garðabæjar, sem samþykkt var árið 2010, og er stefnt að því að klára þá vinnu fyrir haustið. Samþykkt að kalla eftir hugmyndum annarra fastanefnda bæjarins um þau áhersluatriði kosninga. Málið verður tekið fyrir að nýju á næsta fundi ráðsins.