Beint í efni

Húsnæðisáætlun Garðabæjar 2018-2025

Málsnúmer 1707104

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (843). fundur

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og fylgdi úr hlaði tillögu að húsnæðisáætlun Garðabæjar fyrir árin 2018 ? 2025. Almar gerði grein fyrir helstu niðurstöðum áætlunarinnar. Almar þakkaði starfsmönnum bæjarins sem komið hafa að málinu fyrir þeirra hlut og eins ráðgjöfum sem unnið var með að gerð áætlunarinnar.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi tillögu að húsnæðisáætlun og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Garðabæjarlistinn leggur fram bókun sem hljóðar svo: Í húsnæðisstefnu Garðabæjar sem liggur til samþykktar er að mati Garðabæjarlistans of lágt hlutfall nýrra íbúða ætlað til leigu hvort heldur sem er á almennan og félagslegan leigumarkað. Ekki síst í ljósi tillagna samráðshóps að aðgerðum til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði sem fram eru komnar. Þar er m.a. lögð fram tillaga sambærileg fyrri tillögu Garðabæjarlistans um að lögfesta skyldu sveitarfélaga til að taka þátt í uppbyggingu á almennum leiguíbúðum og að ráðstafa í skipulagi 5% af byggingarmagni á nýjum reitum/hverfum til uppbyggingar á félagslegu leiguíbúðarhúsnæði."

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi tillögu að húsnæðisáætlun.

Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða húsnæðisáætlun Garðabæjar 2018-2025.

Bæjarráð Garðabæjar

02

7. (1868). fundur

Bæjarráð vísar tillögu að húsnæðisáætlun Garðabæjar 2018 - 2025 til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

03

1. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1707104, húsnæðisáætlun Garðabæjar. Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri, situr fundinn undir þessum lið.

Ráðið fjallaði að nýju um drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri fór yfir stöðu mála á helstu uppbyggingarsvæðum Garðabæjar á næstu árum. Þar er um að ræða Urriðaholt, Lyngás/Stóras, miðsvæði Álftaness og Hnoðraholt/Vetrarmýri.
Ljóst er að fyrirliggjandi áætlanir uppbyggingar nægja, og gott betur, til að mæta þeirri þörf sem verður fyrir íbúðir í Garðabæ á næstu árum. Á þetta við hvort sem litið er til heildarfjölda íbúða eða mismunandi íbúðartegunda.

Samþykkt var að afgreiða áætlunina í núverandi mynd frá ráðinu til meðferðar í bæjarráði og bæjarstjórn. Fjölskylduráð mun fjalla um áætlunina aftur verði breytingar gerðar á henni í meðförum bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð Garðabæjar

04

1. (1862). fundur

Lögð fram tillaga Garðabæjarlistans sem fram kom að fundi bæjarstjórnar 20. desember sl.

Bæjarráð vísar húsnæðisáætlun Garðabæjar ásamt tillögu Garðabæjarlistans til umfjöllunar fjölskylduráðs.

Fjölskylduráð Garðabæjar

05

13. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1707104 drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar 2018-2025. Ráðið fjallaði að nýju um drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar.
Í henni kemur fram að mikil húsnæðisuppbygging er framundan í Garðabæ á næstu 8 árum sem mun uppfylla þær þarfir sem verða fyrir húsnæði á næstu árum. Miðað er við að íbúum fjölgi um 3.100 á þessu tímabili.
Fjölbreytt flóra af búsetukostum mun byggjast upp í bænum á næstu árum og ljóst að uppbygging á minni íbúðum mun mæta áætlaðri þörf. Fyrir utan íbúðarhúsnæði til eignar, mun byggjast meira húsnæði innan bæjarins sem tilheyrir almennum leiguúrræðum. Þá er framundan uppbygging á félagslegum húsnæði, m.a. með uppbyggingu búsetukjarna fyrir fatlað fólk.

Samþykkt var að afgreiða drögin í núverandi mynd frá ráðinu til meðferðar í bæjarráði og bæjarstjórn. Fjölskylduráð mun fjalla um áætlunina aftur í janúar nk. verði breytingar gerðar á henni í meðförum bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

06

12. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1707104, húsnæðisáætlun Garðabæjar. Fjölskylduráð fjallar um málið og mun vinna það áfram. Stefnt er að afgreiðslu málsins á næsta fundi ráðsins.