Beint í efni

12. fundur

28.11.2018
Fjölskylduráð Garðabæjar

12. fundur

Fjölskylduráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

28.11.2018

Kl. 16:00 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - formaður
  • Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
  • Kristinn Guðlaugsson - varamaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hildigunnur Árnadóttir - félagsráðgjafi

Ritari

  • Hildigunnur Árnadóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1810166

01

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr. 1810166 umsókn um fjárhagsaðstoð. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1810388

02

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr. 1810388 umsókn um fjárhagsaðstoð. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1808175

03

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Tekið er fyrir mál nr. 1808175 umsókn um fjárhagsaðstoð. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1802118

04

Barnaverndarmál

Tekið er fyrir mál nr. 1802118, barnaverndarmál. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1802114

05

Barnaverndarmál

Tekið er fyrir mál nr. 1802114, barnaverndarmál. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 1810050

06

Gráu svæðin í velferðaþjónustu

Tekið er fyrir mál nr. 1810050, skýrsla Sambands íslenskra sveitarfélaga um Gráu svæðin í velferðarþjónustunni. Í stefnumörkun Sambandsins fyrir tímabilið 2014-2018 var samþykkt að Sambandið skyldi vinna markvisst að því að fækka gráum svæðum þar sem ábyrgðarskil ríkis og sveitarfélaga eru ekki nægjanlega ljós á sviði skóla- og velferðarmála. Skýrslan er yfirlit yfir þessi gráu svæði. Skýrslan er lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 1810355

07

Niðurstöður rannsóknar á þjónustu við aldraða

Tekið er fyrir mál nr. 1810355, niðurstaða rannsóknar á þjónustu við aldraða sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Velferðarráðuneytið. Markmið rannsóknarinnar var að kortleggja þá þjónustu við aldraða á Íslandi, aðra en þá sem veitt er á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Niðurstöðurnar eru lagðar fram til kynningar.

Málsnúmer 1804262

08

Könnun á stöðu leiguíbúða hjá sveitarfélögum 31. desember 2017

Tekið er fyrir mál nr. 180462 Könnun Varasjóðs húsnæðismála á stöðu leiguíbúða hjá sveitarfélögum fyrir árið 2017.

Skýrslan er lögð fram og rædd. Formaður lagði fram minnisblað um stöðu félagslegs leiguhúsnæðis í Garðabæ.

Guðfinna lagði fram eftirfarandi bókun:

"Garðabæjarlistinn leggur fram þá tillögu að Garðabær leggi fram tillögu þess efnis að Garaðbær setji fram áætlun um kaup á félagslegu húsnæði við alla uppbyggingaraðila. Garðabær hafi forgang um kaup á 4.5% af öllum íbúðum. Samstarf við Brynju hússjóð og Bjarg sömuleiðis verði tryggt. Samhliða þessu leggur Garðabæjarlistinn fram að sett verði inn í stefnuna að eignahlutfall bæjarfélagsins í hverju fjölbýlishúsi sé ekki meira en 10-15%. Þannig skapast fjölbreytilegt samfélag og jafnvægi".

Málsnúmer 1707104

09

Húsnæðisáætlun - Garðabær

Tekið er fyrir mál nr. 1707104, húsnæðisáætlun Garðabæjar. Fjölskylduráð fjallar um málið og mun vinna það áfram. Stefnt er að afgreiðslu málsins á næsta fundi ráðsins.