Könnun á stöðu leiguíbúða hjá sveitarfélögum 31. desember 2017
Ferill máls
Fjölskylduráð Garðabæjar
01
12. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 180462 Könnun Varasjóðs húsnæðismála á stöðu leiguíbúða hjá sveitarfélögum fyrir árið 2017.
Skýrslan er lögð fram og rædd. Formaður lagði fram minnisblað um stöðu félagslegs leiguhúsnæðis í Garðabæ.
Guðfinna lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn leggur fram þá tillögu að Garðabær leggi fram tillögu þess efnis að Garaðbær setji fram áætlun um kaup á félagslegu húsnæði við alla uppbyggingaraðila. Garðabær hafi forgang um kaup á 4.5% af öllum íbúðum. Samstarf við Brynju hússjóð og Bjarg sömuleiðis verði tryggt. Samhliða þessu leggur Garðabæjarlistinn fram að sett verði inn í stefnuna að eignahlutfall bæjarfélagsins í hverju fjölbýlishúsi sé ekki meira en 10-15%. Þannig skapast fjölbreytilegt samfélag og jafnvægi".