1. (1862). fundur
1. (1862). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
08.01.2019
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Björg Fenger - varamaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hulda Hauksdóttir - upplýsingastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1808017
01
Dýjagata 15 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Höskuldi Erni Arnarsyni, kt. 040380-5749 leyfi til að byggja einbýlishús að Dýjagötu 15.
Málsnúmer 1901022
02
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir gististað að Blikastíg 18.
Afgreiðslu frestað.
Málsnúmer 1811002
03
Umsagnarbeiðni um umsókn um leyfi fyrir gististað að Blikastíg 19
Með bréfi, dags. 5. desember sl. var íbúum við Blikastíg 13, 15 og 17 gefinn kostur á að tjá sig um umsóknina. Engar athugasemdir hafa verið gerðar. Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að umbeðið leyfi verði veitt.
Málsnúmer 1812002
04
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu varðandi nýja reglugerð um gerð stefnumótandi áætlunar ríkisins um málefni sveitarfélaga, dags. 03.01.18.
Lögð fram.
Málsnúmer 1812062
05
Samkomulag um að veita Sambandi íslenskra sveitarfélaga kjarasamningsumboð.
Bæjarráð samþykkir að veita Sambandi íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð til kjarasamningsgerðar fyrir sína hönd við eftirfarandi stéttarfélög.
Félag grunnskólakennara, Félag leikskólakennara, Félag stjórnenda leikskóla, Skólastjórafélag Íslands, Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, Félag íslenskra hljómlistarmanna, Félag íslenskra félagsvísindamanna, Félag íslenskra náttúrufræðinga, Félagsráðgjafafélag Íslands, Fræðagarður, Iðjuþjálfafélag Íslands, Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga, Sálfræðingafélag Íslands, Stéttarf. bókasafns- og upplýsingafræðinga, Stéttarfélag lögfræðinga, Þroskaþjálfafélag Íslands, Starfsmannafélag Garðabæjar, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar, Verkalýðsfélagið Hlíf, SFR stéttarfélag í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélag Íslands.
Málsnúmer 1812226
06
Bréf Umhverfisstofnunar varðandi tilnefningu fulltrúa umhverfis- og náttúrverndarnefndar í vatnasvæðanefnd, dags. 14.12.18.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Jónu Sæmundsdóttur eða Guðfinn Sigurvinsson sem fulltrúa Garðabæjar í vatnasvæðanefnd en forstjóri umhverfistofnunar mun skipa annaðhvort þeirra sem fulltrúa í nefndina með vísan til 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu karla og kvenna.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1812242
07
Bréf Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins um styrk, dags. 20.12.18.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2019.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1811105
08
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála vegna kæru Sporthallarinnar á niðurstöðu útboðs á aðstöðu fyrir líkamsrækt í Ásgarði, dags. 20.12.18.
Lögð fram ákvörðun kærunefndar útboðsmála þar sem fram kemur í ákvörðunarorði að útboð Garðabæjar varðandi aðstöðu fyrir líkamsrækt í Ásgarði er stöðvað um stundarsakir.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1812265
09
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um kæra vegna breytinga á deiliskipulagi Bæjargarðs, dags. 28.12.18.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsuma bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1812264
10
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og útboðsmála um kæra á byggingarleyfi vegna ljósamastra á gervigrasvelli í Bæjargarði, dags. 28.12.18.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsuma bæjarins í málinu.
Málsnúmer 1812263
11
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um kæru á byggingarleyfi fyrir uppsetningu girðingar við gervigrasvöll í Bæjargarði, dags. 28.12.18.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsuma bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1806461
12
Tillaga um viðmiðunarfjárhæðir vegna niðurfellingar eða lækkunar fasteignasktts og holræsagjalds elli- og örorkulífeyrisþega.
Eftirfarandi tillaga samþykkt.
Einstaklingar með tekjur árið 2017 allt að kr. 5.200.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 5.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 5.700.000.
Hjón með tekjur árið 2017 allt að kr. 6.650.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 13.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 7.950.000.
Málsnúmer 1812275
13
Erindisbréf fyrir neyðarstjórn Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir neyðarstjórn Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1707104
14
Drög að húsnæðisáætlun Garðabæjar 2018-2025.
Lögð fram tillaga Garðabæjarlistans sem fram kom að fundi bæjarstjórnar 20. desember sl.
Bæjarráð vísar húsnæðisáætlun Garðabæjar ásamt tillögu Garðabæjarlistans til umfjöllunar fjölskylduráðs.
Málsnúmer 1901036
15
Bréf hestamannafélagsins Spretts varðandi uppbyggingu hesthúsabyggðar á Kjóavöllum, 20.12.2018.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu við undirbúning að úthlutun hesthúsalóða á Kjóavöllum en verið er að vinna við hönnun gatna o.fl.
Bæjarráð telur eðlilegt að úthlutun lóða og framkvæmdir við gatnagerð verði á vegum bæjarins.
Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri ræði við fulltrúa stjórnar Spretts um samráð varðandi uppbyggingu hesthúsabyggðar á Kjóavöllum.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1901027
16
Bréf starfshóps á vegum Alþingis um endurskoðun kosningalaga, dags. 19.12.18.
Málsnúmer 1808350
17
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um tillögu að breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, dags. 04.01.19
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu svæðisskipulagsnefndar um að auglýst verði tillaga að breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 er varðar legu vaxtarmarka á milli þéttbýlis og dreifbýlis á Álfsnesi. Með breytingunni verður rými fyrir uppbyggingu og þróun efnisvinnslusvæðis sem staðsett yrði við jaðar núverandi iðnaðarsvæðis á Álfsnesi. Tillagan verður auglýst ásamt umhverfisskýrslu, breytingartillögum og umsögn við innkomnum athugasemdum í samræmi við 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 9. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1810191
18
Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs um styrk til rafíþróttaklúbbs Garðalundar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs um að veita rafíþróttaklúbbi Garðalundar styrk að fjárhæð kr. 250.000.