Beint í efni

Afgreiðsla íþrótta- og tómstundaráðs um styrk til rafíþróttaklúbbs Garðalundar.

Málsnúmer 1810191

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

1. (1862). fundur

Bæjarráð staðfestir afgreiðslu íþrótta- og tómstundaráðs um að veita rafíþróttaklúbbi Garðalundar styrk að fjárhæð kr. 250.000.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

5. fundur

Ósk um stuðning við stofnun rafíþróttaklúbbs.

ÍTG lítur á rafíþróttaklúbb sem áhugavert frumkvöðla verkefni og vill styðja það með 250.000,- kr. framlagi.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

3. fundur

Erindið er að okkur í Garðalundi langar að félagsvæða tölvurnar, gera það sem við getum til að útrýma þeim fordómum sem eiga það til að hljóma í garð tölvuleikja. Verkefnið er unnið þannig að fagaðilar koma að hópastarfinu og sjá til þess að rafíþróttaliðið setji sér markmið og sé uppbyggilegt félagslega fyrir þá leikmenn sem skrá sig til leiks.
Arnar Hólm Einarsson starfsmaður í Garðalundi kynnir málið nánar

Arnar Hólm Einarsson starfsmaður í Garðalundi kynnti verkefnið rafíþróttafélag, sem nú er í gangi í Garðalundi. Verkefnið er unnið þannig að fagaðilar koma að hópastarfinu og sjá til þess að rafíþróttaliðið setji sér markmið og sé uppbyggilegt félagslega fyrir þá leikmenn sem skrá sig til leiks.
ÍTG fagnar því að verið sé að auka fjölbreytni í hópastarfi og búa til faglega umgjörð um rafíþróttir í Garðabæ.