Beint í efni

3. fundur

16.10.2018
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

3. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

16.10.2018

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - varamaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1810123

01

Heilsuefling 65 í Garðabæ

Dr. Janus Guðlaugsson kynnir árangursríkar áherslur í heilsueflingu 65 ára og eldri í sveitarfélögum.

Dr. Janus Guðlaugsson kynnti árangursríkar áherslur í heilsueflingu 65 ára og eldri í sveitarfélögum.

Til áheyrnar voru Ingibjörg Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri öldrunar- og heimaþjónustu
Berglind R. Pétursdóttir, umsjónarmaður félags- og íþróttastarfs
Guðbjörg Björnsdóttir, iðjuþjálfi/deildarstjóri í dagþjálfun.

Málsnúmer 1810191

02

Rafíþróttaklúbbur

Erindið er að okkur í Garðalundi langar að félagsvæða tölvurnar, gera það sem við getum til að útrýma þeim fordómum sem eiga það til að hljóma í garð tölvuleikja. Verkefnið er unnið þannig að fagaðilar koma að hópastarfinu og sjá til þess að rafíþróttaliðið setji sér markmið og sé uppbyggilegt félagslega fyrir þá leikmenn sem skrá sig til leiks.

Arnar Hólm Einarsson starfsmaður í Garðalundi kynnir málið nánar

Arnar Hólm Einarsson starfsmaður í Garðalundi kynnti verkefnið rafíþróttafélag, sem nú er í gangi í Garðalundi. Verkefnið er unnið þannig að fagaðilar koma að hópastarfinu og sjá til þess að rafíþróttaliðið setji sér markmið og sé uppbyggilegt félagslega fyrir þá leikmenn sem skrá sig til leiks.

ÍTG fagnar því að verið sé að auka fjölbreytni í hópastarfi og búa til faglega umgjörð um rafíþróttir í Garðabæ.

Málsnúmer 1809281

03

Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga

Málsnúmer 1810017

04

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum, 25. mál.

Til kynningar. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum, 25. mál.

Lagt fram til umfjöllunar.

Ljóst er að tvöfalt lögheimili barna er ekki í samræmi við núgildandi lög sveitarfélaga. Vinna þarf að því að finna leiðir í úthlutun t.d. varðandi hvatapeninga til að koma til móts við þetta málefni, þó sé alltaf haft að leiðarljósi að tryggja hagsmuni barnsins sem best. Fram kom að málið hefur nýverið verið rætt í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem m.a. var ákveðið að taka málið upp við dómsmálaráðherra og óska eftir áliti nýs umboðsmanns barna vegna málsins.

Málsnúmer 1809268

05

Birgir Steinn Jónsson -Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Birgir Steinn Jónsson kt. 111299-2699 v/U20 HSÍ, EM í Slóveníu 18. júlí 2018

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000,- kr

Málsnúmer 1809267

06

Birgir Steinn Jónsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Birgir Steinn Jónsson kt. 111299-2699 v/U20 HSÍ, leikið við Frakkland 5. júlí 2018

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000,- kr

Málsnúmer 1809242

07

Rósa Elísabet Markúsdóttir-Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Rósa Elísabet Markúsdóttir kt. 180902-2010 Blandað unglinga í hópfimleikum, Evrópumót í Portúgal 15.10.2018

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000,- kr

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1810183

08

Helena Clausen Heiðmundsdóttir-Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Helena Clausen Heiðmundsdóttir 211102-2680 Evrópumót í hópfimleikum október 2018 með unglingalandsliðinu. Portugal, Lissabon 15. október.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000,- kr

Málsnúmer 1810184

09

Hildur Clausen Heiðmundsdóttir-Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Hildur Clausen Heiðmundsdóttir kt 2111022410. Evrópumót í hópfimleikum október 2018 með unglingalandsliði FSÍ. Portugal, Lissabon, 15. október 2018.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000,- kr