Beint í efni

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum, 25. mál.

Málsnúmer 1810017

Ferill máls

Fjölskylduráð Garðabæjar

01

11. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1810017 frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum. Bæjarráð Garðabæjar vísar málinu til umfjöllunar í fjölskylduráði.
Fjölskylduráð fjallar um málið. Ýmis sjónarmið koma fram. Fjölskylduráð leggur höfuðáherslu á að alltaf skuli hafa það sem barni er fyrir bestu í forgangi þegar teknar eru ákvarðanir er varða börn sbr. m.a. 3. gr. í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Mikilvægt er að fyrirkomulag búsetu barna sé til þess fallið að tryggja stöðugleika, samfellu, öryggi og festu í lífi þeirra. Fjölskylduráð mun taka málið aftur fyrir síðar.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

14. (836). fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

03

2. fundur

Lagt fram til umfjöllunar. Málið var rætt og ýmis sjónarmið komu fram. Leikskólanefnd leggur áherslu á að hagsmunir barna skulu ávalt hafðir að leiðarsljósi og þeim tryggð samfella í daglegu lífi, festa og öryggi. Í ljósi þess skuli leitast við að barn dvelji í einum leikskóla.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

04

3. fundur

Til kynningar. Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum, 25. mál.

Lagt fram til umfjöllunar.
Ljóst er að tvöfalt lögheimili barna er ekki í samræmi við núgildandi lög sveitarfélaga. Vinna þarf að því að finna leiðir í úthlutun t.d. varðandi hvatapeninga til að koma til móts við þetta málefni, þó sé alltaf haft að leiðarljósi að tryggja hagsmuni barnsins sem best. Fram kom að málið hefur nýverið verið rætt í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem m.a. var ákveðið að taka málið upp við dómsmálaráðherra og óska eftir áliti nýs umboðsmanns barna vegna málsins.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

05

3. fundur

Lagt fram til umfjöllunar. Málið rætt og ýmis sjónarmið komu fram. Ljóst er að tvöfalt lögheimili barna er ekki í samræmi við núgildandi lög sveitarfélaga. Vinna þarf að því að finna leiðir í reiknireglum sveitarfélaga til að koma á móts við þetta málefni, þó sé alltaf haft að leiðarljósi að tryggja hagsmuni barnsins sem best. Fram kom að málið hefur nýverið verið rætt í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem m.a. var ákveðið að taka málið upp við dómsmálaráðherra og óska eftir áliti nýs umboðsmanns barna vegna málsins. Skólanefnd óskar eftir því við skóladeild að athuga hvort hægt sé að fá fagaðila til fundar til frekari umfjöllunar.

Bæjarráð Garðabæjar

06

36. (1851). fundur

Ingvar Arnarsson, lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Garðabæjarlistinn undrast afstöðu Sambands íslenskra sveitarfélaga gagnvart frumvarpi til breytinga á barnalögum, nr. 76/2003, sem fjallar um að mögulegt verði að börn eigi tvö lögheimili.
Garðabæjarlistinn leggur til að Garðabær skili inn áliti sem styður frumvarpið, enda er hér um mikilvægt réttlætismál, þar sem sveitarfélög þurfa að axla ábyrgð með því að breyta greiðslukerfum sínum, sem er smámál miðað við þau réttindi sem nú er verið að brjóta á börnum og foreldrum þeirra.“

Bæjarráð vísar málinu ásamt framlagðri tillögu til umfjöllunar skólanefndar grunnskóla, leikskólanefnd, fjölskylduráð og íþrótta- og tómstundaráðs.

Fylgiskjöl