2. fundur
2. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í leikskólanum Sunnuhvoli
18.10.2018
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- Andrea Róbertsdóttir - varamaður
- Fanney Hanna Valgarðsdóttir - varamaður
- Valborg Ösp Á. Warén - aðalmaður
Starfsmenn
- Halldóra Pétursdóttir - verkefnastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Ragnhildur Skúladóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Lára Dan Daníelsdóttir - fulltrúi dagforeldra
- Eydís Sigurðardóttir - fulltrúi foreldra
- Anna María Sigurjónsdóttir - varafulltrúi starfsmanna
Ritari
- Halldóra Pétursdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1806164
01
Ársskýrslur leikskóla 2017 - 2018
Í upphafi fundar óskaði nefndarformaður eftir að bæta við dagskrárlið nr. 4 um tilfærslur á starfsdögum hjá leikskólum Hjalla. <br />
Ársskýrslur leikskóla lagðar fram.
Málsnúmer 1809281
02
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um yfirlit yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga
Lagt fram til umfjöllunar.
Málsnúmer 1809086
03
Flutningur á starfsdegi - endurupptaka
Samþykktur flutningur á starfsdögum hjá leikskólanum Bæjarbóli.
Málsnúmer 1810172
04
Tilfærsla á starfsdögum leikskóla sem reknir eru af Hjallastefnunni
Á fundi leikskólanefndar 18. október var fjallað um erindi Hjallastefnunnar um tilfærslu á starfsdögum, málinu var vísað til umfjöllunar leikskólanefndar frá bæjarráði. Leikskólanefnd bendir á að í skólastefnu Garðabæjar er lögð áhersla á sameiginlega starfsdaga í leik-og grunnskólum til að þjónusta foreldra og börn sem best. Til að tryggja áfram þessa þjónustu leggur nefndin til að skóladagatal leik- og grunnskóla í sveitarfélaginu verði samræmt.
Málsnúmer 1810017
05
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að heimila skráningu lögheimilis barna hjá báðum forsjárforeldrum, 25. mál.
Lagt fram til umfjöllunar. Málið var rætt og ýmis sjónarmið komu fram. Leikskólanefnd leggur áherslu á að hagsmunir barna skulu ávalt hafðir að leiðarsljósi og þeim tryggð samfella í daglegu lífi, festa og öryggi. Í ljósi þess skuli leitast við að barn dvelji í einum leikskóla.
Málsnúmer 1808387
06
Leikskóli innleiðingar nýrra laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Verkefnastjóri skóladeildar upplýsti nefndarmenn um framvindu innleiðingar nýrra persónuverndarlaga í leikskólum.
Málsnúmer 1808123
07
Tillaga um hinsegin fræðslu - heilsueflandi samfélag
Lagt fram til umfjöllunar. Leikskólanefnd hvetur til þess að sérstök fræðsla um hinsegin fræði verði í boði fyrir leikskólakennara og starfsfólk leikskóla.
Málsnúmer 1808432
08
Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Þóru Eiríksdóttir er veitt leyfi til daggæslu í 1 ár.
Málsnúmer 1808339
09
Endurnýjun á leyfi til daggæslu
Samþykkt er endurnýjun á leyfi til daggæslu fyrir Láru Dan Daníelsdóttir
Málsnúmer 1808340
10
Endurnýjun leyfi til daggæslu
Samþykkt er endurnýjun á leyfi til daggæslu fyrir Stellu Ósk Sigurðardóttir.
Málsnúmer 1808402
11
Endurnýjun á leyfi til daggæslu
Samþykkt er endurnýjun á leyfi til daggæslu Þórey Daníelsdóttir.