Beint í efni

Tillaga um hinsegin fræðslu - heilsueflandi samfélag

Málsnúmer 1808123

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

2. fundur

Lagt fram til umfjöllunar. Leikskólanefnd hvetur til þess að sérstök fræðsla um hinsegin fræði verði í boði fyrir leikskólakennara og starfsfólk leikskóla.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

2. fundur

Garðabæjarlistinn leggur til að bæjarstjórn óski eftir gerð þjónustusamnings við Samtökin ’78 um hinsegin fræðslu sem nýtist sem flestu starfsfólki Garðabæjar og um leið börnum og ungmennum. Garðabæjarlistinn leggur áherslu á tvenns konar inntak samnings. Annars vegar markvissa hinsegin fræðslu til ungmenna á grunnskólastigi og hins vegar almenna fræðslu fyrir starfsfólk Garðabæjar þar sem starfsfólki leik- og grunnskóla er veitt sérstök fræðsla en einnig þar sem boðið verður upp á hinsegin fræðslu fyrir allt starfsfólk. Uppræting fordóma er eina leiðin til þess að hinsegin fólk njóti öryggis í samfélaginu. Garðabæjarlistinn vill að markviss hinsegin fræðsla verði eitt þeirra markmiða sem falla undir heilsueflandi samfélag, enda er andleg líðan stór og mikilvægur þáttur góðrar heilsu.

ÍTG tekur undir mikilvægi þess að eyða hvers kyns fordómum og hvetur til að haldið sé uppi fræðslu um málefni "hinsegin" fólks innan íþrótta- og æskulýðsstarfsins.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

04

1. fundur

Rætt um mikilvægi hinsegin fræðslu, auk margs konar fræðslu í skólakerfinu svo sem eineltis-, forvarnar- og mannréttindafræðslu. Forstöðumanni fræðslusviðs falið að ræða við skólastjórnendur um fyrirkomulag fræðslunnar í grunnskólum Garðabæjar og mikilvægi þess að hún fari sannarlega fram og vel sé að henni staðið.

Bæjarráð Garðabæjar

05

29. (1844). fundur

Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar í skólanefnd, leikskólanefnd og íþrótta- og tómstundaráðs.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

10. (832). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Garðabæjarlistinn leggur til að bæjarstjórn óski eftir gerð þjónustusamnings við Samtökin ’78 um hinsegin fræðslu sem nýtist sem flestu starfsfólki Garðabæjar og um leið börnum og ungmennum. Garðabæjarlistinn leggur áherslu á tvenns konar inntak samnings. Annars vegar markvissa hinsegin fræðslu til ungmenna á grunnskólastigi og hins vegar almenna fræðslu fyrir starfsfólk Garðabæjar þar sem starfsfólki leik- og grunnskóla er veitt sérstök fræðsla en einnig þar sem boðið verður upp á hinsegin fræðslu fyrir allt starfsfólk. Uppræting fordóma er eina leiðin til þess að hinsegin fólk njóti öryggis í samfélaginu. Garðabæjarlistinn vill að markviss hinsegin fræðsla verði eitt þeirra markmiða sem falla undir heilsueflandi samfélag, enda er andleg líðan stór og mikilvægur þáttur góðrar heilsu.“

Greinargerð.
Mannréttindi eru ekki sjálfsögð. Þetta veit hinsegin fólk, sem hefur barist fyrir réttindum sínum áratugum saman. Á Íslandi hefur mikill árangur náðst í þeirri baráttu, þótt enn sé langt í land á mörgum sviðum. Þrátt fyrir breytta tíma mætir hinsegin fólk enn fordómum og jafnvel andúð í samfélaginu. Nýlegar rannsóknir, m.a. á Íslandi, sýna að hinsegin ungmenni eru líklegri til þess að glíma við kvíða og þunglyndi auk þess sem þau íhuga frekar að skaða sig og að stytta sér aldur. Þessi staða er óásættanleg og Garðabær er í góðri aðstöðu til þess að leggja sitt af mörkum til þess að bæta líðan barna og ungmenna í bænum og jafnframt stuðla að opnara, fordómalausara og heilbrigðara samfélagi.
Fræðsla upprætir fordóma. Hinsegin fólk sem fær eindreginn stuðning frá fjölskyldu og nærsamfélagi á mun auðveldara uppdráttar en þau sem mæta mótlæti. Fræðsla um hinsegin mál er mikilvæg fyrir allt samfélagið, en ekki síst fyrir hinsegin ungmenni, hinsegin foreldra, börn hinsegin fólks og aðra aðstandendur, kennara, leiðbeinendur og aðra sem þjónusta þessa hópa. Hinsegin fræðsla kemur öllum þessum hópum vel. Bæði eykur það lífsgæði hinsegin fólks að það sé almenn meðvitund um málefni þeirra í nærsamfélaginu, en jafnframt eykur það öryggi fagfólks til þess að takast á við málefni sem eru þeim e.t.v. framandi.
Hinsegin málefni eru flókin og margslungin auk þess sem þau eru síbreytileg. Þess vegna er ákaflega mikilvægt að þau sem koma að fræðslu um hinsegin mál séu sérfræðingar. Garðabæjarlistinn leggur einnig áherslu á það að hinsegin fræðsla þarf að eiga sér stað óháð viðhorfum einstaka stjórnenda. Það má ekki vera minnsti möguleiki á því að fordómar nái að leita sér skjóls. Hinsegin fræðsla hefur hingað til verið valkvæð í skólum Garðabæjar, en það þýðir að færri fá notið hennar en ella. Við teljum að hinsegin fræðsla eigi erindi við öll ungmenni og allt starfsfólk bæjarins. Garðabæjarlistinn vill að Garðabær lýsi yfir fullum stuðningi yfir réttindabaráttu hinsegin fólks og sýni í verki að við tökum hinsegin fræðslu alvarlega. Með því að óska eftir þjónustusamningi við Samtökin ’78 sendum við skýr skilaboð um að Garðabær sé upplýst samfélag þar sem öllum manneskjum er sýnd virðing.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framlagða tillögu og lagði til að vísa henni til bæjarráðs.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju, framlagða tillögu.

Valborg A Warén, ræddi framlagða tillögu.

Björg Fenger, ræddi framlagða tillögu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju framlagða tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framlagðri tillögu til bæjarráðs.