Beint í efni

2. fundur

18.09.2018
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

2. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í Álftanesskóla

18.09.2018

Kl. 20:00 - 21:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Guðjón Pétur Lýðsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Fundurinn var haldinn í hátíðarsal íþróttamiðstöðvarinnar á Álftanesi.
Gestir fundarins voru forráðamenn íþrótta og tómstundafélaga sem starfa á Álftanesi; mættir voru fulltrúar UMFÁ, GÁ og Félags eldriborgara á Álftanesi.
Hvert félag greindi frá starfsemi sinni og fengu tækifæri til að ræða málefni sem á þeim brenna.

Dagskrá

Málsnúmer 1809030

01

Birta Björnsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Íslenska landsliðið í blaki, EM - Noregur, Belgía, Ísrael

10.-16. ágúst (Noregur og Belgía), 21.-24. ágúst (Ísrael)

Tvær ferðir.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 2x 20.000,- vegna tveggja ferða með blaklandsliði Ísland á EM - Noregur, Belgía, Ísrael

10.-16. ágúst (Noregur og Belgía), 21.-24. ágúst (Ísrael)

Málsnúmer 1808439

02

Pétur Árni Hauksson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Pétur Árni Hauksson kt. 0507982759 vegna U-20 í handbolta 5.-9. júlí 2018.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000,- vegna U-20 í handbolta 5.-9. júlí 2018.

Málsnúmer 1808438

03

Pétur Árni Hauksson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Ferð nr. 2 Pétur Árni Hauksson kt. 0507982759 EM í Slóveníu U-20 í handbolta 18.-30. júlí 2018.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000,- vegna EM í Slóveníu U-20 í handbolta 18.-30. júlí 2018.

Málsnúmer 1808205

04

Hjördís Eiríksdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Kvennalandslið í blaki, Undankeppni Evrópumóts, Noregur, Belgía og Ísrael, 10. ágúst og 21. ágúst.

Tvær ferðir.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 2x 20.000,- vegna tveggja ferða með blaklandsliði Ísland á EM - Noregur, Belgía, Ísrael

10.-16. ágúst (Noregur og Belgía), 21.-24. ágúst (Ísrael)

Málsnúmer 1807213

05

Kristófer Darri Sigurðsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Kristófer Darri Sigurðsson kt. 2101023450 Spretti. Norðurlandamót í hestaíþróttum í Svíþjóð 29.07.2018.

ÍTG samþykkir ferðastyrk að upphæð 20.000,- vegna Norðurlandamóts í hestaíþróttum í Svíþjóð 29.07.2018.

Málsnúmer 1808414

06

Aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi

Bæjarráð vísar bréfinu til íþrótta- og tómstundaráðs og felur ráðinu að taka tillögur starfshóps ráðuneytisins um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi í íþrótta- og æskulýðsstarfi til umfjöllunar með íþrótta- og æskulýðsfélögum í Garðabæ.

ÍTG lítur málið mjög alvarlegum augum. Nú þegar eru ákvæði í samningum við félög um að fylgja ákvörðunum sinna heildarsamtaka til að taka á kynferðislegri áreitni og ofbeldi í sínu starfi. Að auki er ÍTG að vinna að uppsetningu fræðslufunda með öllum starfsmönnum íþrótta-, og tómstundafélaga í Garðabæ. Fundirnir verða endurteknir fimm sinnum til að ná til allra. Erindið á fundunum fjallar um „kynbundið ofbeldi, mismunun og fordóma“. Áfram verður unnið að því að fullnægja þeim tillögum sem nefnd ráðherra hefur beint til sveitarfélaga.

Málsnúmer 1806278

07

Skólamót í blaki 2018 styrkumsókn UMSK

Umsókn um styrk vegna skólamóts í blaki innan UMSK sem fram fór í maí 2018.

ÍTG samþykkir að veita UMSK styrk vegna skólamóts í blaki innan UMSK sem fram fór í maí 2018 að upphæð 150.000,-

Málsnúmer 1808123

08

Tillaga um hinsegin fræðslu - heilsueflandi samfélag

Garðabæjarlistinn leggur til að bæjarstjórn óski eftir gerð þjónustusamnings við Samtökin ’78 um hinsegin fræðslu sem nýtist sem flestu starfsfólki Garðabæjar og um leið börnum og ungmennum. Garðabæjarlistinn leggur áherslu á tvenns konar inntak samnings. Annars vegar markvissa hinsegin fræðslu til ungmenna á grunnskólastigi og hins vegar almenna fræðslu fyrir starfsfólk Garðabæjar þar sem starfsfólki leik- og grunnskóla er veitt sérstök fræðsla en einnig þar sem boðið verður upp á hinsegin fræðslu fyrir allt starfsfólk. Uppræting fordóma er eina leiðin til þess að hinsegin fólk njóti öryggis í samfélaginu. Garðabæjarlistinn vill að markviss hinsegin fræðsla verði eitt þeirra markmiða sem falla undir heilsueflandi samfélag, enda er andleg líðan stór og mikilvægur þáttur góðrar heilsu.

ÍTG tekur undir mikilvægi þess að eyða hvers kyns fordómum og hvetur til að haldið sé uppi fræðslu um málefni "hinsegin" fólks innan íþrótta- og æskulýðsstarfsins.