Beint í efni

Aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi

Málsnúmer 1808414

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

4. fundur

Birta Björnsdóttir hefur flutt erindi um kynbundið ofbeldi, áreitni og mismunun í íþrótta-, og félagsstarfi.
Boðið var upp á fimm tímasetningar fyrir þjálfara að velja úr, síðasti fyrirlesturinn var 19. nóvember.

ÍTG bauð þjálfurum og forsvarsmönnum félaga í Garðabæ upp á fyrirlestur með Birtu Björnsdóttur um kynbundið ofbeldi, áreitni og mismunun í íþrótta-, og félagsstarfi.
Í tillögum að aðgerðum sem starfshópur á vegum mennta- og menningarráðuneytisins gaf út í júní 2018 "gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi" kemur m.a. fram að sveitarfélögin skuli stuðla að fræðslu þjálfara, starfsfólks og annarra sem koma að daglegu starfi félaganna um ofbeldi, kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi og hvernig bregðast eigi við því.
Boðið var upp á fimm tímasetningar fyrir þjálfara og forsvarsmenn félaga til að velja úr en fundirnir voru haldnir á tímabilinu 7. til 19. nóvember sl.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

2. fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til íþrótta- og tómstundaráðs og felur ráðinu að taka tillögur starfshóps ráðuneytisins um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi í íþrótta- og æskulýðsstarfi til umfjöllunar með íþrótta- og æskulýðsfélögum í Garðabæ.

ÍTG lítur málið mjög alvarlegum augum. Nú þegar eru ákvæði í samningum við félög um að fylgja ákvörðunum sinna heildarsamtaka til að taka á kynferðislegri áreitni og ofbeldi í sínu starfi. Að auki er ÍTG að vinna að uppsetningu fræðslufunda með öllum starfsmönnum íþrótta-, og tómstundafélaga í Garðabæ. Fundirnir verða endurteknir fimm sinnum til að ná til allra. Erindið á fundunum fjallar um „kynbundið ofbeldi, mismunun og fordóma“. Áfram verður unnið að því að fullnægja þeim tillögum sem nefnd ráðherra hefur beint til sveitarfélaga.

Bæjarráð Garðabæjar

04

31. (1846). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til íþrótta- og tómstundaráðs og felur ráðinu að taka tillögur starfshóps ráðuneytisins um aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi í íþrótta- og æskulýðsstarfi til umfjöllunar með íþrótta- og æskulýðsfélögum í Garðabæ.

Fylgiskjöl