4. fundur
4. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
20.11.2018
Kl. 17:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - aðalmaður
- Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1804250
01
Samningar við félög til undirritunar 2018
Samningur við Skátafélagið Svani. Heimsókn skátaforingja þeirra til ÍTG.
Jóhanna Aradóttir félagsforingi, Aðalbjörg Elín Halldórsdóttir gjaldkeri og Arnór Bjarki Svarfdal mættu á fundinn og kynntu starf skátafélagsins Svana. Skátafélagið gerði grein fyrir þeirri hugmynd sinni að halda þrettándabrennu í stað áramótabrennu. Einnig óskaði félagið eftir að fyrirkomulag 17. júní hátíðarhaldanna sem og verkaskipting milli skátafélaganna við undirbúning og framkvæmd yrði gerð skýrari. Svanir óska eftir að undirritun samstarfssamnings vegna ársins 2018 verði kláruð en vilja ræða hækkun vegna ársins 2019.
ÍTG gerir ekki athugasemdir við að haldin verði þrettándabrenna á Álftanesi og mun í vor ræða við bæði skátafélögin um skipulag og framkvæmd 17. júní hátíðarhaldanna.
Málsnúmer 1811028
02
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Hekla Mist Valgeirsdóttir kt. 2408992649 EM í hópfimleikum í Portugal 15-21. október 2018.
Hekla Mist Valgeirsdóttir kt. 2408992649 vegna EM í hópfimleikum í Portugal 15-21. október 2018. ÍTG samþykkir styrk að upphæð kr. 20.000,-
Málsnúmer 1810207
03
Dagbjört Bjarnadóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Dagbjört Bjarnadóttir kt. 2009022380 EM stúlknaliða í Portugal 15. til 21. október 2018.
Dagbjört Bjarnadóttir kt. 2009022380 vegna EM stúlknaliða í Portugal 15. til 21. október 2018. ÍTG samþykkir styrk að upphæð kr. 20.000,-
Málsnúmer 1811158
04
Íþróttahátíð Garðabæjar 6.jan 2019
Íþróttahátíð Garðabæjar verður haldin 6. janúar 2019 í anddyri Ásgarðs og fimleikasalnum líkt og undanfarin ár.
Á hátíðinni verður kjöri lýst á íþróttafólki Garðabæjar. Einnig verða veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í íþróttum og landsliðsþátttöku, þjálfarar ársins valdir og viðurkenningar fyrir störf að félagsmálum.
Auglýst hefur verið eftir tilnefningum til 5. desember.
Íþróttahátíð Garðabæjar verður haldin 6. janúar 2019 í anddyri Ásgarðs og í fimleikasalnum líkt og undanfarin ár.
Á hátíðinni verður kjöri á íþróttafólki Garðabæjar lýst. Einnig verða veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í íþróttum og landsliðsþátttöku, þjálfarar ársins valdir og viðurkenningar fyrir störf að félagsmálum veitt.
Auglýst hefur verið eftir tilnefningum og skulu þær berast fyrir 5. desember nk.
Málsnúmer 1808414
05
Aðgerðir gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi
Birta Björnsdóttir hefur flutt erindi um kynbundið ofbeldi, áreitni og mismunun í íþrótta-, og félagsstarfi.
Boðið var upp á fimm tímasetningar fyrir þjálfara að velja úr, síðasti fyrirlesturinn var 19. nóvember.
ÍTG bauð þjálfurum og forsvarsmönnum félaga í Garðabæ upp á fyrirlestur með Birtu Björnsdóttur um kynbundið ofbeldi, áreitni og mismunun í íþrótta-, og félagsstarfi.
Í tillögum að aðgerðum sem starfshópur á vegum mennta- og menningarráðuneytisins gaf út í júní 2018 "gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldishegðun í íþrótta- og æskulýðsstarfi" kemur m.a. fram að sveitarfélögin skuli stuðla að fræðslu þjálfara, starfsfólks og annarra sem koma að daglegu starfi félaganna um ofbeldi, kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi og hvernig bregðast eigi við því.
Boðið var upp á fimm tímasetningar fyrir þjálfara og forsvarsmenn félaga til að velja úr en fundirnir voru haldnir á tímabilinu 7. til 19. nóvember sl.
Málsnúmer 1804130
06
Hnoðraholt og Vetrarmýri, dsk br v. fjölnota íþróttahúss
ÍTG fagnar byggingu nýs fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri og gerir ekki athugasemd við auglýsta dsk br.
Málsnúmer 1811205
07
Forvarnarmál í Garðabæ
Yfirlit yfir forvarnarmál í Garðabæ
Gunnar Richardson rakti sögu forvarnarstarfs á vegum forvarnarnefndar Garðabæjar.
Málsnúmer 1811004
08
Blak á Álftanesi
Ósk UMFÁ um stuðning við afreksstarf blakdeildar félagsins vegna keppni í úrvalsdeild BLÍ karla og kvenna 2018-2019
ÍTG samþykkir að mæla með því að styrkja UMFÁ sérstaklega um eina milljón kr. við að stofna meistaraflokka í blaki á efsta getustigi. Styrkurinn komi til greiðslu á árinu 2018.
Málsnúmer 1811246
09
Höfuðáverkar í íþróttum - fræðslumál og forvarnir
Umræður voru um hvort ÍTG ætti að boða til fræðslufundar um höfuðmeiðsli í íþróttum. Slík meiðsli hafa verið mikið í umræðunni undanfarið enda gerir fólk sér sífellt betur grein fyrir þeim alvarlegum afleiðingum sem heilahristingur getur valdið. Íþróttafulltrúa var falið að kanna málið nánar.
Málsnúmer 1804101
10
TUFF námskeið fyrir börn
Umræður um Tuff verkefnið og hvernig best væri að nálgast börn af erlendum uppruna til að kynna fyrir þeim og fjölskyldum þeirra hvaða íþrótttir og tómstundir séu í boði í bænum sem og að upplýsa um hvatapeninga og frístundabíl. Ákveðið að vinna áfram að málinu með aðstoð fræðslusviðs Garðabæjar.
Málsnúmer 1811020
11
Kynjafræðsla fyrir starfsmenn grunnskóla
Fræðslusviðið hefur fengið Kolbrúnu Hrund Sigurgeirsdóttur kynjafræðing til að halda kynjafræðslu í starfsmannahópum allra grunnskóla bæjarins. Ákveðið að formaður ÍTG og íþróttafulltrúi myndu mæta á slíka fræðslu til að meta hvort bjóða ætti upp á svipað fyrirkomulag fyrir íþrótta- og tómstundafélögin. Þess skal þó getið að félagsmiðstöðvarnar munu vera boðaðar í kynjafræðsluna með starfsmannahóp skólanna.