Íþróttahátíð Garðabæjar 6.jan 2019
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
7. fundur
Afreksstyrkir til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar og fræðslustyrkir til þjálfara ársins.
ÍTG samþykkti að styrkja íþróttakarl og íþróttakonu Garðabæjar um kr 100.000,- hvort.
Einnig samþykkti ÍTG fræðslustyrki til þjálfara ársins 2018 um kr. 50.000,- á hvort þeirra.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
6. fundur
Kjör íþróttamanns ársins
Íþróttakona Garðabæjar 2018:
Tilnefndar eru; Andrea Sif Pétursdóttir, Freydís Halla Einarsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir og Irma Gunnarsdóttir.
Íþróttakarl Garðabæjar 2018:
Tilnefndir eru; Baldur Sigurðsson, Birgir Leifur Hafþórsson, Jón Þór Sigurðsson og Pétur Fannar Gunnarsson.
Íþróttalið Garðabæjar 2018:
Heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum:
Tilnefnd eru; Hilmar Júlíusson fyrir störf að körfuknattleik
Þjálfarar ársins 2018: tilnefnd eru;
Herdís Sigurbergsdóttirt, handknattleiksþjálfari og Kjartan Atli Kjartansson, körfuknattleiksþjálfari.
Aðrar viðurkenningar:
Fyrir framúrskarandi árangur innanlands alls 258 einstaklingar.
Fyrsta þátttaka með A-landsliði 13 einstaklingar
Þátttaka með U-landsliðum 47 einstaklingar
Árangur á erlendum vettvangi 38 einstaklingar
Kjör íþróttamanns ársins.
Íþróttakona Garðabæjar 2018 er Freydís Halla Einarsdóttir skíðakona og ólympíufari.
Tilnefndar voru; Andrea Sif Pétursdóttir, Freydís Halla Einarsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir og Irma Gunnarsdóttir.
Íþróttakarl Garðabæjar 2018 er Baldur Sigurðsson fyrirliði bikarmeistara Stjörnunnar í knattspyrnu karla.
Tilnefndir voru; Baldur Sigurðsson, Birgir Leifur Hafþórsson, Jón Þór Sigurðsson og Pétur Fannar Gunnarsson.
Íþróttalið Garðabæjar 2018: Stjarnan mfl. ka. í knattspyrnu
Heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum fá Hilmar Júlíusson Stjörnunni, Þorgerður Jóhannsdóttir GKG, Stefán Arinbjarnarson UMFÁ.
Þjálfarar ársins 2018 eru Herdís Sigurbergsdóttir, handknattleiksþjálfari og Kjartan Atli Kjartansson, körfuknattleiksþjálfari.
Viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur innanlands fá alls 320 einstaklingar. Fyrir fyrstu þátttöku með A-landsliði fá 13 einstaklingar, þátttöku með U-landsliðum 48 einstaklingar og árangur á erlendum vettvangi, 39 einstaklingar.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
5. fundur
Tilnefningar til íþróttafólks Garðabæjar
Tilnefndar til íþróttakonu Garðabæjar 2018 eru:
Andrea Sif Pétursdóttir, fimleikakona í Stjörnunni
Freydís Halla Einarsdóttir, skíðakona í Ármanni
Hulda Clara Gestsdóttir, golfari í GKG
Irma Gunnarsdóttir, frjálsíþróttakona í Breiðabliki
Tilnefndir til íþróttakarls Garðabæjar eru:
Baldur Sigurðsson, knattspyrnumaður í Stjörnunni
Birgir Leifur Hafþórsson, golfari GKG
Jón Þór Sigurðsson, skotíþróttamaður í SFK
Pétur Fannar Gunnarsson, dansari í DR
Opin vefkosning fer fram á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is frá 21. desember til 2. janúar. Kynning verður sett í Garðapóstinn.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
4. fundur
Íþróttahátíð Garðabæjar verður haldin 6. janúar 2019 í anddyri Ásgarðs og fimleikasalnum líkt og undanfarin ár.
Á hátíðinni verður kjöri lýst á íþróttafólki Garðabæjar. Einnig verða veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í íþróttum og landsliðsþátttöku, þjálfarar ársins valdir og viðurkenningar fyrir störf að félagsmálum.
Auglýst hefur verið eftir tilnefningum til 5. desember.
Íþróttahátíð Garðabæjar verður haldin 6. janúar 2019 í anddyri Ásgarðs og í fimleikasalnum líkt og undanfarin ár.
Á hátíðinni verður kjöri á íþróttafólki Garðabæjar lýst. Einnig verða veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í íþróttum og landsliðsþátttöku, þjálfarar ársins valdir og viðurkenningar fyrir störf að félagsmálum veitt.
Auglýst hefur verið eftir tilnefningum og skulu þær berast fyrir 5. desember nk.