Beint í efni

6. fundur

04.01.2019
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

6. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

04.01.2019

Kl. 12:00 - 13:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Guðjón Pétur Lýðsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
  • Eva Ósk Ármannsdóttir

Ritari

  • Kári Jónsson

Dagskrá

Málsnúmer 1811158

01

Íþróttahátíð Garðabæjar 6.jan 2019

Kjör íþróttamanns ársins

Íþróttakona Garðabæjar 2018:

Tilnefndar eru; Andrea Sif Pétursdóttir, Freydís Halla Einarsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir og Irma Gunnarsdóttir.

Íþróttakarl Garðabæjar 2018:

Tilnefndir eru; Baldur Sigurðsson, Birgir Leifur Hafþórsson, Jón Þór Sigurðsson og Pétur Fannar Gunnarsson.

Íþróttalið Garðabæjar 2018:

Heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum:

Tilnefnd eru; Hilmar Júlíusson fyrir störf að körfuknattleik

Þjálfarar ársins 2018: tilnefnd eru;

Herdís Sigurbergsdóttirt, handknattleiksþjálfari og Kjartan Atli Kjartansson, körfuknattleiksþjálfari.

Aðrar viðurkenningar:

Fyrir framúrskarandi árangur innanlands alls 258 einstaklingar.

Fyrsta þátttaka með A-landsliði 13 einstaklingar

Þátttaka með U-landsliðum 47 einstaklingar

Árangur á erlendum vettvangi 38 einstaklingar

Kjör íþróttamanns ársins.

Íþróttakona Garðabæjar 2018 er Freydís Halla Einarsdóttir skíðakona og ólympíufari.

Tilnefndar voru; Andrea Sif Pétursdóttir, Freydís Halla Einarsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir og Irma Gunnarsdóttir.

Íþróttakarl Garðabæjar 2018 er Baldur Sigurðsson fyrirliði bikarmeistara Stjörnunnar í knattspyrnu karla.

Tilnefndir voru; Baldur Sigurðsson, Birgir Leifur Hafþórsson, Jón Þór Sigurðsson og Pétur Fannar Gunnarsson.

Íþróttalið Garðabæjar 2018: Stjarnan mfl. ka. í knattspyrnu

Heiðursviðurkenningar fyrir störf að félagsmálum fá Hilmar Júlíusson Stjörnunni, Þorgerður Jóhannsdóttir GKG, Stefán Arinbjarnarson UMFÁ.

Þjálfarar ársins 2018 eru Herdís Sigurbergsdóttir, handknattleiksþjálfari og Kjartan Atli Kjartansson, körfuknattleiksþjálfari.

Viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur innanlands fá alls 320 einstaklingar. Fyrir fyrstu þátttöku með A-landsliði fá 13 einstaklingar, þátttöku með U-landsliðum 48 einstaklingar og árangur á erlendum vettvangi, 39 einstaklingar.

Málsnúmer 1812193

02

Fyrirspurn UMFÁ um fjármagn til viðhalds.

Rætt var um mikilvægi þess að klára framkvæmdir við ljósamöstur og lýsingu gervigrasvallarins á Álftanesi og að útbúa búningsklefa í vallarhúsinu svo það megi nýstast UMFÁ. Viðhald á gólfi íþróttahússins er í undirbúningi hjá eignasviði Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1901116

03

Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Halla Soley Jónasdóttir kt. 0408013750 hlýtur ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- vegna EM unglinga á vegum FSÍ 15. til 21. október 2018.

Halla Soley Jónasdóttir kt. 0408013750 hlýtur ferðastyrk að upphæð kr. 20.000,- vegna EM unglinga á vegum FSÍ 15. til 21. október 2018.