Beint í efni

7. fundur

12.02.2019
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

7. fundur

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

í íþróttamiðstöðinni Ásgarði

12.02.2019

Kl. 17:30 - 19:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
  • Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
  • Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - varamaður

Starfsmenn

  • Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
  • Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi

Ritari

  • Kári Jónsson

Eiríkur Björn Björgvinsson sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs Garðabæjar sat fundinn.

Dagskrá

Málsnúmer 1901243

01

Niðurstöður úr mati Dale Carnegie

Unnur Magnúsdóttir gerir grein fyrir niðurstöðum úr mati á þjálfun Dale Carnegie haustið 2018.

Unnur Magnúsdóttir gerði grein fyrir niðurstöðum úr mati á þjálfun Dale Carnegie haustið 2018. Fram kom mikil ánægja þátttakenda í námskeiðunum sem haldin eru á haust önn, einu sinni í viku í 8 vikur, 3 til 4 klukkustundir í senn. Námskeiðin eru fyrir öll börn í Garðabæ á aldrinum 13-18 ára og fara fram í Garðaskóla. 30 einstaklingar komast á hvert námskeið og er kynjaskipting jöfn.

Málsnúmer 1705295

02

Erindi frá ungmennaráði

Heimsókn fulltrúa ungmennaráðs til að ræða forvarnarmál og spjalla um málefni sem snúa að ungmennum í Garðabæ. Tómas Þór Jacobsen forstöðumaður Klakans í Sjálandsskóla hefur umsjón með ungmennaráði.

Ágúst Ingi Bragason formaður Ungmennaráðs Garðabæjar ræddi forvarnarmál og lagði áherslu á almenna fræðslu og að byrja hana nógu snemma, eða við 13 ára aldurinn. Lýsti hann ungmennaráð tilbúið til að vinna með bæjaryfirvöldum að hverskonar forvörnum.

Málsnúmer 1902060

03

Styrkumsókn v/leiðtogahæfni stúlkna She Runs

ÍTG samþykkir að veita kr. 100.000,- í þetta verkefni sem ætlað er að þjálfa leiðtogahæfni stúlkna og stuðla að auknu jafnrétti í íþróttum. ÍTG óskar eftir að þátttakendur muni í framhaldinu kynna verkefnið í sveitarfélaginu.

Málsnúmer 1901469

04

Skíðagöngubrautir GKG

Ósk um styrk að upphæð 150.000,- kr til að leggja og viðhalda gönguskíðabautum á golfvelli GKG í vetur.

ÍTG samþykkir að styrkja GKG um kr. 150.000,- til að leggja og viðhalda skíðagöngusporum á golfvallarsvæði GKG í janúar til apríl, eða svo lengi sem snjór er til staðar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1811158

05

Íþróttahátíð Garðabæjar 6.jan 2019

Afreksstyrkir til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar og fræðslustyrkir til þjálfara ársins.

ÍTG samþykkti að styrkja íþróttakarl og íþróttakonu Garðabæjar um kr 100.000,- hvort.

Einnig samþykkti ÍTG fræðslustyrki til þjálfara ársins 2018 um kr. 50.000,- á hvort þeirra.

Málsnúmer 1902029

06

Freydís Halla Einarsdóttir - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

ÍTG samþykkir afreksstyrk til Skíðadeildar Ármanns vegna afreksáætlunar Freydísar Höllu Einarsdóttur skíðakonu að upphæð kr. 200.000,-

Málsnúmer 1902005

07

Irma Gunnarsdóttir - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Irma Gunnarsdóttir 0402982319 frjálsíþróttakona úr Breiðabliki.

ÍTG samþykkir afreksstyrk til Frjálsíþróttadeildar Breiðabliks vegna afreksáætlunar Irmu Gunnarsdóttur fjölþrautarkonu að upphæð kr. 125.000,-

Málsnúmer 1902004

08

Hrönn Harðardóttir -Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Skíðadeild Víkings vegna Hilmars Snæs Örvarssonar svigskíðamanns.

ÍTG samþykkir afreksstyrk til Skíðadeildar Víkings vegna afreksáætlunar Hilmars Snæs Örvarssonar skíðamanns að upphæð kr. 200.000,-

Málsnúmer 1901471

09

Alex Freyr Gunnarsson Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Alex Freyr Gunnarsson 0401934059 dansari Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar

ÍTG samþykkir afreksstyrk til Dansíþróttafélags Hafnarfjarðar vegna afreksáætlunar Alex Freys Gunnarssonar dansara að upphæð kr. 125.000,-

Málsnúmer 1901460

10

Úlfar Jónsson Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

GKG vegna Ragnars Más Garðarssonar Golfara

ÍTG samþykkir afreksstyrk til GKG vegna afreksáætlunar Ragnars Más Garðarssonar golfara að upphæð kr. 125.000,-

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1901459

11

Úlfar Jónsson Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

GKG fyrir Sigurð Arnar Garðarsson golfara

ÍTG samþykkir afreksstyrk til GKG vegna afreksáætlunar Sigurðar Arnar Garðarssonar golfara að upphæð kr. 125.000,-

Málsnúmer 1901458

12

Pétur Fannar Gunnarsson Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Dansfélag Reykjavíkur vegna Péturs Fannars Gunnarssonar dansara

ÍTG samþykkir afreksstyrk til Dansfélags Reykjavíkur vegna afreksáætlunar Péturs Fannars Gunnarssonar dansara að upphæð kr. 160.000,-

Málsnúmer 1901457

13

Björgvin Júníusson Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

UMFÁ vegna úrvalsliða félagsins í blaki karla og kvenna.

Vísað er til afgreiðslu dagskrárliðar númer 15 í þessari fundargerð.

Málsnúmer 1901366

14

Fræðsluerindi/forvarnir Hofsstaðaskóli vorönn 19

Styrkbeiðni vegna fræðsluerinda - Forvarnarmál

ÍTG styður forvarnarverkefni sem þegar eru í gangi en frestar afgreiðslu til næsta fundar meðan unnið er að yfirliti yfir málaflokkinn. Gunnari Richardssyni var falið að taka saman yfirlit yfir erindi og verkefni varðandi forvarnarmál fyrir næsta fund ÍTG.

Málsnúmer 1901349

15

Ósk um aukið fjarframlag til uppbyggingar aðstöðu og íþróttastarfs.

Svar bæjarráðs til UMFÁ varðandi áætlanir um framkvæmdir við íþróttaaðstöðu á Álftanesi.

Svar bæjarráðs við erindi UMFÁ um uppbyggingu aðstöðu og íþróttastarfs á Álftanesi kynnt.

ÍTG samþykkir að veita UMFÁ styrk að upphæð kr. 3.000.000 til reksturs meistaraflokkanna í blaki á yfirstandandi keppnistímabili. ÍTG óskar eftir að fulltrúar félagsins komi í lok yfirstandandi keppnistímabils og geri grein fyrir starfsemi blakdeildarinnar, rekstri meistaraflokkanna ásamt tilraunum og framtíðaráætlunum deildarinnar á barna- og unglingastarfi. Í framhaldinu verði rekstrarsamningurinn við UMFÁ skoðaður.

Málsnúmer 1901326

16

Íbúakönnun - þjónustukönnun 2018

Málið rætt í ljósi niðurstöðu málaflokka er varða ÍTG, en einnig útfrá þjónustu við íbúa almennt.

Málsnúmer 1901448

17

Pétur Fannar Gunnarsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Pétur Fannar Gunnarsson kt. 0402982159 B landslið U21 á United Kingdon Open Championship, 17.janúar 2019 í Englandi

ÍTG samþykkir ferðastyrk til Péturs Fannars Gunnarssonar dansara að upphæð kr. 20.000,- vegna U21 DSÍ á United Kindon Open Championship í Englandi 19. janúar 2019.