Beint í efni

Ósk um aukið fjarframlag til uppbyggingar aðstöðu og íþróttastarfs.

Málsnúmer 1901349

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

7. fundur

Svar bæjarráðs til UMFÁ varðandi áætlanir um framkvæmdir við íþróttaaðstöðu á Álftanesi.

Svar bæjarráðs við erindi UMFÁ um uppbyggingu aðstöðu og íþróttastarfs á Álftanesi kynnt.
ÍTG samþykkir að veita UMFÁ styrk að upphæð kr. 3.000.000 til reksturs meistaraflokkanna í blaki á yfirstandandi keppnistímabili. ÍTG óskar eftir að fulltrúar félagsins komi í lok yfirstandandi keppnistímabils og geri grein fyrir starfsemi blakdeildarinnar, rekstri meistaraflokkanna ásamt tilraunum og framtíðaráætlunum deildarinnar á barna- og unglingastarfi. Í framhaldinu verði rekstrarsamningurinn við UMFÁ skoðaður.

Bæjarráð Garðabæjar

02

4. (1865). fundur

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir viðræðum við forsvarsmenn UMFÁ þar sem meðal annars var rætt um uppbyggingu og endurbætur á íþróttaaðstöðu á Álftanesi.

Bæjarráð vísar bréfinu til fræðslu- menningarsviðs og til meðferðar við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020. Bæjarstjóra falið að svara bréfinu.

Fylgiskjöl