Beint í efni

Samningar við félög til undirritunar 2018

Málsnúmer 1804250

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

4. fundur

Samningur við Skátafélagið Svani. Heimsókn skátaforingja þeirra til ÍTG.

Jóhanna Aradóttir félagsforingi, Aðalbjörg Elín Halldórsdóttir gjaldkeri og Arnór Bjarki Svarfdal mættu á fundinn og kynntu starf skátafélagsins Svana. Skátafélagið gerði grein fyrir þeirri hugmynd sinni að halda þrettándabrennu í stað áramótabrennu. Einnig óskaði félagið eftir að fyrirkomulag 17. júní hátíðarhaldanna sem og verkaskipting milli skátafélaganna við undirbúning og framkvæmd yrði gerð skýrari. Svanir óska eftir að undirritun samstarfssamnings vegna ársins 2018 verði kláruð en vilja ræða hækkun vegna ársins 2019.

ÍTG gerir ekki athugasemdir við að haldin verði þrettándabrenna á Álftanesi og mun í vor ræða við bæði skátafélögin um skipulag og framkvæmd 17. júní hátíðarhaldanna.