Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýri.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
45. (1860). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar vegna lóðar fyrir fjölnota íþróttahús verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
15. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts og Vetrarmýrar að lokinni kynningu sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir fljölnota íþróttahúss sem er 97 x 149 metrar að ummáli og 23 m að hæð. Kynningin stóð frá 24.október til 5.desember. Engar athugasemdir hafa borist. Lagðar fram umsagnir sem borist hafa vegna tilögunnar ásamt umsögnum sem bárust vegna tilkynningar til Skipulagsstofnunar vegna mats á umhverfisáhrifum framkvæmdar. Umsagnir kalla ekki á efnislegar breytingar á tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
43. (1858). fundur
Bæjarstjóri kynnti drög að umsögn þar sem niðurstaðan er að framkvæmd við fjölnota íþróttahús í Vetrarmýri hafi ekki í för með sér umtalsverð neikvæð umhverfisáhrif og sé því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að umsögn og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
4. fundur
ÍTG fagnar byggingu nýs fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri og gerir ekki athugasemd við auglýsta dsk br.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
05
6. fundur
Skipulagsstjóri kynnti tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar vegna fjölnota íþróttahús sem er í kynningu. Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
14. (836). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar vegna staðsetningar fjölnota íþróttahúss. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
07
37. (1852). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar vegna staðsetningar fjölnota íþróttahúss. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
12. fundur
Sigurður Einarsson arktitekt kynnti tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts og Vetrarmýrar. Um er að ræða lítilega breytta tillögu frá þeirri tillögu sem vísað var til auglýsingar sl vor. Eftir samráðsfundi með Skipulagsstofnun var ljóst að fyrri tillaga hefði kallað á aðalskipulagsbreytingu á þessu stigi. Því er ný tillaga lögð fram sem telst í samræmi við aðalskipulag. Byggingarreitur fjölnota íþróttahúss færist til norðurs að Hnoðraholti og auk þess er ekki gert ráð fyrir byggingarreitum fyrir aðliggjandi íþróttahúsum í framlagðri breytingartillögu en gert er ráð fyrir að þeir verði skilgreindir í þeim rammahluta aðalskipulags sem nú er unnið að.
Sigurður gerði ennfremur grein fyrir þeim hugmyndum sem unnið er að varðandi breytingum á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem verður sett fram sem rammahluti aðalskipulags og nær til Hnoðraholts, Vetrarmýrar og Vífilsstaða.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
10. fundur
Tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts og Vetrarmýrar lögð fram að lokinni auglýsingu sem fram fór 11. júní til 27. ágúst. Lagðar fram umsagnir og athugasemdir sem borist hafa vegna tillögunnar.
Skipulagsstjóri og bæjarverkræðingur gera grein fyrir fundi með Skipulagsstofnun vegna umsagnar stofnunarinnar. Tillögunni vísað til frekari skoðunar hjá tækni- og umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
10
29. (1844). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
Fylgiskjöl
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
11
1. fundur
Kynning á deildiskipulagi vegna byggingar á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri.
Deiliskipulagsbreyting Hnoðraholts og Vetrarmýrar kynnt og rætt um undirbúning á byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýrinni.
Umhverfisnefnd Garðabæjar
12
1. fundur
Þráinn Hauksson frá Landslagi kynnti deiliskipulagsbreytingar.
Bæjarstjórn Garðabæjar
13
8. (830). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs við afgreiðslu tillögunnar og gerði grein fyrir atkvæði sínu. María situr hjá við afgreiðslu tillögunnar.
Bæjarráð Garðabæjar
14
16. (1831). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 um breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar. Tillagan skal auglýst samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
15
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts og Vetrarmýrar. Tillagan gerir ráð fyrir íþróttamannvirkjum sem staðsett verða nyrst og vestast í Vetrarmýri.
A. Fjölnota íþróttahús með rými fyrir knattspyrnuvöll í fullri stærð auk upphitunaraðstöðu í plani við hann.
B. Tengi- og þjónustubygging sem getur tengt saman þau íþróttamannvirki.
C. Íþróttahús (parkethús) sem rúmar 2 samliggjandi löglega handknattleiksvelli og þ.a.l. 2 körfuboltavelli, ásamt áhorfendasvæðum.
D. Óskilgreint íþróttamannvirki, t.d. sundlaug, skautahöll eða tennishöll.
Markmið deiliskipulagsbreytingarinnar eru:
a) Að skapa umgjörð um raunhæfa og framsýna lausn á íþróttasvæði í góðum tengslum við byggð og samgöngur.
b) Að helstu rými Íþróttamannvirkjanna njóti dagsbirtu í eins ríkum mæli og aðstæður leyfa.
c) Að hafa umhverfismál og sjálfbærni að leiðarljósi.
d) Að skapa öruggt og líflegt almenningsumhverfi, m.a. með opnum og lifandi jarðhæðum þar sem því verður við komið.
e) Að móta skjólsæl rými.
f) Að byggja upp öruggt umferðarkerfi þar sem sérstök áhersla er lögð á liðugt flæði gangandi og hjólandi umferðar og tengingar við nærliggjandi svæði.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
16
6. fundur
Skipulagsráðgjafateymi, Sigurður Einarsson arkitekt, Jóhanna Helgadóttir skipulagsfræðingur og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt kynntu drög að lýsingu aðalskipulagsbreytingar sem nær til Vífilsstaðalands (Hnoðraholt, Vífilsstaðir, Smalaholt, Rjúpnahæð. Drögin gera ráð fyrir því að svæðið verði skilgreint sem rammahluti Aðalskipulags og fái ferli sem slíkt. Áherslur skipulagsbreytingarinnar verði´m.a.sátt við nálæga náttúru, raunhæf áfangaskiptin, framsýn og fjölbreytni íþróttasvæðis, fyrsta flokks golfvöllur, fjölbreytt húsagerð og búsetuform.
Lögð fram drög að deiliskipulagsbreytingu á gildandi deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.