Beint í efni

8. (830). fundur

17.05.2018
Bæjarstjórn Garðabæjar

8. (830). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

17.05.2018

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Auk þess sat fundinn Gunnar Einarsson, bæjarstjóri.

Jóna Sæmundsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 3. maí 2018 er lögð fram.

Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og ræddi framlagða bókun og málefni Strætó bs.

María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi sama mál.

Halldór Jörgensson, kvaddi sér hljóðs og vakti athygli á misritun á eftirnafni sínu í fundargerð.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og spurði um afgreiðslu tiltekins mál sem sent var bæjarstjórn en hefur ekki verið tekið fyrir.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri svaraði fyrirspurn og útskýrði málið.

Guðrún Elín Herbertsdóttir. kvaddi sér hljóðs að nýju.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi afgreiðslu tiltekins máls.

Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs að nýju og lagði fram eftirfarandi bókun.

"Undirbúningur að innkaupum á akstri almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu hófst í maí 2014. Fyrir lá að þáverandi aksturssamningum lyki í ágúst 2016.
Í ágúst 2014 var samþykkt að fara svokallaða samningskaupaleið og var þá ráðist í gerð innkaupagagna. Á fundi stjórnar í maí 2015 voru innkaupagögn samþykkt og samningskaupin formlega auglýst í kjölfarið á evrópska efnahagssvæðinu. Í júlí 2015 lá fyrir að tveir aðilar höfðu óskað eftir þátttöku í útboðinu og voru þeir báðir metnir hæfir til þátttöku í samningskaupum. Haldnir voru fundir með báðum aðilum á fjórum stigum samningskaupaferlisins og lauk fjórða stigi þess við móttöku endanlegra lausna og verðtilboða í nóvember 2015. Í matsnefndinni sem annaðist viðræður við bjóðendur sátu, auk lykilstjórnenda Strætó, lögmaður frá Innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar og aðkeyptur ráðgjafi.
Í miðju þessu ferli barst Strætó bs. formleg tilkynning frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, í kjölfar endurskoðunar ráðuneytisins á reglum um virðisaukaskatt og ferðaþjónustu, um að kaup Strætó á akstri af þriðja aðila yrðu virðisaukaskattskyld þann 1. janúar 2016. Á móti gæti sá aðili fengið endurgreiddan innskatt af aðföngum vegna þjónustunnar. Strætó gat brugðist við þessari breyttu stöðu í samningskaupaferlinu og voru boðin verð þátttakenda því með virðisaukaskatti í samræmi við þá túlkun.
Þann 10. desember 2015, eftir að samningskaupaferlinu var lokið, gaf ríkisskattstjóri út það álit að aðkeypt akstursþjónusta, eins og sú sem Strætó hafði nýlokið samningskaupum um, skyldi vera undanþegin virðisaukaskatti. Var það álit í andstöðu við áður útgefna yfirlýsingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Þar með lá fyrir að Strætó væri ekki heimilt að greiða reikninga fyrir umrædda þjónustu með virðisaukaskatti. Þessi breytta staða leiddi einnig til þess að fyrirtækin tvö fengju heldur ekki endurgreiddan innskatt af aðföngum vegna þjónustunnar eins og þau höfðu reiknað með í verðum sínum.
Í ljósi þessarar breyttu stöðu var óskað eftir viðræðum við báða samningsaðila Strætó um farsæla lausn málsins og að fundin yrði sanngjörn og eðlileg breyting á verðum, án virðisaukaskatts. Þeim viðræðum lauk í mars 2016 með samkomulagi við fyrirtækin tvö um meðallækkun sem nam um 2,1% frá tilboðum með virðisaukaskatti. Hafði þá verið tekið tillit til þess að allur kostnaður fyrirtækjanna tveggja hækkaði við það að þau fengju ekki endurgreiddan innskatt af aðföngum vegna þjónustunnar eins og þau höfðu reiknað með í verðum sínum með virðisaukaskatti.
Að mati matsnefndar var þetta sanngjörn lausn á málinu og var gengið frá viðaukasamningum við báða aðilana í maí 2016 á grundvelli þessarar niðurstöðu."

María Grétarsdóttir kvaddi sér hljóðs og vildi að fram kæmi að hún hafi beðið um staðfestingu frá ríkisskattstjóra á framsettum útskýringum stjórnenda Strætó að hækkun samninganna megi rekja til þess að innskattur á gjaldareikningum skuli nú ekki frádráttabærir til skatts hjá undirverktökum (þ.e. Hópferðum-Kynnisferðum og Hagvögnum), en ekki fengið. Óskað er eftir slíkri staðfestingu frá ríkisskattstjóra.

Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs að nýju

María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs að nýju.

Dagskrá

Málsnúmer 1805007F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 8/5 ´18.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 22 tl., fyrirspurn Bjartrar framtíðar um framkvæmdir við fjölnotasal.

Sturla Þorsteinsson, kvaddi sér hljóðs og spurði um hönnun og framkvæmdir við sundlaugina við Ásgarð.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 22. tl., fyrirspurn Bjartrar framtíðar um framkvæmdir við fjölnotasal og hönnun og framkvæmdir við sundlaugina og svaraði fyrirspurnum.

Sturla Þorsteinson, kvaddi sér hljóðs að nýju og þakkaði fyrir svarið.

Steinþór Einarsson, ræddi hönnun og framkvæmdir við sundlaugina.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi hönnun og framkvæmdir við sundlaugina, 13. tl., val á bæjarlistamanni og 14. tl., úthlutun styrkja úr hvatningarsjóði ungra listamanna. Áslaug Hulda óskaði bæjarlistamanni Garðabæjar og styrkþegum til hamingju með viðurkenningarnar og þakkaði menningar- og safnanefnd fyrir glæslega uppskeruhátíð menningarmála.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi hönnun og framkvæmdir við sundlaugina og gat þess að sérstaklega hafi verið horft til aðgengismála við framkvæmdina.

Almar Guðmundsson, ræddi hönnun og framkvæmdir við sundlaugina og sagði frá störfum starfshóp sem er að skoða möguleika á starfsemi heilsuræktarstöðvar í Ásgarði.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 23. tl., greinargerð starfshóps um fjölnota menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ.

Halldór Jörgensson, ræddi hönnun og framkvæmdir við sundlaugina.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 19. tl., bréf GÓ um rekstrarleyfi fyrir gistiaðstöðu að Bólstað og 20. tl., umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir gististað að Strandvegi 13.

Jóna Sæmundsdóttir ræddi hönnun og framkvæmdir við sundlaugina. Þá ræddi Jóna 13. tl., val á bæjarlistamanni og 14. tl., úthlutun styrkja úr hvatningarsjóði ungra listamanna og tók undir hamingjuóskir til bæjarlistamanns og ungra styrkþega hvatningarsjóðs.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 13. tl., val á bæjarlistamanni og menningaruppskeruhátíð.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 19. tl., bréf GÓ um rekstrarleyfi fyrir gistiaðstöðu að Bólstað og 20. tl., umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir gististað að Strandvegi 13.

Fundargerðin sem er 26 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1805019F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 15/5 ´18.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 15. tl., svar við fyrirspurn um samstarfsamning við Stjörnuna og spurði um afstöðu til þess að hafa ákvæði um að veita systkinaafslátt af æfingagjöldum þegar samningurinn verður endurnýjaður.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 15. tl., svar við fyrirspurn um samstarfsamning við Stjörnuna og svaraði fyrirspurn.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 13. tl., bréf Alþjóðskólans um að breyta bílskúr við Þórsmörk í aðstöðu fyrir kennslu.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 13. tl., bréf Alþjóðskólans um að breyta bílskúr við Þórsmörk í aðstöðu fyrir kennslu og 15. tl., svar við fyrirspurn um samstarfsamning við Stjörnuna og afstöðu til systkinaafsláttar.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 13. tl., bréf Alþjóðskólans um að breyta bílskúr við Þórsmörk í aðstöðu fyrir kennslu og 15. tl., svar við fyrirspurn um samstarfsamning við Stjörnuna og afstöðu til systkinaafsláttar.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 15. tl., svar við fyrirspurn um samstarfsamning við Stjörnuna og afstöðu til systkinaafsláttar. Sturla ræddi að nýju 13. tl., bréf Alþjóðskólans um að breyta bílskúr við Þórsmörk í aðstöðu fyrir kennslu.

Steinþór Einarsson, ræddi 15. tl., svar við fyrirspurn um samstarfsamning við Stjörnuna og afstöðu til systkinaafsláttar.

Áslaug Hulda Jónsdóttir ræddi 15. tl., svar við fyrirspurn um samstarfsamning við Stjörnuna og afstöðu til systkinaafsláttar.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi að nýju 15. tl., svar við fyrirspurn um samstarfsamning við Stjörnuna og afstöðu til systkinaafsláttar.

María Grétarsdóttir ræddi 15. tl., svar við fyrirspurn um samstarfsamning við Stjörnuna og afstöðu til systkinaafsláttar.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi að nýju 15. tl., svar við fyrirspurn um samstarfsamning við Stjörnuna og afstöðu til systkinaafsláttar.

Fundargerðin sem er 22 tl er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1804049F

03

Fundargerð leikskólanefndar frá 8/5 ´18.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1803012F

04

Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara í Garðabæ frá 15/2 ´18.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 3. tl., upplýsingarit fyrir eldir borgara.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1804047F

05

Fundargerð skipulagsnefndar frá 3/5 ´18.

Almar Guðmundsson, ræddi 3. tl., tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts og Vetrarmýrar

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1805009F

06

Fundargerð skipulagsnefndar frá 11/5 ´18.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., nýtt deiliskipulag fyrir Lundahverfi og 2. tl., deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1805004F

07

Fundargerð umhverfisnefndar frá 7/5 ´18.

Jóna Sæmundsdóttir, 1. tl., dreifingu fjölnota taupoka, 2. tl., hreinsunarátak 2018 og 3. tl., náttúrusvæði í Garðabæ starfsárið 2017.

Steinþór Einarsson, ræddi 2. tl., hreinsunarátak 2018.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi að nýju 2. tl., hreinsunarátak 2018.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1801390

08

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 30/4 ´18.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1801146

09

Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 27/4 og 4/5 ´18.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1802055

10

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 4/5 ´18.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., úttekt á rými innan svæðisskipulags undir athafna- og iðnaðarsvæði.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1801175

11

Fundargerð stjórnar SSH frá 7/5 ´18.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 2. tl., skýrslu Alta vegna greiningar á rekstri sameiginlegrar ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1805157

12

Fundargerð stjórnar SHS frá 4/5 ´18.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1801362

13

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 4/5 ´18.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 1. tl., niðurstöður útboðs vegna framkvæmda við byggingu gas- og jarðgerðarstöðvar og 4. tl., viljayfirlýsingu sorpsamlaganna á Suðvesturlandi.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1801172

14

Viljayfirlýsing um uppbyggingu á golfsvæði GKG við Vífilsstaði.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að viljayfirlýsingu um uppbyggingu á golfsvæði GKG við Vífilsstaði. Bæjarstjóri lagði til að bæjarstjórn samþykki framlagða viljayfirlýsingu.

María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs kvaðst sitja hjá við afgreiðslu málsins og gerði grein fyrir afstöðu sinni.

Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi framlagða viljayfirlýsingu.

Sturla Þorsteinsson, kvaddi sér hljóðs og lýsti yfir stuðningi við viljayfirlýsinguna og gerði grein fyrir afstöðu sinni.

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum viljayfirlýsingu Garðabæjar og Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar um uppbyggingu á golfsvæði við Vífilsstaði.

María Grétarsdóttir situr hjá.

Málsnúmer 1801001

15

Tillaga um að veita bæjarráði umboð til að gera leiðréttingar á kjörskrá.

Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði umboð til að taka til meðferðar athugasemdir við kjörskrá vegna kosninga til sveitarstjórnar sem fram eiga að fara 26. maí 2018 og gera viðeigandi leiðréttingar á henni samkvæmt 10. gr. laga um kosningar til sveitarstjórnar nr. 5/1998.

Steinþór Einarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:

Ágæta bæjarstjórn, nú eru tímamót hjá mér, síðasti fundurinn í bæjarstjórn Garðabæjar eftir tólf ára setu. Ég verð að viðurkenna að það kom mér á óvart fyrir fjórum árum, þegar bæjarritari sagði sposkur á svip að ég þyrfti að stjórna fyrsta fundi bæjarstórnar á nýju kjörtímabili, sem elsti starfandi bæjarfulltrúinn. Líklega er það í fyrsta skipti sem einhver annar en fulltrúi Sjálfstæðisflokks stýrir fundi bæjarstjórnar, ég ætla þó ekki að fullyrða það, en meirihlutinn hefur í það minnsta ekki verið viljugur á að dreifa embættum mikið, ekki einu sinni öðrum varaforseta.

Tólf ár er langur tími og engum er hollt að sitja of lengi. Að sitja í bæjarstjórn er krefjandi og tímafrekt, ekki endilega bæjarstjórnarfundirnir, heldur einnig allir aðrir fundir og mannfagnaðir sem þarf nauðsynlega að sinna sem bæjarfulltrúi. Að ógleymdum tímanum sem fer í að kynna sér hin ýmsu mál og samskiptin við bæjarbúa, sem reyndar alltaf hafa verið gefandi og ánægjuleg. Við þetta bætast svo hinir ýmsu fundir og samstarfsverkefni sem við eigum við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu.

Ég hef setið þrjú kjörtímabil, hvert þeirra hefur haft sín einkenni, fyrsta kjörtímabilið voru sjö bæjarfulltrúar og tveir flokkar. Annað kjörtímabilið voru sjö bæjarfulltrúar og þrír flokkar. Núverandi bæjarstjórn er hins vegar skipuð ellefu bæjarfulltrúum og fjórum flokkum. Á þessum þremur kjörtímabilum hef ég starfað með sautján bæjarfulltrúum og töluverðum fjölda varabæjafulltrúa. Þegar ég segi mismunandi einkenni, þá var auðvitað töluverð breyting að fjölga í ellefu bæjarfulltrúa og svo er auðvitað hver bæjarfulltrúi með sinn stíl sem setur svip sinn á starfið.

Mikilvægt er að bæjarstjórn endurspegli raddir bæjarbúa, málefni og verkefni séu rædd og vel ígrunduð, hlustað sé á bæjarbúa og þannig komist að faglegri niðurstöðu. Til að þetta gangi upp þarf bæjarstjórn að endurspegla allt samfélagið en ekki vera einsleit rödd. Aðhald er gott og nauðsynlegt og góð skoðanaskipti leiða yfirleitt til farsælli lausna.

Virðing og formfesta bæjarstjórnar finnst mér persónulega vera mikilvæg. Menn eiga að geta tekist á sem bæjarfulltrúar og haft skiptar skoðanir en glaðst saman sem einstaklingar. Því er mikilvægt að formfesta sé í hávegum höfð, því miður þá finnst mér henni hafa dalað á þessu kjörtímabili og kenni ég um að ekki skuli vera sérstakur bæjarstjórnarsalur til notkunar. Löngu fyrir síðustu kosningar var búið að ákveða að fjölga bæjarfulltrúum og því er með ólíkindum að ekki hafi eftir öll þessi ár verið búið að koma upp viðunandi aðstöðu.

Bæjarstjórnarstarfið hefur verið mér gefandi og lærdómsríkt, ég hef unnið með frábæru fólki og átt gott samstarf við starfsfólk bæjarins. Hjá starfsfólkinu hef ég alltaf fengið alla þá aðstoð sem ég hef þurft á að halda. Samstarfsfélagarnir í bæjarstjórn hafa nær alltaf tekið mínum hugmyndum og tillögum vel og ég tel mig geta verið stoltan af því sem ég hef áorkað og lagt til málanna og verkefnanna hverju sinni. Enda hef ég alltaf haft það að leiðarljósi í allri vinnu, gagnrýni og tillögugerð að ég væri að gera vel fyrir samfélagið og íbúa þess.

Megi samfélaginu í Garðabæ farnast vel, takk fyrir mig.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og þakkaði bæjarfulltrúum gott samsatarf á kjörtímabilinu. Bæjarstjóri beindi orðum sínum sérstaklega til Steinþórs Einarssonar og Guðrúnar Elínar Herbertsdóttur sem nú láta af stöfum sem bæjarfulltrúar.

Jóna Sæmundsdóttir, kvaddi sér hljóðs og beindi orðum sínum til Sturlu Þorsteinssonar sem nú víkur úr bæjarstjórn, Forseti þakkaði Sturlu fyrir samstarfið í bæjarstjórn hlut hans um áraraðir við að efla og bæta samfélagið í Garðabæ.