Greinargerð kjörstjórnar um úrslit kosninganna 26. maí 2018.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (831). fundur
Lögð fram greinargerð yfirkjörstjórnar, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, þar sem lýst er úrslitum kosninga til bæjarstjórnar Garðabæjar sem fram fóru 26. maí 2018.
Bæjarráð Garðabæjar
02
19. (1834). fundur
Bæjarráð samþykkir að gera eftirfarandi leiðréttingar á kjörskrá samkvæmt heimild í 10. gr. laga um kosningar til sveitarstjórnar nr. 5/1998.
Elsa Björk Knútsdóttir, kt. 120558-4399, er skráð á kjörskrá í kördeild VIII í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, sbr. bréf Þjóðskrár Íslands um skráningu lögheimilis, dags. 15. maí 2018.
Egill Friðriksson, kt. 021096-2379, er skráður á kjörskrá í kjördeild I í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, sbr. tilkynningu frá Þjóðskrá Íslands, dags. 24. maí 2018.
Bæjarráð samþykkir að gera leiðréttingar á kjörskrá samkvæmt tilkynningu Þjóðskrár Íslands um andlát fimm einstaklinga eftir viðmiðunardag kjörskrár sem var 5. maí 2018, sbr. 5. gr. laga um kosningar til sveitarstjórnar nr. 5/1998. Þá liggur fyrir vitneskja um andlát eins einstaklings og er kjörskrá leiðrétt með tillit til þess, sbr. ofangreint lagaákvæði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
8. (830). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði umboð til að taka til meðferðar athugasemdir við kjörskrá vegna kosninga til sveitarstjórnar sem fram eiga að fara 26. maí 2018 og gera viðeigandi leiðréttingar á henni samkvæmt 10. gr. laga um kosningar til sveitarstjórnar nr. 5/1998.
Steinþór Einarson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:
Ágæta bæjarstjórn, nú eru tímamót hjá mér, síðasti fundurinn í bæjarstjórn Garðabæjar eftir tólf ára setu. Ég verð að viðurkenna að það kom mér á óvart fyrir fjórum árum, þegar bæjarritari sagði sposkur á svip að ég þyrfti að stjórna fyrsta fundi bæjarstórnar á nýju kjörtímabili, sem elsti starfandi bæjarfulltrúinn. Líklega er það í fyrsta skipti sem einhver annar en fulltrúi Sjálfstæðisflokks stýrir fundi bæjarstjórnar, ég ætla þó ekki að fullyrða það, en meirihlutinn hefur í það minnsta ekki verið viljugur á að dreifa embættum mikið, ekki einu sinni öðrum varaforseta.
Tólf ár er langur tími og engum er hollt að sitja of lengi. Að sitja í bæjarstjórn er krefjandi og tímafrekt, ekki endilega bæjarstjórnarfundirnir, heldur einnig allir aðrir fundir og mannfagnaðir sem þarf nauðsynlega að sinna sem bæjarfulltrúi. Að ógleymdum tímanum sem fer í að kynna sér hin ýmsu mál og samskiptin við bæjarbúa, sem reyndar alltaf hafa verið gefandi og ánægjuleg. Við þetta bætast svo hinir ýmsu fundir og samstarfsverkefni sem við eigum við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu.
Ég hef setið þrjú kjörtímabil, hvert þeirra hefur haft sín einkenni, fyrsta kjörtímabilið voru sjö bæjarfulltrúar og tveir flokkar. Annað kjörtímabilið voru sjö bæjarfulltrúar og þrír flokkar. Núverandi bæjarstjórn er hins vegar skipuð ellefu bæjarfulltrúum og fjórum flokkum. Á þessum þremur kjörtímabilum hef ég starfað með sautján bæjarfulltrúum og töluverðum fjölda varabæjafulltrúa. Þegar ég segi mismunandi einkenni, þá var auðvitað töluverð breyting að fjölga í ellefu bæjarfulltrúa og svo er auðvitað hver bæjarfulltrúi með sinn stíl sem setur svip sinn á starfið.
Mikilvægt er að bæjarstjórn endurspegli raddir bæjarbúa, málefni og verkefni séu rædd og vel ígrunduð, hlustað sé á bæjarbúa og þannig komist að faglegri niðurstöðu. Til að þetta gangi upp þarf bæjarstjórn að endurspegla allt samfélagið en ekki vera einsleit rödd. Aðhald er gott og nauðsynlegt og góð skoðanaskipti leiða yfirleitt til farsælli lausna.
Virðing og formfesta bæjarstjórnar finnst mér persónulega vera mikilvæg. Menn eiga að geta tekist á sem bæjarfulltrúar og haft skiptar skoðanir en glaðst saman sem einstaklingar. Því er mikilvægt að formfesta sé í hávegum höfð, því miður þá finnst mér henni hafa dalað á þessu kjörtímabili og kenni ég um að ekki skuli vera sérstakur bæjarstjórnarsalur til notkunar. Löngu fyrir síðustu kosningar var búið að ákveða að fjölga bæjarfulltrúum og því er með ólíkindum að ekki hafi eftir öll þessi ár verið búið að koma upp viðunandi aðstöðu.
Bæjarstjórnarstarfið hefur verið mér gefandi og lærdómsríkt, ég hef unnið með frábæru fólki og átt gott samstarf við starfsfólk bæjarins. Hjá starfsfólkinu hef ég alltaf fengið alla þá aðstoð sem ég hef þurft á að halda. Samstarfsfélagarnir í bæjarstjórn hafa nær alltaf tekið mínum hugmyndum og tillögum vel og ég tel mig geta verið stoltan af því sem ég hef áorkað og lagt til málanna og verkefnanna hverju sinni. Enda hef ég alltaf haft það að leiðarljósi í allri vinnu, gagnrýni og tillögugerð að ég væri að gera vel fyrir samfélagið og íbúa þess.
Megi samfélaginu í Garðabæ farnast vel, takk fyrir mig.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og þakkaði bæjarfulltrúum gott samsatarf á kjörtímabilinu. Bæjarstjóri beindi orðum sínum sérstaklega til Steinþórs Einarssonar og Guðrúnar Elínar Herbertsdóttur sem nú láta af stöfum sem bæjarfulltrúar.
Jóna Sæmundsdóttir, kvaddi sér hljóðs og beindi orðum sínum til Sturlu Þorsteinssonar sem nú víkur úr bæjarstjórn, Forseti þakkaði Sturlu fyrir samstarfið í bæjarstjórn hlut hans um áraraðir við að efla og bæta samfélagið í Garðabæ.
Bæjarráð Garðabæjar
04
17. (1832). fundur
Bæjarritari lagði fram eintak af kjörskrá fyrir Garðabæ vegna kosninga til sveitarstjórnar sem fram eiga að fara 26. maí 2018. Á kjörskrá eru samtals 11.598 kjósendur. Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ er fjöldi kjósenda 9.539 og í Álftanesskóla 2.059. Kjósendum hefur fjölgað um 1150 frá síðustu kosningum til sveitarstjórnar 2014. Bæjarráð staðfestir með vísan til 7. gr. laga um kosningar til sveitarstjórnar nr. 5/1998, kjörskrá Garðabæjar til að gilda við kosningar til sveitarstjórnar sem fram eiga að fara laugardaginn 26. maí 2018. Kjörskráin skal auglýst og liggja frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar í Ráðhúsinu við Garðatorg frá 16. maí nk. til kjördags.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
7. (829). fundur
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi fulltrúa í hverfiskjörstjórn á Álftanesi.
Sigþrúður Ármann, formaður, Hraunhólum, 23, Lúðvík Hjalti Jónsson, Lindarflöt 27, Andrés Sigurðsson,Hólmatún 31
Bæjarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi fulltrúa í undirkjörstjórnir.
Anna Lena Halldórsdóttir, Hallakri 2b, Anna Margrét Halldórsdóttir, Kríunesi 14, Anna R. Möller, Strandvegur 12, Ásgeir Örn Sigurpálsson, Skógarhæð 6, Bjarni Jónsson, Ásbúð 8,
Daníel Jósefsson, Kjarrmóum 39, Davíð Halldórsson, Bæjargili 17, Davíð Ó Sigurbergsson, Lyngmóum 7, Dóra Viðarsdóttir, Seinakri 1, Dóra Þórisdóttir, Espilundi 10, Erna Björk Ásbjörnsdóttir, Kjarrmóum 39, Fanney Óskarsdóttir, Steinási 4, Guðmunda Inga Gunnarsdóttir, Strandvegur 10, Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir, Lindarflöt 50, Guðrún Helga Sigurðardóttir, Löngufit 12, Guðrún Jónsdóttir, Krókamýri 76, Gunnhildur Eva Arnoddsóttir, Hagaflöt 4, Gunnsteinn Geirsson, Hagaflöt 4, Halla Þórisdóttir, Heiðarlundi 21, Helga G. Sigurðardóttir, Bæjargili 29, Herdís Jónsdóttir, Hæðarbyggð 5, Herdís Sigurbergsdóttir, Línakri 3, Hildur Benediktsdóttir, Gimli, Hilmar Kristjánsson, Kjarrmóum 10, Hilmar Þór Sigurjónsson, Kríunesi 3, Íris Rut Erlingsdóttir, Furuási 2, Katrín Halldórsdóttir, Einilundi 7, Kristjana Kjartansdóttir, Línakri 1, Kolbrún Sigmundsdóttir, Hofakri 3, Margrét Sæmundsdóttir, Brekkubyggð 33, Ólöf Ásta Ólafsdóttir, Ásbúð 8, Ragnheiður Stephensen, Löngumýri 57, Sigríður Anna Ásgeirsdóttir, Bæjargili 126, Sigríður Dís Guðjónsdóttir, Löngulínu 19, Sigrún Helga Pétursdóttir, Löngumýri 59, Skarphéðinn Jónsson, Strandvegur 10, Snædís Björnsdóttir, Nónhæð 2, Sunna G. Sigurðardóttir, Smáraflöt 49, Vala Dröfn Hauksdóttir, Móaflöt 37, Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir, Hörgslundi 17, Anna Kristmundsdóttir, Asparholti 1, Auður Björgvinsdóttir, Hrísmóum 9, Guðfinna Dröfn Aradóttir, Hólmatúni 8, Guðríður Eyvindardóttir, Hólmatúni 43, Hildur Katla Guðmundsdóttir, Vesturtúni 18, Hjördís Jóna Gísladóttir, Hólmatúni 31, Katrín Jónína Gunnarsdóttir, Birkiholti 6, Kristín Rós Björnsdóttir, Sjávargötu 22, Sigríður Rósa Magnúsdóttir, Arnarási 6, Sæunn Eiríksdóttir, Strandvegi 26.
Bæjarráð Garðabæjar
06
14. (1829). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu kjörstjórnar um fjölgun kjördeilda í FG úr sjö í átta.