9. (831). fundur
9. (831). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
21.06.2018
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Guðfinnur Sigurvinsson - varamaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Valborg Ösp Á. Warén - varamaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðrikssson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Gunnar Valur Gíslason, sem er aldursforseti þeirra sem eiga að baki lengsta setu í bæjarstjórn setti fund. Gunnar Valur bauð bæjarfulltrúa velkomna til fyrsta fundar nýkjörinnar bæjarstjórnar Garðabæjar fyrir kjörtímabilið 2018 - 2022 og óskaði þeim til hamingju með kjör þeirra til bæjarstjórnar. Gunnar Valur færði fyrrum bæjarfulltrúum þakkir fyrir þeirra störf í þágu samfélagsins og þakkaði þeim samstarfið.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 17. maí 2018 er lögð fram.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og þakkaði bæjarbúum traust í garð bæjarfulltrúa í kosningunum í vor og hvatti bæjarfulltrúa til að vinna saman í góðum anda til hagsmuna fyrir Garðbæinga. Sigríður Hulda vakti athygli á viðburðum framundan en HM útsending verður á Garðatorgi og þá verður Jónsmessuhátíð Grósku í kvöld.
Dagskrá
Málsnúmer 1801001
01
Greinargerð kjörstjórnar um úrslit kosninganna 26. maí 2018.
Lögð fram greinargerð yfirkjörstjórnar, sbr. 2. mgr. 95. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998, þar sem lýst er úrslitum kosninga til bæjarstjórnar Garðabæjar sem fram fóru 26. maí 2018.
Málsnúmer 1806155
02
Kosning forseta bæjarstjórnar og 1. og 2. varaforseta til eins árs
Tillaga kom fram um Gunnar Val Gíslason, sem forseta bæjarstjórnar til eins árs. Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (GVG,SHJ,SG,AG,JS,BF,GE,GGS). Þrír sitja hjá (SDS,HÞ,VÖW).
Gunnar Valur þakkaði bæjarfulltrúum traustið og hvatti þá til góðra verka og samstöðu um framgang mikilvægra mála fyrir samfélagið í Garðabæ.
Tillaga kom fram um Sigurð Guðmundsson, sem fyrsta varaforseta. Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (GVG,SHJ,SG,AG,JS,BF,GE,GGS). Þrír sitja hjá (SDS,HÞ,VÖW).
Tillögur komu fram um Jónu Sæmundsdóttur og Söru Dögg Svanhildardóttur, sem 2. varaforseta. Átta bæjarfulltrúar greiddu Jónu atkvæði (GVG,SHJ,SG,AG,JS,BF,GE,GGS) en þrír greiddu Söru Dögg atkvæði. (SDS,HÞ,VÖW).
Málsnúmer 1806154
03
Ráðning bæjarstjóra
Gunnar Valur Gíslason, lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að ráða Gunnar Einarsson í starf bæjarstjóra Garðabæjar kjörtímabilið 2018 - 2022.
Formanni bæjarráðs er falið að ganga frá skriflegum ráðningarsamningi við bæjarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin, sbr. 2. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga.
Samningurinn skal lagður fyrir bæjarráð til staðfestingar."
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn leggur til að laun bæjarstjóra taki mið af almennum ráðherralaunum að undanskildum forsætisráðherra. Það skiptir máli að um starfskjör bæjarstjóra ríki sátt. Í allri umræðu um laun og kjör í samfélaginu slær skökku við að Garðabær taki sér stöðu gegn almennri launaþróun í landinu með launum bæjarstjóra. Enn fremur sitja bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans hjá við afgreiðslu liðar um ráðningu bæjarstjóra þar sem Garðabæjarlistinn hefði kosið ópólitískt ráðinn bæjarstjóra."
Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (GVG,SHJ,SG,AG,JS,BF,GE,GGS). Þrír sitja hjá.(SDS,HÞ,VÖW).
Málsnúmer 1806152
04
Kosning nefnda til eins árs
Bæjarráð fimm aðalmenn
Aðalmenn:
Áslaug Hulda Jónsdóttir, formaður, Sigríður Hulda Jónsdóttir, varaformaður, Sigurður Guðmundsson, Almar Guðmundsson, Ingvar Arnarson.
Varamenn taka sæti í bæjarráði í þeirri röð sem þeir skipa sama lista og aðalfulltrúar.
Málsnúmer 1806153
05
Kosning nefnda til tveggja ára
a. Stjórn Sorpu bs.
Aðalmaður:
Jóna Sæmundsdóttir
Varamaður:
Sigurður Guðmundsson
b. Stjórn Strætó bs
Aðalmaður:
Björg Fenger
Varamaður:
Kjartan Örn Sigurðsson
Málsnúmer 1806151
06
Kosning fastanefnda til fjögurra ára
a. Fjölskylduráð
Aðalmenn:
Almar Guðmundsson, formaður, Bjarni Th. Bjarnason, Sigþrúður Ármann, Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir.
Varamenn:
Eymundur Einarsson, Kristinn Guðlaugsson, Kristín Einarsdóttir, Margrét Íris Baldursdóttir, Harpa Þorsteinsdóttir.
b. Íþrótta- og tómstundaráð
Aðalmenn:
Björg Fenger, formaður, Þorri Geir Rúnarsson, Stefanía Magnúsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Guðjón Pétur Lýðsson.
Varamenn:
Þorsteinn Júlíusson, Steinunn Vala Sigfúsdóttir, Ómar R. Valdimarsson, Ragnar Árnason, Hannes Ingi Geirsson.
c. Kjörstjórn
Aðalmenn:
Þóra Margrét Hjaltested, Jóhann Steinar Ingimundarson, Snævar Sigurðsson.
Varamenn:
Finnur Magnússon, Hrafnhildur Helgadóttir, Bjarni Jón Jónsson.
Kjörstjórn er kjörin samkvæmt 14. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 og samkvæmt 7. mgr. sömu greinar skal kjörstjórn stýra kosningum til sveitarstjórnar og Alþingis. Kjörstjórn kýs sér sjálf formann.
d. Leikskólanefnd
Aðalmenn:
Kristjana Sigursteinsdóttir, formaður, María Guðjónsdóttir, Torfi Geir Símonarson, Guðlaugur Kristmundsson, Valborg Ösp Á Wáren.
Varamenn:
Andrea Róbertsdóttir, Magnús Kristinn Einarsson, Gyða Dan Johansen, Fanney Hanna Valgarðsdóttir, Snævar Sigurðsson.
e. Mannréttinda og forvarnanefnd
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi tillögu.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að leggja niður mannréttinda- og forvarnanefnd. Það hlutverk sem nefndin hefur haft færist til íþrótta- og tómstundaráðs og eftir atvikum til fjölskylduráðs. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að hlutast til um að gera viðhlítandi breytingar á samþykkt um stjórn Garðabæjar.
Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (GVG,SHJ,SG,AG,JS,BF,GE,GGS). Þrír sitja hjá (SDS,HÞ,VÖW).
f. Menningar- og safnanefnd
Aðalmenn:
Gunnar Valur Gíslason, formaður, Hrannar Bragi Eyjólfsson, Bjarndís Lárusdóttir, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Hannes Ingi Geirsson.
Varamenn:
Þorgerður Anna Arnardóttir, Jóel Ísak Jóelsson, Laufey Arnalds Johansen, Guðlaugur Kristmundsson, Sara Dögg Svanhildardóttir.
g. Nefnd um málefni eldri borgara
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi tillögu.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að leggja niður nefnd um málefni eldri borgara. Það hlutverk sem nefndin hefur haft færist til fjölskylduráðs og eftir atvikum til annarra nefnda. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að hlutast til um að gera viðhlítandi breytingar á samþykkt um stjórn Garðabæjar.
Valborg Ösp Á Warén, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn leggur til að ef fyrrgreindar nefndir verða lagðar niður að þá flytjist fulltrúi Garðabæjarlistans inn í þær nefndir sem málefni nefndanna falla undir í þágu lýðræðislegrar umræðu sem og til að undirstrika vilja allra í bæjarstjórn að efla enn frekar lýðræðisleg vinnubrögð. Hér er átt við fjölskylduráð og íþrótta og tómstundaráð."
Tillagan samþykkt með átta atkvæðum (GVG,SHJ,SG,AG,JS,BF,GE,GGS). Þrír sitja hjá (SDS,HÞ,VÖW).
h. Skipulagsnefnd
Aðalmenn:
Sigurður Guðmundsson, formaður, Lúðvík Örn Steinarsson, Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir, Stella Stefánsdóttir, Baldur Ó. Svavarsson.
Varamenn
Kjartan Örn Sigurðsson, Viktoría Jensdóttir, Jóhann Jónsson, Anna Lilja Johansen, Guðjón Pétur Lýðsson.
i. Skólanefnd grunnskóla
Aðalmenn:
Sigríður Hulda Jónsdóttir, formaður, Jóhann Steinar Ingimundarson, Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, Sturla Þorsteinsson, Sara Dögg Svanhildardóttir.
Varamenn:
Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir, Sófus Gústafsson, Kristrún Mjöll Frostadóttir, Kjartan Vídó Ólafsson, Valborg Ösp Á Wáren.
j. Skólanefnd tónlistarskóla
Aðalmenn:
Eiríkur Þorbjörnsson, formaður, Einar Örn Magnússon, Sigrún Gísladóttir, Sólveig Guðrún Geirsdóttir, Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir,
Varamenn:
Unnur Johnsen, Berglind Birgisdóttir,Steinunn Bergmann, Ingvar Arnarson, Sara Dögg Svanhildardóttir.
k. Umhverfisnefnd
Aðalmenn:
Jóna Sæmundsdóttir, formaður, Guðfinnur G. Sigurvinsson, Hrönn Hallgrímsdóttir, Páll Magnús Pálsson, Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir.
Varamenn:
Bryndís Kristinsdóttir, Halldór Halldórsson, Jón Þór Guðjónsson, Sigríður Finnbjörnsdóttir, Gunnar Hólmsteinn Ársælsson.
l. Stjórn Hönnunarsafns Íslands
Aðalmenn:
Stella Stefánsdóttir, formaður, Kristín Björgvinsdóttir, Guðlaugur Kristmundsson.
Varamenn:
Gunnar Valur Gíslason, Áslaug Hulda Jónsdóttir, Sólveig Guðrún Geirsdóttir
Málsnúmer 1806150
07
Kosning í samstarfsnefndir
a. Almannavarnarnefnd
Aðalmenn:
Gunnar Einarsson, Áslaug Hulda Jónsdóttir.
Varamenn:
Sigríður Hulda Jónsdóttir, Sigurður Guðmundsson.
b. Samstarfsnefnd um skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins.
Aðalmaður:
Björg Fenger.
Varamaður:
Gunnar Einarsson.
c. Fulltrúaráð Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Aðalmenn:
Almar Guðmundsson, Jóna Sæmundsdóttir, Sigríður Hulda Jónsdóttir, Sara Dögg Svanhildardóttir.
d. Heilbrigðisnefnd
Aðalmaður:
Ingibjörg Hauksdóttir.
Varamaður:
Jón Bjarni Þorsteinsson.
e. Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins
Aðalmenn:
Sigurður Guðmundsson.
Harpa Þorsteinsdóttir.
f. Stjórn Hjálparsjóðs Garðasóknar
Aðalmaður:
Einar Farestveit.
Varamaður:
Almar Guðmundsson.
g. Stjórn Reykjanesfólkvangs
Aðalmaður:
Jóna Sæmundsdóttir.
Varamaður:
Guðfinnur G. Sigurvinsson.
h. Stjórn SSH
Aðalmaður:
Gunnar Einarsson.
Varamaður:
Áslaug Hulda Jónsdóttir.
i. Stjórn SHS
Aðalmaður:
Gunnar Einarsson.
Varamaður:
Áslaug Hulda Jónsdóttir.
j. Þjónustuhópur aldraðra
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri lagði fram eftirfarandi tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa til bæjarráðs að skipa fulltrúa í þjónustuhóp aldraðra að fenginni tilnefningu viðkomandi aðila samkvæmt 7. gr. laga um málefni aldraðra nr. 7/1999.
Tillagan samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1806112
08
Kosning fulltrúa á landsþing Sambands ísl. sveitarfélaga 2018-2022
Aðalmenn:
Áslaug Hulda Jónsdóttir, Sigríður Hulda Jónsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Gunnar Valur Gíslason, Ingvar Arnarson.
Varamenn:
Jóna Sæmundsdóttir, Almar Guðmundsson, Björg Fenger, Guðfinnur G. Sigurvinsson, Sara Dögg Svanhildardóttir.
Málsnúmer 1806001F
09
Fundargerð bæjarráðs frá 5/6´18.
Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1805038F
10
Fundargerð bæjarráðs frá 29/5´18.
Fundargerðin sem er 1 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1805035F
11
Fundargerð bæjarráðs frá 25/5´18.
Fundargerðin sem er 8 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1805029F
12
Fundargerð bæjarráðs frá 22/5´18.
Afgreiðsla mála.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um útgáfu á framkvæmdaleyfi fyrir reiðveg frá Kjóavöllum um Grunnuvatnaskarð að Vatnsásvegi sem er í samræmi við deiliskipulag Heiðmerkur og Sandahlíðar.
Fundargerðin sem er 15 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1806004F
13
Fundargerð fjölskylduráðs frá 7/6´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1805027F
14
Fundargerð fjölskylduráðs frá 18/5´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1805024F
15
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 16/5´18.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl., afreiðslu styrks úr 19. júní sjóði. Sigurður kynnti hugmynd um að leysa sjóðinn upp og ráðstafa innstæðu til kvennaíþrótta í Garðabæ.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1805020F
16
Fundargerð mannréttinda- og forvarnarnefndar frá 16/5´18.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., tillögu um að ráðstafa hluta arðgreiðslu frá Lánsjóði sveitarfélaga til forvarnarmála.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi almennt um mikilvægi forvarnamála.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1805015F
17
Fundargerð nefndar um málefni eldri borgara frá 8/5´18.
Almar Guðmundsson, ræddi 1. tl., upplýsingarit fyrir eldri borgara og 2. tl., stefnu í málefnum eldri borgara - aðgerðaráætlun.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl. upplýsingarit fyrir eldri borgara.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., upplýsingarit fyrir eldri borgara og sagði frá hátíðarstund í síðustu viku í tilefni af 25 ára afmæli félags eldri borgara í Garðabæ.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1805017F
18
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 14/5´18.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., ungt fólk og lýðræði 2018 og 2. tl., þróunarsjóð 2018 - yfirlit yfir úthlutun 2015-2018.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., þróunarsjóð 2018 - yfirlit yfir úthlutun 2015-2018.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1805022F
19
Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla frá 16/5´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1805036F
20
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 25/5´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1804032F
21
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 18/4´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1712013F
22
Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 6/12´17.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801175
23
Fundargerð stjórnar SSH frá 4/6´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1802195
24
Fundargerðir samstarfsnefndar skíðasvæða frá 9/5´18.
Björg Fenger, ræddi 1. tl., samkomulag um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801362
25
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 23/5´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801146
26
Fundargerðir stjórnar Strætó bs frá 18/5´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1801390
27
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 28/5´18.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1806201
28
Tillaga Garðabæjarlistans um systkina- og fjölgreinaafslátt.
Harpa Þorsteinsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
"Garðabæjarlistinn leggur til að settur verði á laggirnar starfshópur til að skoða hvernig systkina- og fjölgreinaafslætti er háttað í nágrannasveitarfélögum. Starfshópurinn skoðar sérstaklega kostnað og útfærslur. Starfshópurinn leggur fram hugmyndir um hvernig best sé fyrir íþróttafélög í Garðabæ að innleiða systkina- og fjölgreinaafslátt og með hvaða hætti Garðabær geti stutt við þá innleiðingu. Starfshópinn skipa einn frá Garðabæjarlistanum, einn frá Sjálfstæðisflokki, einn frá Stjörnunni, einn frá UMFÁ og íþróttafulltrúi Garðabæjar. Starfshópurinn skilar sínum hugmyndum fyrir 30. september 2018. Garðabæjarlistinn leggur til að stefnt verði að því að innleiða systkina- og fjölgreinaafslátt hjá íþróttafélögum í Garðabæ í janúar 2019."
Greinagerð
Með systkinaafslætti er stigið mikilvægt skref í að minnka útgjöld barnafjölskyldna í bæjarfélaginu og er það í takt við fjölskylduvænar áherslur. Ávinningur þess að koma á systkinaafslætti felur auk þess í sér að tryggja að öll börn hafi sem jafnastan aðgang að íþrótta- og tómstundaiðkun ásamt því að fá aukin tækifæri til þess að prufa fleiri greinar. Mikilvægt er að farið verði í að leita leiða í samningaviðræðum við Stjörnuna og UMFÁ um útfærslur á systkinaafslætti á æfingagjöldum frá 5-18 ára aldurs. Í samanburði við nágrannasveitarfélögin þá er Garðabær eftirbátur nágrannasveitarfélaga hvað varðar systkinaafslætti og jafnframt eru æfingagjöld í hærra lagi. Það er því ljóst að með þessari breytingu myndi létta á útgjöldum barnafjölskyldna að verulegu leyti. Útfærsla systkinaafsláttar eru með ýmsu móti, í nágrannasveitarfélögum er afsláttur á bilinu 10-15%, útfærður á mismunandi vegu og því mikilvægt að koma á samræmi á milli íþróttafélaga innan sveitafélagsins hvað þetta mál varðar.
Björg Fenger, ræddi framkomna tillögu.
Gunnar Einarson, bæjarstjóri, ræddi framkomna tillögu og lagði til að vísa henni til bæjarráðs.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu um systkina- og fjölgreinaafslátt til bæjarráðs.
Málsnúmer 1806200
29
Tillaga Garðabæjarlistans um fjölgun fulltrúa í nefnd.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
"Garðabæjarlistinn leggur til að hlutfall nefndarfulltrúa milli meirihluta og minnihluta verði endurskoðað í ljósi þeirrar niðurstöðu sem fékkst með því að beita reiknireglunni d’Hondt. Niðurstaðan leiðir til mikils lýðræðishalla þar sem fjöldi nefndarmanna sem hvor listi fær er ekki í samræmi við hlutfallslega skiptingu atkvæða.
Í samræmi við jákvæðar vísbendingar frá bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks varðandi áhuga á lýðræðislegri vinnubrögðum og vegna áherslna Garðabæjarlistans á virkara lýðræði er hér lagt til að tekið verði mið af hlutfallslegri skiptingu atkvæða milli framboðanna tveggja þegar raðað verður í nefndir og bæjarráð. Þannig fái Sjálfstæðisflokkurinn úthlutað 4 fulltrúum í hverja nefnd og bæjarráð og Garðabæjarlistinn tveimur fulltrúum í hverja nefnd og í bæjarráð. Enn fremur er lagt til að formaður nefnda hafi tvöfalt atkvæðavægi svo enginn vafi liggi á hvar meirihlutinn liggur enda gengur tillagan fyrst og fremst út á aukið vægi lýðræðislegrar umræðu í nefndum og ráðum bæjarstjórnar Garðabæjar."
Greinargerð
Við búum við meirihlutalýðræði þar sem meirihlutinn ræður. Að virkja lýðræðið enn frekar getur verið til hagsbóta og eftirbreytni fyrir samfélagið allt. Með þessari tillögu Garðabæjarlistans er lögð áhersla á aukið lýðræði í samskiptum fulltrúa bæjarstjórnar í öllum nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Aukið lýðræði kallar á aukið samráð. Með fjölgun fulltrúa í nefndum og bæjarráði þannig að Garðabæjarlistinn skipi tvo fulltrúa í hverri nefnd á móti fjórum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins sjáum við fyrir okkur mikið framfara skref í auknu samtali og viðurkenningu á lýðræðislegri vinnubrögðum þar sem lýðræðið fær raunverulega aukið vægi á starfsvettvangi bæjarfulltrúa Garðabæjar.
Sigurður Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.
Guðfinnur G. Sigurvinsson, ræddi framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.
Almar Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.
Gunnar Einarson, bæjarstjóri, ræddi framkomna tillögu.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu að nýju.
Framkomin tillaga felld með átta atkvæðum (GVG,SHJ,SG,AG,JS,BF,GE,GGS). Þrír greiddu atkvæði með tillögunni (SDS,HÞ,VÖW).
Málsnúmer 1710169
30
Niðurstöður matsnefndar um byggingu fjölnota íþróttahús.
Gunnar Valur Gíslason, vék af fundi með vísan til reglna um hæfi bæjarfulltrúa til meðferðar og afgreiðslu mála. Sigurður Guðmundsson, varaforseti tók við stjórn fundarins.
Björg Fenger kvaddi sér hljóðs og gerði nánari grein fyrir vinnu matsnefndar og niðurstöðum nefndarinnar í alútboði um byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.
Harpa Þorsteinsdóttir, kvaddi sér hljóðs um niðurstöður matsnefndar og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Garðabæjarlistinn hefði viljað sjá raunverulega valkosti fyrr í ferlinu þar sem íbúum hefði verið gefinn kostur á að kjósa á milli tveggja valkosta. Annars vegar þann kost sem hér er til umfjöllunar og hins vegar um ódýrari leið sem þó mætti ávallt þeim skorti á aðstöðu til æfinga. Hér er um gríðarlega mikla fjármuni að ræða og Garðabæjarlistinn telur afar mikilvægt að um framkvæmdina ríki sátt í samfélaginu."
Almar Guðmundsson, ræddi niðurstöðu matsnefndar.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju niðurstöðu matsnefndar.
Björg Fenger, ræddi að nýju niðurstöðu matsnefndar.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju niðurstöðu matsnefndar.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi niðurstöðu matsnefndar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu matsnefndar um að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda ÍAV á grundvelli tilboðs félagsins, ákvæða alútboðsgagna og niðurstöðu matsnefndar um það sem betur má fara í tillögu bjóðanda.
Bæjarstjórn samþykkir jafnframt að láta fara fram mat á áhrifum fjárfestingarinnar á fjárhag bæjarins samkvæmt 66. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Málsnúmer 1707051
31
Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2018.
Gunnar Valur Gíslason, tók við stjórn fundarins að nýju.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði tillögu um lántöku á fjárhæð kr. 400.000.000 hjá Lánasjóði sveitarfélaga sem tryggt verði með veði í tekjum sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn Garðabæjar, kt. 570169-6109 samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 400.000.000, með lokagjalddaga þann 05.04.2034, í samræmi við skilmála að lánssamningi sem liggur fyrir á fundinum og sem bæjarstjórnin hefur kynnt sér.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið m.a. til byggingar Urriðaholtsskóla og endurnýjunar á sundlaug Garðabæjar sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Tillaga um lántöku að fjárhæð kr. 400.000.000 hjá Lánasjóði sveitarfélaga er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1806149
32
Sumarleyfi bæjarstjórnar 2018.
Með vísan til 14. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 svo og 8. gr. samþykktar um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 samþykkir bæjarstjórn að fella niður reglulega fundi í sumarleyfi bæjarstjórnar í júlí og til 16. ágúst 2018. Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarleyfi verður boðaður með dagskrá sem send verður bæjarfulltrúum 14. ágúst 2018.
Bæjarstjórn samþykkir að veita bæjarráði fullt umboð til afgreiðslu mála meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, svo sem mælt er fyrir um í 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga.