Beint í efni

Tillaga Garðabæjarlistans um fjölgun fulltrúa í nefnd.

Málsnúmer 1806200

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. (831). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

"Garðabæjarlistinn leggur til að hlutfall nefndarfulltrúa milli meirihluta og minnihluta verði endurskoðað í ljósi þeirrar niðurstöðu sem fékkst með því að beita reiknireglunni d’Hondt. Niðurstaðan leiðir til mikils lýðræðishalla þar sem fjöldi nefndarmanna sem hvor listi fær er ekki í samræmi við hlutfallslega skiptingu atkvæða.
Í samræmi við jákvæðar vísbendingar frá bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks varðandi áhuga á lýðræðislegri vinnubrögðum og vegna áherslna Garðabæjarlistans á virkara lýðræði er hér lagt til að tekið verði mið af hlutfallslegri skiptingu atkvæða milli framboðanna tveggja þegar raðað verður í nefndir og bæjarráð. Þannig fái Sjálfstæðisflokkurinn úthlutað 4 fulltrúum í hverja nefnd og bæjarráð og Garðabæjarlistinn tveimur fulltrúum í hverja nefnd og í bæjarráð. Enn fremur er lagt til að formaður nefnda hafi tvöfalt atkvæðavægi svo enginn vafi liggi á hvar meirihlutinn liggur enda gengur tillagan fyrst og fremst út á aukið vægi lýðræðislegrar umræðu í nefndum og ráðum bæjarstjórnar Garðabæjar."

Greinargerð
Við búum við meirihlutalýðræði þar sem meirihlutinn ræður. Að virkja lýðræðið enn frekar getur verið til hagsbóta og eftirbreytni fyrir samfélagið allt. Með þessari tillögu Garðabæjarlistans er lögð áhersla á aukið lýðræði í samskiptum fulltrúa bæjarstjórnar í öllum nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Aukið lýðræði kallar á aukið samráð. Með fjölgun fulltrúa í nefndum og bæjarráði þannig að Garðabæjarlistinn skipi tvo fulltrúa í hverri nefnd á móti fjórum fulltrúum Sjálfstæðisflokksins sjáum við fyrir okkur mikið framfara skref í auknu samtali og viðurkenningu á lýðræðislegri vinnubrögðum þar sem lýðræðið fær raunverulega aukið vægi á starfsvettvangi bæjarfulltrúa Garðabæjar.

Sigurður Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.

Guðfinnur G. Sigurvinsson, ræddi framkomna tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi framkomna tillögu.

Almar Guðmundsson, ræddi framkomna tillögu.

Gunnar Einarson, bæjarstjóri, ræddi framkomna tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu að nýju.

Framkomin tillaga felld með átta atkvæðum (GVG,SHJ,SG,AG,JS,BF,GE,GGS). Þrír greiddu atkvæði með tillögunni (SDS,HÞ,VÖW).