Beint í efni

Tillaga um systkina- og fjölgreinaafslátt

Málsnúmer 1806201

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

1. fundur

Formaður ÍTG ásamt oddvita Garðabæjarlistans eru boðaðar í næstu viku á kynningarfund hjá Stjörnunni um hvernig staðið er að málum varðandi verðskrár og afsláttarkjör til iðkenda. Rætt um að hitta önnur félög á næstu vikum þar sem verðskrár og afsláttarkjör verða m.a. rædd.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

10. (832). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

03

22. (1837). fundur

Bæjarráð vísar tillögunni til umfjöllunar íþrótta- og tómstundaráðs.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

9. (831). fundur

Harpa Þorsteinsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

"Garðabæjarlistinn leggur til að settur verði á laggirnar starfshópur til að skoða hvernig systkina- og fjölgreinaafslætti er háttað í nágrannasveitarfélögum. Starfshópurinn skoðar sérstaklega kostnað og útfærslur. Starfshópurinn leggur fram hugmyndir um hvernig best sé fyrir íþróttafélög í Garðabæ að innleiða systkina- og fjölgreinaafslátt og með hvaða hætti Garðabær geti stutt við þá innleiðingu. Starfshópinn skipa einn frá Garðabæjarlistanum, einn frá Sjálfstæðisflokki, einn frá Stjörnunni, einn frá UMFÁ og íþróttafulltrúi Garðabæjar. Starfshópurinn skilar sínum hugmyndum fyrir 30. september 2018. Garðabæjarlistinn leggur til að stefnt verði að því að innleiða systkina- og fjölgreinaafslátt hjá íþróttafélögum í Garðabæ í janúar 2019."

Greinagerð
Með systkinaafslætti er stigið mikilvægt skref í að minnka útgjöld barnafjölskyldna í bæjarfélaginu og er það í takt við fjölskylduvænar áherslur. Ávinningur þess að koma á systkinaafslætti felur auk þess í sér að tryggja að öll börn hafi sem jafnastan aðgang að íþrótta- og tómstundaiðkun ásamt því að fá aukin tækifæri til þess að prufa fleiri greinar. Mikilvægt er að farið verði í að leita leiða í samningaviðræðum við Stjörnuna og UMFÁ um útfærslur á systkinaafslætti á æfingagjöldum frá 5-18 ára aldurs. Í samanburði við nágrannasveitarfélögin þá er Garðabær eftirbátur nágrannasveitarfélaga hvað varðar systkinaafslætti og jafnframt eru æfingagjöld í hærra lagi. Það er því ljóst að með þessari breytingu myndi létta á útgjöldum barnafjölskyldna að verulegu leyti. Útfærsla systkinaafsláttar eru með ýmsu móti, í nágrannasveitarfélögum er afsláttur á bilinu 10-15%, útfærður á mismunandi vegu og því mikilvægt að koma á samræmi á milli íþróttafélaga innan sveitafélagsins hvað þetta mál varðar.

Björg Fenger, ræddi framkomna tillögu.

Gunnar Einarson, bæjarstjóri, ræddi framkomna tillögu og lagði til að vísa henni til bæjarráðs.

Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi framkomna tillögu.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu um systkina- og fjölgreinaafslátt til bæjarráðs.