1. fundur
1. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
17.08.2018
Kl. 17:00 - 18:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - aðalmaður
- Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Jónsdóttir - aðalmaður
- Guðjón Pétur Lýðsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Fyrsti fundur ÍTG á kjörtímabilinu 2018 til 2022
Dagskrá
Málsnúmer 1805271
01
Brynjar Bogi Valdimarsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
KKÍ U-15 Cöpenhagen-norðurlandamót Danmörk 14-17.júni 2018
ÍTG samþykkir að veita Brynjari Boga Valdimarssyni ferðastyrk að upphæð 20.000,-
Málsnúmer 1805291
02
Friðrik Anton Jónsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
U16 körfubolti, Evrópumót Bosnía 7/8- 19/8 2018
ÍTG samþykkti á fundi sínum 17. ágúst sl. að veita Friðriki Antoni Jónssyni ferðastyrk að upphæð 20.000,-
Málsnúmer 1805292
03
Friðrik Anton Jónsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
U16 körfubolti Norðurlandamót Finnlandi 26/6 2018- 3/7 2018
ÍTG samþykkti á fundi sínum 17. ágúst sl. að veita Friðriki Antoni Jónssyni ferðastyrk að upphæð 20.000,- (styrkur 2).
Málsnúmer 1805309
04
Magnús Helgi Lúðvíksson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
KKÍ U-16, Evrópumót í Sarajevo í ágúst 2018
ÍTG samþykkti á fundi sínum 17. ágúst sl. að veita Magnúsi Helga Lúðvíkssyni ferðastyrk að upphæð 20.000,-
Málsnúmer 1805310
05
Magnús Helgi Lúðvíksson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
KKÍ U16, Norðurlandamót, Finnlandi 26 juni
ÍTG samþykkti á fundi sínum 17. ágúst sl. að veita Magnúsi Helga Lúðvíkssyni ferðastyrk að upphæð 20.000,- (2. ferðastyrkur)
Málsnúmer 1708469
06
Reiðskóli fyrir fatlað fólk
Hestamannafélagið Hörður hefur um nokkurt skeið boðið upp á reiðnámskeið fyrir fatlað fólk, aðallega börn, en þó einnig fyrir fullorðna. Hestamannafélagið Hörður er fyrsta félagið á Íslandi sem býður upp á slík námskeið. Námskeiðin byrjuðu árið 2010 í samstarfi við Hestamennt, reiðskóla Berglindar Ingu Árnadóttur.
Mjög góð aðstaða fyrir fatlaða er hjá hestamannafélaginu Herði, bæði hvað varðar aðkomu að Reiðhöllinni í Mosfellsbæ, þar sem námskeiðin eru haldin, sem og að komast á bak hestunum.
Sem fyrsta skrefið í að stofna reiðskóla fyrir fatlaða á Stór-Reykjavíkursvæðinu, boðar hestamannafélagið Hörður til kynningarfundar á starfsemi reiðskóla fyrir fatlað fólk, mánudaginn 11. september kl. 15:00-16:00.
Erindi Hestamannafélagsins Harðar var lagt fyrir til kynningar og nefndarfólk hvatt til að kynna sér það starf sem fram fer hjá þeim fyrir fatlaða einstaklinga.
Málsnúmer 1806030
07
Samstarf um heilsueflingu við FEBG
ÍTG tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í bréfi FEBG um mikilvægi þeirra forvarna sem felast í þjálfunartengdri heilsueflingu þar sem skipulögð hreyfing kemur í stað kyrrsetu og telur áhugavert að kannaðir séu nánar möguleikar á umræddu samstarfi. Samþykkt að leita til Janusar Guðlaugssonar til að fá kynningu á verkefninu og upplýsingar um leiðir til að efla heilsurækt og vellíðan meðal eldri íbúa Garðabæjar.
Íþróttafulltrúa falið að leita til Janusar til að fá kynningu fyrir ÍTG og fjölskylduráð.
Málsnúmer 1807047
08
Forgangsmarkmið samþykkt vegna heimsmarkmiðanna
Kynning á heimsmarkmiðum SÞ um lýðheilsu.
Markmiðin eru yfirmarkmið heilsueflandi samfélags í Garðabæ.
Tillögur verkefnastjórnar að forgangsröðun heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem ríkisstjórn Íslands samþykkti nýlega kynnt en aðkoma sveitarstjórna verður rædd nánar á landsþingi sveitarfélaga. Rætt um að markmið heilsueflandi samfélags í Garðabæ samræmist alheimsmarkmiðum Sameinuðuþjóðanna.
Málsnúmer 1804130
09
Hnoðraholt og Vetrarmýri, dsk br v. fjölnota íþróttahúss
Kynning á deildiskipulagi vegna byggingar á fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri.
Deiliskipulagsbreyting Hnoðraholts og Vetrarmýrar kynnt og rætt um undirbúning á byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýrinni.
Málsnúmer 1806424
10
FEBG v/bocciakeppni á Landsmóti UMFÍ
Umsókn um styrk vegna bocciakeppni á Landsmóti UMFÍ á Sauðárkróki 13. júlí 2018
Samþykkt var að greiða keppnisgjald þátttakenda í bocciakeppninni á Landsmóti UMFÍ. ÍTG fagnar þeim mikla krafti sem er í íþrótta- og tómstundastarfi FEBG.
Málsnúmer 1806201
11
Tillaga um systkina- og fjölgreinaafslátt
Formaður ÍTG ásamt oddvita Garðabæjarlistans eru boðaðar í næstu viku á kynningarfund hjá Stjörnunni um hvernig staðið er að málum varðandi verðskrár og afsláttarkjör til iðkenda. Rætt um að hitta önnur félög á næstu vikum þar sem verðskrár og afsláttarkjör verða m.a. rædd.
Málsnúmer 1710153
12
Aldarafmæli sjálfstæðis og fullveldis Íslands
Tilmæli um að minnast fullveldis Íslands í tengslum við viðburði á vegum íþrótta- og tómstundaráðs á árinu kynnt nefndarmönnum.