Reiðskóli fyrir fatlað fólk
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
1. fundur
Hestamannafélagið Hörður hefur um nokkurt skeið boðið upp á reiðnámskeið fyrir fatlað fólk, aðallega börn, en þó einnig fyrir fullorðna. Hestamannafélagið Hörður er fyrsta félagið á Íslandi sem býður upp á slík námskeið. Námskeiðin byrjuðu árið 2010 í samstarfi við Hestamennt, reiðskóla Berglindar Ingu Árnadóttur.
Mjög góð aðstaða fyrir fatlaða er hjá hestamannafélaginu Herði, bæði hvað varðar aðkomu að Reiðhöllinni í Mosfellsbæ, þar sem námskeiðin eru haldin, sem og að komast á bak hestunum.
Sem fyrsta skrefið í að stofna reiðskóla fyrir fatlaða á Stór-Reykjavíkursvæðinu, boðar hestamannafélagið Hörður til kynningarfundar á starfsemi reiðskóla fyrir fatlað fólk, mánudaginn 11. september kl. 15:00-16:00.
Erindi Hestamannafélagsins Harðar var lagt fyrir til kynningar og nefndarfólk hvatt til að kynna sér það starf sem fram fer hjá þeim fyrir fatlaða einstaklinga.
Fjölskylduráð Garðabæjar
02
7. fundur
Tekið er fyrir mál nr. 1708469 erindi frá bæjarráði Garðabæjar þar sem vísað er til kynningar í fjölskylduráði bréfi Hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ með upplýsingum um starfsemi reiðskóla fyrir fatlað fólk. Lagt fram og rætt.
Bæjarráð Garðabæjar
03
33. (1799). fundur
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í fjölskylduráði og íþrótta- og tómstundaráði.