33. (1799). fundur
33. (1799). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
05.09.2017
Kl. 08:00 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1707051
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 (2018-2021) - forsendur og verkferlar.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2. Fjármálastjóri gerði grein fyrir forsendum og verkferlum við undirbúning fjárhagsáætlunar. Gert er ráð fyrir að fyrri umræða verði í bæjarstjórn 2. nóvember og síðari umræða 7. desember.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1605502
02
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 - málaflokkayfirlit janúar - júní.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2. Fjármálastjóri gerði grein fyrir yfirliti um rekstur málafokka tímabilið janúar - júní 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1708461
03
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um Samgönguþing 2018, dags. 29.08.17.
Málsnúmer 1708469
04
Bréf Hestamannafélagsins Harðar um reiðskóla fyrir fatlað fólk, ódags.
Bæjarráð vísar bréfinu til kynningar í fjölskylduráði og íþrótta- og tómstundaráði.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1708473
05
Bréf Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskerta um túlkaþjónustu, dags. 30.08.17.
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til fjölskyldusviðs og fræðslu- og menningarsviðs og felur sviðsstjórum afgreiðslu þess með hliðsjón af atburðum eða tilvikum hverju sinni.
Bæjarráð vísar beiðni um styrk til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1708471
06
Bréf Héraðsdóms Reykjaness varðandi boðun í þinghald um dómkvaðningu matsmanns, dags. 28.08.17.
Í bréfinu er gerð grein fyrir beiðni um dómkvaðningu matsmanns til að skoða og meta hljóðvist (hávaða) frá veitingastaðnum Mathúsi Garðabæjar.
Bæjarráð felur Andra Árnasyni, hrl. að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1708476
07
Bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi beiðni um að úrskurðað verði um byggingarleyfisskyldu framkvæmda í bæjargarði, dags. 30.08.17.
Málsnúmer 1706224
08
Bréf Landslaga varðandi framkvæmdir í Hörpulundi 6, dags. 30.08.17.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1709018
09
Tilkynning um sölu hesthúss við Suðurnesveg vegna ákvæðis um forkaupsrétt.
Bæjarráð samþykkir að falla frá forkaupsrétti og felur bæjarstjóra afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 1708451
10
Bréf Náttúrufræðistofnunar Íslands varðandi útgáfu á riti um mikilvæg fuglasvæði á Íslandi, dags. 24.08.17.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar og umhverfisnefndar.