Beint í efni

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 - viðauki 12.

Málsnúmer 1605502

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

49. (1815). fundur

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 12 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Samningur við Skátafélagið Vífil kr. 5.000.000 Ýmsir bókhaldslyklar
Samningur við UMFÁ kr. 2.800.000 06-621-44990
Sorphreinsun og endurvinnslustöðvar kr. 14.400.000 08-210-4945
Kosningar til Alþingis kr. 1.166.000 21-150
Eignasjóður - innri leiga kr. 1.134.000 Ýmsir bókhaldslyklar
Útsvar - staðgreiðsla (hækkun) kr. 24.200.000 000-10-0021

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

49. (1815). fundur

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir stöðu helstu framkvæmda samkvæmt framkvæmdaáætlun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

19. (821). fundur

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 10 og 11 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 10 - sumarátak vegna vinnu ungs fólks og langtímaveikindi.
Sumarátak kr. 26.000.000
Langtímaveikindi kr. 20.000.000
Hækkun staðgreiðslu útsvars kr. 46.000.000

Viðauki 11 - kaup á félagslegu húsnæði.
Kaup á fasteign (eignfærsla) kr. 32.500.000
Greiðsla - lækkun á handbæru fé kr. 3.228.836
Langtímalán kr. 29.271.164

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagða tillögu.

Bæjarráð Garðabæjar

04

46. (1812). fundur

Á fundi bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og sat hann fundinn undir dagskrárliðum 1, 2 og 3. Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðaukum nr. 10 og 11 við fjárhagsáætlun Garðabæjar árið 2017. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 10 og 11 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 10 - sumarátak vegna vinnu ungs fólks og langtímaveikindi.

Sumarátak kr. 26.000.000
Langtímaveikindi kr. 20.000.000
Hækkun staðgreiðslu útsvars kr. 46.000.000

Viðauki 11 - kaup á félagslegu húsnæði.

Kaup á fasteign (eignfærsla) kr. 32.500.000
Greiðsla - lækkun á handbæru fé kr. 3.228.836
Langtímalán kr. 29.271.164

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

16. (818). fundur

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Um er að ræða viðauka vegna hækkun launa vegna kjarasamninga, nýbúakennslu og kaupa á námsgögnum.

Flataskóli kr. 14.600.000
Garðaskóli kr. 10.900.000
Hofsstaðaskóli kr. 9.700.000
Sjálandsskóli kr. 7.700.000
Álftanesskóli kr. 6.400.000
Tónlistarskóli Garðabæjar kr. 7.400.000
Námsvistargjöld (Alþjóðaskólinn) kr. 9.000.000
Skólaskrifstofa vegna námsgagna kr. 12.500.000
Skólaskrifstofa vegna nýbúa kr. 5.300.000
Samtals kostnaður kr. 83.500.000

Kostnaðarauka skal mætt með eftirfarandi hætti:
Urriðaholtsskóli lækkun áætlunar kr. -40.000.000
Jöfnunarsjóður vegna nýbúa kr. -2.800.000
Jöfnunarsjóður vegna fjármálafyrirtækja kr. -26.700.000
Hækkun staðgreiðslu útsvars kr. -14.000.000
Samtals kr. -83.500.000

Bæjarráð Garðabæjar

06

38. (1804). fundur

Á fundi bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun Garðabæjar a´rið 2017.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Um er að ræða viðauka vegna hækkun launa vegna kjarasamninga, nýbúakennslu og kaupa á námgögnum.

Flataskóli kr. 14.600.000
Garðaskóli kr. 10.900.000
Hofsstaðaskóli kr. 9.700.000
Sjálandsskóli kr. 7.700.000
Álftanesskóli kr. 6.400.000
Tónlistarskóli Garðabæjar kr. 7.400.000
Námsvistargjöld (Alþjóðaskólinn)kr. 9.000.000
Skólaskrifstofa vegna námsgagna kr. 12.500.000
Skólaskrifstofa vegna nýbúa kr. 5.300.000
Samtals kostnaður kr. 83.500.000

Kostnaðarauka skal mætt með eftirfarandi hætti:
Urriðaholtsskóli lækkun áætlunarkr. -40.000.000
Jöfnunarsjóður vegna nýbúa kr. -2.800.000
Jöfnunarsjóður vegna fjármálafyrirtækja kr. -26.700.000
Hækkun staðgreiðslu útsvars kr. -14.000.000
Samtals kr. -83.500.000

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

07

33. (1799). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir dagskrárliðum 1 og 2. Fjármálastjóri gerði grein fyrir yfirliti um rekstur málafokka tímabilið janúar - júní 2017.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

08

28. (1794). fundur

Á fundinn mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir málaflokkayfirliti fyrir tímabilið janúar - apríl og svaraði fyrirspurnum um einstaka liði.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

09

25. (1791). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tillögum að viðaukum 6-8 við fjárhagsáætlun 2017.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2017 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 6 kr. 64.766.000 Vegna samnings við Hrafnistu um rekstur Ísafoldar.
Viðauki 7 kr. 4.000.000 Hækkun gjaldskrár vegna greiðslna til dagforeldra.
Viðauki 7 kr 5.000.000 Hækkun gjaldskrár vegna stuðningsfjölskyldna.
Viðauki 8 kr. 63.000.000 Hækkun framlags Jöfnunarsjós vegna málflokks fatlaðs fólk.
Viðauki 8 kr. 10.766.000 Lækkun á handbæru fé í árslok 2017.

Bæjarráð Garðabæjar

10

23. (1789). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingu á reglum um greiðslur til dagforeldra með gildistíma frá 01.03.2017.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

10. (812). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 800.000.000 að nafnvirði, verðtryggt með 3,04% vöxtum. Skuldabréf verða útgefin rafrænt og skráð á NASDAQ OMX (Kauphöll Íslands), með stækkun á áður útgefnum skuldabréfaflokki, sem auðkenndur er GARD 16 01, sbr. útgáfulýsingu, dags. 7. apríl 2016.

Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 (2018-2020) sem samþykkt var í bæjarstjórn 1. desember 2016.

Bæjarráð Garðabæjar

12

20. (1786). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum í lántöku.

Alls bárust tilboð upp á 1.850 milljónir að nafnvirði á kröfubilinu 2,95-3,14%.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að heimila bæjarstjóra að semja um lántöku í allt að fjárhæð kr. 800.000.000 verðtryggt með 3,04 % vöxtum. Skuldabréf verða útgefin með stækkun á áður útgefnum flokki GARD 16 01.

Bæjarráð Garðabæjar

13

17. (1783). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum frá Arion banka og Íslandsbanka í umsýslukostnað vegna lántöku samkvæmt skuldabréfaútboði.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Arion banka og felur bæjarstjóra að leita samninga við bankann um verkefnið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

14

8. (810). fundur

Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að ráðstafa hluta af arðgreiðslu bæjarins, af hlut sínum í Lánasjóði sveitarfélaga, til verkefnis eða verkefna í forvarnarmálum í þágu ungs fólks í Garðabæ.“

Greinargerð:
Arðgreiðsla Garðabæjar af hlut sínum í Lánasjóði sveitarfélaga, eins og kom fram á aðalfundi sjóðsins á dögunum, er um 17 milljónir króna. Skynsamlegt væri að nota að minnsta kosti hluta þess fjár til forvarna fyrir ungt fólk. Mörg brýn verkefni kæmu til greina, meðal annars verkefni til að vinna með kvíða sem fer vaxandi hjá ungu fólki, notkun snjalltækja og áhrif þeirra á ungt fólk. Verkefnin væri hægt að vinna í samvinnu við aðra aðila, svo sem heilsugæslu Garðabæjar. Fræðslu- og menningarsvið sem kemur mest að starfi með ungu fólki væri falið að koma með tillögur og kostnaðaráætlun að verkefni eða verkefnum fyrir bæjarráð.

Sturla Þorsteinsson, lýsti yfir ánægju með tillöguna og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Samkvæmt samningi um kaup á jörðinni Vífilsstöðum er kaupverð kr. 558.600.000 og um heimild vísast til eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017.

Kaupverð jarðarinnar Vífilsstaðir kr. 558.600.000

Greiðsla við undirritun skv. a-lið 6. gr. samnings kr. 99.300.000
Skuldbinding til allt að 8 ára skv. b og c-lið 6. gr. samnings kr. 459.300.000

Breyting á fjárhagsáætlun
Staðgreiðslu útsvars kr. -99.300.000
Langtímaskuldbinding færð í efnahag kr. 459.300.000

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu bæjarfulltrúa Steinþórs Einarssonar til bæjarráðs.


Fleira ekki gert.
Undirritun á næstu síðu.

Bæjarstjórn Garðabæjar

15

7. (809). fundur

Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2017 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 1 kr. 242.000.000 hækkun launa grunnskólakennara
Viðauki 2 kr. 29.300.000 hækkun launa tónlistarkennara
Viðauki 3 kr. 32.700.000 hækkun launa leikskólakennara
Viðauki 4 kr. (200.000.000) lækkun varasjóðs
Viðauki 4 kr. (104.000.000) hækkun staðgreiðslu útsvars

Bæjarráð Garðabæjar

16

12. (1778). fundur

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun fyrir árið 2017.

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erl. tungumálum kr. 300.000
Félag eldri borgara kr. 400.000
Neytendasamtökin kr. 75.000
Kvennaráðgjöfin kr. 100.000
Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla kr. 150.000
Garðakórinn kr. 300.000
Samtök um kvennaathvarf kr. 400.000
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu kr. 100.000
Stígamót kr. 150.000

Bæjarráð Garðabæjar

17

11. (1777). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir tillögu að viðauka nr. 1-4 við fjárhagsáætlun 2017.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2017 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 1 kr. 242.000.000 Hækkun launa grunnskólakennara
Viðauki 2 kr. 29.300.000 Hækkun launa tónlistarkennara
Viðauki 3 kr. 32.700.000 Hækkun launa leikskólakennara
Viðauki 4 kr. (200.000.000) Lækkun varasjóðs
Viðauki 4 kr. (104.000.000) Hækkun staðgreiðslu útsvars

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

18

5. (1771). fundur

Bæjarverkfræðingur lagði fram og gerði grein fyrir tímasettri framkvæmdaáætlun ársins 2017.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

19

1. (803). fundur

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

20

19. (802). fundur

Halldór Jörgensson, kvaddi sér hljóðs.

Gunnar Einarsson, kvaddi sér hljóðs.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða eftirfarandi tillögu um viðmiðunarfjárhæðir vegna lækkunar á fasteignaskatti elli- og örorkulífeyrisþega.

Einstaklingar með tekjur árið 2015 allt að kr. 4.500.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 3.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 4.800.000.

Hjón með tekjur árið 2015 allt að kr. 5.750.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 12.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.950.000.

Bæjarráð Garðabæjar

21

48. (1765). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga.

Einstaklingar:
Einstaklingar með tekjur árið 2015 allt að kr. 4.500.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald.
Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 3.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 4.800.000.


Hjón:
Hjón með tekjur árið 2015 allt að kr. 5.750.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 12.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.950.000.

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

22

19. fundur

Fjárhagsáætlun Garðabæjar var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 1. desember sl. Farið yfir tölur um menningarmál.

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 1. desember sl. Kynntar voru helstu tölur um menningarmál í áætlun næsta árs. Einnig var farið yfir stöðu fjárhags á þessu ári.

Bæjarstjórn Garðabæjar

23

18. (801). fundur

Lagðar fram til afgreiðslu tillögur að setningu eftirfarandi gjaldskráa.

Gjaldskrá leikskóla
Gjaldskrá tómstundaheimila
Gjaldskrá sorphirðu hækkun
Gjaldskrá taðþróargjalda hækkun
Gjaldskrá bókasafns hækkun
Gjaldskrá sundlauga hækkun

Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og hvatti til þess að ekki komi til hækkunar á gjaldskrá leikskóla og tómstundaheimila.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá leikskóla með níu atkvæðum. Tveir (HJ,GEH) greiddu atkvæði á móti.
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá tómstundaheimila með níu atkvæðum. Tveir (HJ,GEH) greiddu atkvæði á móti.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá sorphirðu.
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá taðþróargjalda.
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá bókasafns.
Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá sundlauga.

Bæjarstjórn Garðabæjar

24

18. (801). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fjallaði um frumvarp að fjárhagsáætlun og lagði fram eftirfarandi tillögur um breytingar við frumvarpið

Jöfnunarsjóður -155.200.000
Útsvar -20.000.000
Fasteignaskattur 15.000.000
Gjaldskrá leikskóla 2,4% hækkun í stað 3,9% 5.300.000
Gjaldskrá tómstundaheimila 2,4% í stað 3,9% 1.000.000
Hvatapeningar hækkun úr 30.000 kr. í 32.000 kr. 5.000.000
Bragalundur, hönnunarkostnaður 2.000.000
Bessastaðasókn samningur v/safnaðarheimilis 6.000.000
Aldraðir, upplýs.rit/stefna 500.000
Sérverkefni vegna skólastjórnunar 5.000.000
Grunnskólar sérverkefni (skipt eftir nemendafjölda) 45.000.000
Grunnskólar sértæk verkefni 5.000.000
Leikskólar, reiknilíkan, forföll 36.665.000
Leikskólar pottur 12.000.000
Stjarnan verðbættur nýr samningur 4.600.000
Stjarnan verkefni/Þróun/nýbreytni 10.000.000
Félagsmiðstöðvarnar Klakinn og Elítan,
forstöðumenn í 100% starf 4.215.000
Strætó/frístundabíll Álftanesi 5.000.000
Framkvæmdir á opnum svæðum 15.000.000
Þátttaka veitna í launum bæjarskrifstofum og tæknideild -8.000.000

Breyting A - sjóður -5.920.000
Rekstrarhagnaður A-sjóðs skv. framlagðri -97.517.000
fjárhagsáætlun
Rekstrarhagnaður A-sjóðs -103.437.000

Þátttaka veitna í launum bæjarskrifstofum og tæknideild 8.000.000
Ísafold framlag til rekstraraðila verði 20 millj. - 20.025.101
(var 40.025.101 hallarekstur)
Samtals A og B -17.945.101

Reikningsskilaleg meðferð hjúkrunarheimilis -67.072.251
Samtals breytingar rekstur -17.945.101
Rekstrarhagnaður skv. framlagðri fjárhagsáætlun -346.099.00

Rekstrarhagnaður A og B 431.116.352

Bæjarstjóri gerði grein fyrir breytingum á tillögu að framkvæmdayfirliti en gert er ráð fyrir að heildarframkvæmdir á árinu 2017 verði 1.690.000.000 sem er hækkun um kr. 40.000.000 frá frumvarpi.

Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs, fjallaði um fjárhagsáætlun og lagði fram eftirfarandi tillögur.

Tillaga:
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela bæjarstjóra að koma á fót verkefni á vegum sumarstarfa ungmenna til að vinna að hreinsun og snyrtingu á gangstéttum og graseyjum í eldri hverfum bæjarins.

Greinargerð:
Víða í eldri hverfum hefur gras af graseyjum vaxið langt inn á gangstéttarnar þannig að þær hafa mjókkað til muna. Í þeim götum þar sem endurnýjun er ekki komin á áætlun gæti fyrsta skrefið verið að hreinsa og þar með breikka gangstéttarnar.

Tillaga:
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að hefja undirbúning við gerð sérstakra hjólastæða við Ásgarð.

Greinargerð:
Þeim fjölgar sem notfæra sér almenningssamgöngur til og frá vinnu og því er góð þjónusta af hálfu bæjarfélagsins að bjóða upp á góða aðstöðu til að geyma reiðhjólin í námunda við aðalstoppistöðina.

Tillaga:Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela bæjarstjóra að koma á starfshópi til að vinna að möguleikum þess að hægt sé að flokka plast og það sé tekið með heimilissorpi.

Greinargerð:
Mikið fellur til af plasti á íslenskum heimilum í dag og er mikilvægt að það sé flokkað til endurvinnslu. Sorpa er með tilraunaverkefni í gangi með Seltjarnarnesbæ um að plast megi fara flokkað í heimilistunnuna. Fleiri sveitarfélög eru farin af stað með lausnir varðandi plastið.

María Grétarsdóttir, ræddi fjárhagsáætlun og lagði fram eftirfarandi bókanir.

Bókun 1:
Alvarlegt ástand mun ríkja í þjóðfélaginu ef ekki nást kjarasamningar við grunnskólakennara. Laun kennara sem kennt hafa í um 20 ár eru í kringum 465 þúsund krónur á mánuði eða sem nemur 42% af þingfararkaupi. Ef kennarar semja um að laun þeirra verði í kringum 60% af þingfararkaupi þá þýðir það um 200 þúsund króna hækkun á mánuði eða 360-400 milljóna króna árlega hækkun fyrir Garðabæ. Í varasjóði núverandi fjárhagsáætlunar eru um 200 milljónir.

Bókun 2:
Bæjarstjóri hefur ítrekað bent minnihlutanum í bæjarstjórn Garðabæjar á að meirihlutinn sé kosinn lýðræðislegri kosningu á fjögurra ára fresti og hann sé því við stjórnvölinn á milli kosninga. Þetta sjónarmið er mjög áberandi við gerð fjárhagsáætlunar þar sem minnihlutinn fær einn fund með meirihlutanum til að koma fram með sín sjónarmið. Nú í ár átti fundurinn að standa í tvo tíma en eftir einn tíma voru fulltrúar meirihlutans farnir að tínast út af fundinum og það áður en nokkur sjónarmið höfðu komið fram frá minnihlutanum.

FÓLKIÐ- í bænum hefur lagt áherslu á miðlæga þjónustu fyrir eldri borgara auk þess sem þeim standi til boða þjónustukort sem líkja má við hvatapeningakerfi unga fólksins. Lögð hefur verið áhersla á að hvatapeningar væru hækkaðir verulega og bent á hvernig fjármagna mætti þær hækkanir. Mikilvægt er að ráðast í gagnsæja stjórnsýslu hið fyrsta og feta þar í fótspor þeirra sveitarfélaga sem eru lengst komin á því sviði. Húsnæðismál ungs fólks þurfa að vera í forgrunni og áhugavert verður að sjá hvort ekki verður hægt að gera bragarbót á þeim málum í Garðabæ á næstu árum.

Fjárhagsáætlun Garðabæjar er fjárhagsáætlun meirihlutans. Bæjarfulltrúar minnihlutans eru ekki þátttakendur í undirbúningsvinnu meirihlutans við gerð fjárhagsáætlunar og hafa enga aðkomu að framkvæmdaáætlun næsta árs eða næstu þriggja ára. Bæjarfulltrúi FÓLKSINS- í bænum mun sitja hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar meirihlutans í bæjarstjórn Garðabæjar.

Halldór Jörgensson ræddi fjárhagsáætlun og lagði fram eftirfarandi bókun.

Björt framtíð leggur áherslu á vönduð vinnubrögð. Því ber að fagna að gögn berist nú fyrr til umsagnar og yfirferðar við gerð fjárhagsáætlunar. Hins vegar er stærsti hluti áætlunarinnar unnin án samráðs við minnihlutann. Þar myndum við vilja sjá breytingu í framtíðinni þannig að allir kjörnir fulltrúar komi að mikilvægu máli eins og gerð fjárhagsáætlunar frá upphafi.
Björt framtíð hvetur meirihluta bæjarstjórnar að tileinka sér starfshætti annarra sveitarfélaga, eins og t.d. Kópavogs, þar sem allir bæjarfulltrúar koma að gerð fjárhags- og framkvæmdaáætlunar.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi fjárhagsáætlun, framkomnar tillögur og bókanir.

Sturla Þorsteinsson, ræddi fjárhagsáætlun, framkomnar tillögur og bókanir.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi fjárhagsáætlun, framkomnar tillögur og bókanir.

María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi fjárhagsáætlun, framkomnar tillögur og bókanir.

Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.

Almar Guðmundsson, ræddi fjárhagsáætlun.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs við afgreiðslu á tillögu um hvatapeninga og lagði fram eftirfarandi bókun.

Það er mikilvægt að í bæjarfélaginu sé starfrækt fjölbreytt og öflugt íþrótta- og tómstundastarf sem öll börn og ungenni í Garðabæ hafi kost á að taka þátt í. Með því að hvatapeningar hækki umfram vísitölu er komið til móts við þetta. Auk þess eru möguleikar við notkun hvatapeninga útvíkkaðir. Iðkendur Stjörnunnar eru mikill meirihluti þeirra sem nýta hvatapeninga. Í endurskoðun á nýjum samstarfssamningi við Stjörnuna sem nú er í vinnslu er lagður grunnur að nýju þróunarverkefni til tveggja ára. Með þessu þróunarverkefni er m.a. horft til þess að gert verði auðveldara fyrir börn og ungenni að æfa fleiri en eina íþróttagrein, mögulega brjóta upp æfingaárið í styttri tímabil og fleira. Með þessu er horft til framtíðar til hagsbóta fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra í Garðabæ.

María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs við afgreiðslu á tillögu um hvatapeninga.

Á fundinum er til afgreiðslu tillaga varabæjarfulltrúa Ingvars Arnarsonar frá síðasta fundi um hækkun hvatapeninga úr kr. 30.000 í kr. 45.000

Afgreiðsla mála

Tillaga um hækkun hvatapeninga í kr. 45.000 er felld með 7 atkvæðum (GVG,ÁHJ,SHJ,SG,JS,AG,SÞ). Fjórir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni (GEH,HJ,SE,MG).

Tillaga um snyrtingu gangstétta samþykkt.

Tillaga um hjólastæði samþykkt.

Tillaga um flokkun sorps samþykkt.

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum framkvæmdayfirlit fjárhagsáætlunar. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum frumvarp að fjárhagsáætlun með framkomnum breytingartillögum sem fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017 og 2018 - 2020. María Grétarsdóttir situr hjá.

Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017- 2020 eru:
Sjá fylgiskjal.

Bæjarstjórn Garðabæjar

25

18. (801). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

26

46. (1763). fundur

Bæjarstjóri kynnti tillögur um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun og tillögur um breytingar gjaldskrám.

Bæjarráð samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun garðabæjar fyrir árin 2017 - 2020 ásamt tillögum að breytingum til síðari umræðu í bæjarstjórn fimmtudaginn 1. desember nk.

Bæjarráð Garðabæjar

27

45. (1762). fundur

Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu við greiningu á gögnum og upplýsingum sem liggja fyrir milli umræðna. Unnið er að samantekt ábendinga frá íbúum sem verður kynnt á fundi bæjarfulltrúa um fjárhagsáætlun 24. nóvember nk.

Bæjarstjórn Garðabæjar

28

17. (800). fundur

Lögð fram eftir farandi tillaga um álagningu útsvars.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2017 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2016 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.“

Tillagan samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

29

17. (800). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu fasteignagjalda.

Fasteignaskattur skal vera 0,23% af fasteignamati íbúða og íbúðarhúsa ásamt lóðarréttindum, erfðafestulanda og jarðeigna, sbr. a-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Fasteignaskattur skal vera 1,65% af öðrum fasteignum, sem metnar eru í fasteignamati, sbr. c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Leigugjald á íbúðarhúsalóðum Garðabæjar skal vera 0,4% af fasteignamati lóðar og er þá ekki nýtt að fullu heimild bæjarins sem er 1,0%, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.
Leigugjald á atvinnuhúsalóðum Garðabæjar skal vera 1,0% af fasteignamati lóðar, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.
Vatnsgjald skal vera 0,11% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. heimild í reglugerð um vatnsveitur.
Aukavatnsskattur skal á árinu 2017 vera 24,9 kr/tonn m.v. BVT í desember 2016 (130,2 stig).
Á Álftanesi skal vatnsgjald vera samkvæmt gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur sem innheimtir vatnsgjald samkvæmt samningi.
Holræsa- og rotþróargjöld skulu vera 0,12% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. samþykkt um fráveitu í Garðabæ nr. 282/2005.
Á Álftanesi skal rotþróargjald vera kr. kr. 28.800.
Sorphreinsigjald skal vera kr. 23.800 á hverja íbúð.
Taðþróargjöld í hesthúsahverfi Andvara skulu vera kr. 283.750 á hvert hús.
Fasteignaskattur og holræsagjald sem tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða skal lækka að teknu tilliti til viðmiðunartekna. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að ákvarða viðmiðunartekjur samkvæmt reglum um lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.
Gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2017 verða 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl 15. maí, 15. júní, 15. júlí 15. ágúst. 15. september og 15. október.

Tillagan samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

30

17. (800). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, kvaddi sér hljóð og lagði til að afgreiðslu á gjaldskrám verði frestað til síðari umræðu og til umfjöllunar í bæjarráði.

Tillagan samþykkt samhljóða.

Bæjarstjórn Garðabæjar

31

17. (800). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

32

17. (800). fundur

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu um hækkun hvatapeninga til afgreiðslu við síðari umræðu í bæjarstjórn um fjárhagsáætlun.

Bæjarráð Garðabæjar

33

44. (1761). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu fasteignagjalda.

Fasteignaskattur skal vera 0,23% af fasteignamati íbúða og íbúðarhúsa ásamt lóðarréttindum, erfðafestulanda og jarðeigna, sbr. a-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Fasteignaskattur skal vera 1,65% af öðrum fasteignum, sem metnar eru í fasteignamati, sbr. c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Leigugjald á íbúðarhúsalóðum Garðabæjar skal vera 0,4% af fasteignamati lóðar og er þá ekki nýtt að fullu heimild bæjarins sem er 1,0%, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.

Leigugjald á atvinnuhúsalóðum Garðabæjar skal vera 1,0% af fasteignamati lóðar, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.

Vatnsgjald skal vera 0,11% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. heimild í reglugerð um vatnsveitur.
Aukavatnsskattur skal á árinu 2016 vera 24,9 kr/tonn m.v. BVT í júní 2016 (138,1 stig).
Á Álftanesi skal vatnsgjald vera samkvæmt Gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur sem innheimtir vatnsgjald samkvæmt samningi.

Holræsa- og rotþróargjöld skulu vera 0,12% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. samþykkt um fráveitu í Garðabæ nr. 282/2005.
Á Álftanesi skal rotþróargjald vera kr. kr. 28.800.

Sorphreinsigjald skal vera kr. 23.800 á hverja íbúð [sjá gjaldskrá].

Taðþróargjöld í hesthúsahverfi Andvara skulu vera kr. 283.750 á hvert hús. [sjá gjaldskrá].

Fasteignaskattur og holræsagjald sem tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða skal lækka að teknu tilliti til viðmiðunartekna. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að ákvarða viðmiðunartekjur samkvæmt reglum um lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

Gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2016 verða 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl 15. maí, 15. júní, 15. júlí 15. ágúst. 15. september og 15. október

Lagðar fram tillögur að eftirfarandi gjaldskrám.

Gjaldskrá skólamáltíða
Gjaldskrá leikskóla
Gjaldskrá tómstundaheimila
Gjaldskrá sundlauga
Gjaldskrá bókasafns

Bæjarráð vísar tillögu um álagningu fasteignagjalda og tillögum um gjaldskrár til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

34

27. fundur

Farið var yfir verkferla fjárhagsáætlunar og upplýst var um hvernig fjárhagsáætlun er unnin. Rætt var um húsnæði skólana.

Farið var yfir verkferla fjárhagsáætlunar og upplýst var um hvernig fjárhagsáætlun er unnin. Rætt var um húsnæði skólana.

Bæjarráð Garðabæjar

35

43. (1760). fundur

Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars á árinu 2017.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2017 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2016 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.“

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

36

16. (799). fundur

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2017 - 2020. Bæjarstjóri lagði fram greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar.

Bæjarstjóri lagði til að frumvarpinu yrði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Steinþór Einarsson, tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun.

María Grétarsdóttir, tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók til máls og ræddi fjárhagsáætlun. Guðrún Elín lagði fram eftirfarandi tillögu um gjaldskrár.

„Björt framtíð leggur til að gjaldskrám verði haldið óbreyttum á árinu 2017. Gjaldskrár í Garðabæ eru nú þegar með þeim hæstu á höfuðborgarsvæðinu. „

Þá lagði Guðrún Elín fram eftirfarandi tillögu um framkvæmdir við Bragalund.

„Björt framtíð gerir það að tillögu sinni að áður samþykktar tillögur um framkvæmdir við svokallaðan Bragalund við Silfurtún verði settar á dagskrá sem fyrst. Einnig leggur Björt framtíð til að ekki verði farið í nýja bæjargarða fyrr en við erum búin að klára eldri garða og opin svæði sem eru í niðurníðslu.“

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri tók til máls að nýju.

Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar:

2017
Tekjur: 13.234.406
Gjöld: 12.158.783
Niðurstaða án 1.075.623
fjármagnsliða:

Fjármunatekjur og (729.554)
fjármagnsgjöld)

Rekstrarniðurstaða 346.069

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögum um gjaldskrár og framkvæmdir við Bragalund til umfjöllunar bæjarráðs.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2017 - 2020 til síðari umræðu í bæjarstjórn og til frekari vinnslu í bæjarráði.

Bæjarráð Garðabæjar

37

42. (1759). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fund bæjarráðs og gerði grein fyrir tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017 og árin 2018 - 2020, ásamt forsendum og framkvæmdayfirliti.

Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017 eru:

Heildartekjur 13.234.406 þkr.
Heildargjöld 12.168.783 þkr.
Niðurstaða án fjármagnsliða 1.040.929 þkr.
Fjármunatekjur (gjöld) (729.554) þkr.
Rekstrarniðurstaða 346.069 þkr.

Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að fjárhagsáætlun Garðabæjar til fyrri umræðu i bæjarstjórn samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2. mgr. 40. gr. um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

38

18. fundur

Margrét Björk Svavarsdóttir forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs kynnir vinnu og forsendur við gerð fjárhagsáætlunar 2017.

Margrét Björk Svavarsdóttir, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs, mætti á fundinn og fór yfir forsendur og helstu tölur í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017.
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun er fyrirhuguð í bæjarstjórn Garðabæjar 3. nóvember nk.

Umræður voru um ramma fyrir menningarmálin.

Bæjarráð Garðabæjar

39

41. (1758). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir römmum að fjárhagsáætlun 2017, samkvæmt málafokka- og deildayfirliti.

Bæjarráð Garðabæjar

40

40. (1757). fundur

Lagðar fram og kynntar ábendingar sem borist hafa frá íbúum í tengslum við undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017.

Bæjarráð Garðabæjar

41

35. (1752). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri gerði grein fyrir drögum að forsendum fjárhagsáætlunar fyrir árið 2017 og lagði fram yfirlit yfir tíma- og vinnuferli.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

42

34. (1751). fundur