19. fundur
19. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
09.12.2016
Kl. 08:15 - 09:20
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Þóroddur Bjarnason - varamaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1605502
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017
Fjárhagsáætlun Garðabæjar var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 1. desember sl. Farið yfir tölur um menningarmál.
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 1. desember sl. Kynntar voru helstu tölur um menningarmál í áætlun næsta árs. Einnig var farið yfir stöðu fjárhags á þessu ári.
Málsnúmer 1610280
02
Vetrarhátíð - safnanótt og sundlauganótt 2017
Vetrarhátíð er fyrirhuguð 2.-5. febrúar 2017 með þátttöku sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Kynntur verður undirbúningur fyrir hátíðina.
Greint var frá undirbúningi við Vetrarhátíð sem verður haldin 2.-5. febrúar 2017. Bókasafn Garðabæjar, Hönnunarsafn Íslands og Krókur taka þátt í Safnanótt eins og fyrri ár og Álftaneslaug verður þátttakandi í Sundlauganótt.
Málsnúmer 1605103
03
Húsnæði til að starfrækja vinnustofu fyrir leiklist
Upplýst um stöðu mála. Fyrirhugað er að útbúa samning um afnot af sal á Garðatorgi (samnýtt með öðrum) til reynslu á vorönn 2017.
Upplýsinga- og menningarfulltrúi hefur fundað með bréfritara og til stendur að gera samning við bréfritara um afnot af sal/fundarrými á Garðatorgi við hliðina á Gróskusalnum til reynslu nokkur skipti í viku á vorönn 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1610255
04
Umsókn um styrk við gerð Apps fyrir tónlistarfólk
Bréf Auðunns Kvaran, f.h. Bad Melody, móttekið 31. október 2017, um styrk vegna tónleikaapps og tónleikahalds.
Bréf Auðuns Kvaran, f.h. Bad Melody, móttekið 31. október 2016, um styrk vegna tónleikasmáforrits og tónleikahalds.
Menningar- og safnanefnd telur eigi unnt að verða við erindinu.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1608549
05
Verkefni veturinn 2016-2017
Farið yfir liðin verkefni á haustönn, Tónlistarveislu, Gospeltónleika, aðventuopnun í Króki og tónleika kennara TG. Rætt um verkefni á árinu 2017.
Farið var yfir liðin verkefni á haustönn. Tónleikar Gospelkórs Jóns Vídalín ásamt góðum gestum voru haldnir fimmtudaginn 10. nóvember sl. í tilefni af 40 ára afmæli Garðabæjar og 10 ára afmæli kórsins. Tónleikarnir heppnuðust mjög vel og fullt var út úr dyrum í Vídalínskirkju og safnaðarheimilinu. Viku síðar, fimmtudaginn 17. nóvember, var hin árlega Tónlistarveisla í skammdeginu haldin á Garðatorgi. Fjölmenni mætti á Garðatorg á tónleikana en einnig gátu gestir skoðað haustsýningu Grósku og fjölmargar verslanir tóku einnig þátt með kvöldopnun í tilefni kvöldsins. Síðari tónleikar á haustönn í tónleikaröð kennara við Tónlistarskólann í Garðabæ voru haldnir í sal skólans þriðjudaginn 29. nóvember sl. Á dagskrá var tónlist fyrir píanó og strengi og tónleikarnir voru vel sóttir með fullum sal. Á vorönn eru fyrirhugaðir þrennir tónleikar í tónleikaröð kennara. Jólatónleikar Kvennakórs Garðabæjar voru haldnir þriðjudaginn 6. desember sl. og heppnuðust vel.
Framundan eru fjölmargir tónleikar á aðventunni í Garðabæ og þar á meðal er kórahátíð kóra í Garðabæ sunnudaginn 11. desember nk. á alþjóðadegi kóra. Kvennakór Garðabæjar stendur að kóradeginum skv. samstarfssamningi við Garðabæ og fær til liðs við sig kór Hofsstaðaskóla, Garðakórinn - kór eldri borgara, kór Sjálandsskóla, kór Vídalínskirkju og sönghópinn Söngdísir úr Tónlistarskóla Garðabæjar.
Einnig voru umræður um verkefni á vorönn, s.s. Jazzhátíð og Þriðjudagsklassík o.fl. Umræður voru um hvers konar verkefni ætti að stuðla að á næsta ári.
Málsnúmer 1610289
06
Óperuverkefni/dagar í Garðabæ
Umræðu haldið áfram.
Áframhaldandi umræða um erindi um sönghátíð/óperuhátíð í Garðabæ á árinu 2017.
Menningar- og safnanefnd telur eigi unnt að verða við erindinu.