Vinafélag Hönnunarsafnsins
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
24. fundur
Sigrún Lilja greindi frá undirbúningi að stofnun vinafélags Hönnunarsafns Íslands. Öllum sem vilja býðst að gerast vinafélagar safnsins. Vinafélagar fá ýmis fríðindi s.s. ókeypis aðgang að sýningum og fleira en innheimt verður sérstakt ársgjald félaga. Fjármunir vinafélagsins verða nýttir í sérstakan innkaupasjóð á verkum. Stefnt er að stofnfundi vinafélagsins á næstu vikum.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
23. fundur
Greint frá umræðum um menningarviðburði í miðbænum, hátíð o.fl. hjá stjórn miðbæjarsamtaka Garðabæjar.
Miðbæjarsamtök Garðabæjar hafa nýverið tekið til starfa og stjórn þeirra samanstendur af fulltrúum rekstaraðila á torginu. Hulda Hauksdóttir upplýsinga- og menningarfulltrúi fundar einnig með hópnum sem tengiliður Garðabæjar. Greint var frá umræðum sem hafa verið á stjórnarfunum um mögulega menningarviðburði í miðbæ Garðabæjar og hvernig efla megi þá viðburði sem fyrir eru og jafnframt að halda fleiri viðburði. Umræður hafa verið um minni hátíð hjá fyrirtækjum á torginu í byrjun sumars en einnig skoðað hvort halda eigi hausthátíð og efla dagskrá að vetri til í kringum aðventu. Samtali við stjórn miðbæjarsamtakanna um hvernig bærinn geti stutt við menningarviðburði í miðbænum verður haldið áfram.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
22. fundur
Greint frá umræðum á fundi með rekstraraðilum miðbæjar 6. apríl.
Greint frá umræðum á fundi með rekstraraðilum miðbæjar 6. apríl sl. Á fundinum var lagður grunnur að stofnun formlegra miðbæjarsamtaka þar sem Hönnunarsafnið á fulltrúa auk þess sem starfsmaður bæjarskrifstofu verður hópnum innan handar. Þar voru líka umræður um menningarviðburði í miðbænum sem gætu eflt og stutt við bæjarbraginn sem og starfssemina á torginu. Á fundinum var einnig rætt um menningarhátíð sem gæti tengt torgin betur saman með svipuðum hætti og vel heppnuð afmælishátíð Garðabæjar gerði á síðasta ári.
Upplýsinga- og menningarfulltrúa var falið að ræða um mögulega menningarhátíð Garðabæjar á Garðatorgi með haustinu við stjórn miðbæjarsamtakanna og hvernig best væri að standa að undirbúningi og framkvæmd hennar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
21. fundur
Farið yfir hvernig til tókst.
Kvennakór Garðabæjar stendur árlega fyrir menningarkvöldi í Garðabæ, ýmist sem haustvaka, góugleði eða eins og að þessu sinni sem þorravaka. Þorravaka kórsins var haldin fimmtudagskvöldið 16. febrúar 2017 í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju. Auk kvennakórsins tóku góðir gestir úr Garðabæ þátt í menningardagskránni, þau Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður og bæjarlistamaður Garðabæjar og Arnar Númi Sigurðarson, gítarnemandi úr Tónlistarskóla Garðabæjar. Þorravakan er hluti af samstarfssamningi Garðabæjar við kórinn.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
21. fundur
Farið yfir næstu skef.
Greint var frá hugmyndum um að koma á fundi fljótlega með hagsmunaðilum við Garðatorg til að ræða um hvernig megi efla menningarstarfsemi í miðbænum, t.d. með samstarfi um einhvers konar menningarhátíð eða viðburðum í miðbæ Garðabæjar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
06
21. fundur
Auglýst verður eftir nýjum forstöðumanni Hönnunarsafns Íslands á næstu dögum. Harpa Þórsdóttir núverandi forstöðumaður safnsins hefur verið skipuð safnstjóri Listasafns Íslands til næstu fimm ára frá og með 1. mars sl.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar færir Hörpu Þórsdóttur bestu þakkir fyrir vel unnin störf við uppbyggingu starfsemi Hönnunarsafns Íslands á undanförnum árum og óskar henni velfarnaðar í nýju starfi.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
07
20. fundur
Farið yfir helstu verkefni framundan á vorönn og vinnuskjal með dagsetningum helstu viðburða lagt fram.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
08
19. fundur
Farið yfir liðin verkefni á haustönn, Tónlistarveislu, Gospeltónleika, aðventuopnun í Króki og tónleika kennara TG. Rætt um verkefni á árinu 2017.
Farið var yfir liðin verkefni á haustönn. Tónleikar Gospelkórs Jóns Vídalín ásamt góðum gestum voru haldnir fimmtudaginn 10. nóvember sl. í tilefni af 40 ára afmæli Garðabæjar og 10 ára afmæli kórsins. Tónleikarnir heppnuðust mjög vel og fullt var út úr dyrum í Vídalínskirkju og safnaðarheimilinu. Viku síðar, fimmtudaginn 17. nóvember, var hin árlega Tónlistarveisla í skammdeginu haldin á Garðatorgi. Fjölmenni mætti á Garðatorg á tónleikana en einnig gátu gestir skoðað haustsýningu Grósku og fjölmargar verslanir tóku einnig þátt með kvöldopnun í tilefni kvöldsins. Síðari tónleikar á haustönn í tónleikaröð kennara við Tónlistarskólann í Garðabæ voru haldnir í sal skólans þriðjudaginn 29. nóvember sl. Á dagskrá var tónlist fyrir píanó og strengi og tónleikarnir voru vel sóttir með fullum sal. Á vorönn eru fyrirhugaðir þrennir tónleikar í tónleikaröð kennara. Jólatónleikar Kvennakórs Garðabæjar voru haldnir þriðjudaginn 6. desember sl. og heppnuðust vel.
Framundan eru fjölmargir tónleikar á aðventunni í Garðabæ og þar á meðal er kórahátíð kóra í Garðabæ sunnudaginn 11. desember nk. á alþjóðadegi kóra. Kvennakór Garðabæjar stendur að kóradeginum skv. samstarfssamningi við Garðabæ og fær til liðs við sig kór Hofsstaðaskóla, Garðakórinn - kór eldri borgara, kór Sjálandsskóla, kór Vídalínskirkju og sönghópinn Söngdísir úr Tónlistarskóla Garðabæjar.
Einnig voru umræður um verkefni á vorönn, s.s. Jazzhátíð og Þriðjudagsklassík o.fl. Umræður voru um hvers konar verkefni ætti að stuðla að á næsta ári.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
09
17. fundur
Starfsáætlun menningar- og safnanefndar fyrir haustið 2016 og vorið 2017 lögð fram og rædd.
Farið var yfir stöðu fjárhags á sviði menningarmála samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2016. Á næsta fundi nefndarinnar verður fjallað um fjárhagsáætlun næsta árs.
Umræða var um umgjörð styrkveitinga á sviði menningar.