21. fundur
21. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
03.03.2017
Kl. 08:15 -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Torfi Geir Símonarson boðaði forföll
Dagskrá
Málsnúmer 1610280
01
Vetrarhátíð - safnanótt og sundlauganótt 2017
Farið yfir hvernig til tókst.
Greint var frá hvernig til tókst með þátttöku safna og Álftaneslaugar á Safnanótt og Sundlauganótt á Vetrahátíð sem fór fram í byrjun febrúar. Ágætis aðsókn var í söfnin á Safnanótt og mikil ánægja var með opið hús í Bessastaðastofu, Bessastaðakirkju og fornleifakjallarann á Bessastöðum en yfir 1200 manns lögðu leið sína þangað. Mikil ánægja var einnig á meðal gesta sem sóttu Álftaneslaug heim á Sundlauganótt. Umhverfi sundlaugarinnar var lýst upp skemmtilega og vakti það athygli víðs vegar um nesið. Einnig voru byggingar í Garðabæ lýstar upp á meðan á Vetrarhátíðinni stóð, ráðhústurninn á Garðatorgi, Bessastaðakirkja og Bessastaðastofa.
Umræður um framkvæmd fyrir næsta ár og áherslur varðandi fyrirkomulag og mögulegar samgöngur innanbæjar og víðar á meðan á safnanóttinni stendur.
Málsnúmer 1608549
02
Þorravaka Kvennakórs Garðabæjar
Farið yfir hvernig til tókst.
Kvennakór Garðabæjar stendur árlega fyrir menningarkvöldi í Garðabæ, ýmist sem haustvaka, góugleði eða eins og að þessu sinni sem þorravaka. Þorravaka kórsins var haldin fimmtudagskvöldið 16. febrúar 2017 í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju. Auk kvennakórsins tóku góðir gestir úr Garðabæ þátt í menningardagskránni, þau Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur, Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður og bæjarlistamaður Garðabæjar og Arnar Númi Sigurðarson, gítarnemandi úr Tónlistarskóla Garðabæjar. Þorravakan er hluti af samstarfssamningi Garðabæjar við kórinn.
Málsnúmer 1703004
03
Styrkumsókn vegna tískusýningar nemenda við FG vorið 2017
Bréf kennslustjóra á fata- og textílhönnunarbraut FG, dags. 12. janúar 2017, um styrk f.h. nemenda vegna tískusýningar lokaáfanga fata- og textílhönnunarbrautar vorið 2017.
Lagt var fram erindi, dags. 12. janúar 2017, frá kennslustjóra á fata- og textílhönnunarbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ, f.h. nemenda, um styrk vegna lokasýningar nemenda.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að veita fjárstyrk að fjárhæð kr. 100.000 til að standa straum af kostnaði við sýninguna. Nefndin mælist til þess að tískusýningin verði kynnt á meðal Garðbæinga.
Málsnúmer 1702133
04
Beiðni um styrk - Töframáttur tónlistar
Bréf Brynhildar Auðbjargardóttur, f.h. Gunnars Kvarans og Töframátt tónlistar, dags. 7. febrúar, um styrk vegna tónleikaraðarinnar Töframáttur tónlistar. Erindið var tekið fyrir í bæjarráði og vísað til umfjöllunar menningar- og safnanefndar.
Tekið var til afgreiðslu bréf Brynhildar Auðbjargardóttur, f.h. Gunnars Kvarans listræns stjórnanda, dags. 7. febrúar 2017, um styrkbeiðni vegna Töframáttar tónlistar. Bréfið var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar, 14. febrúar sl. og vísað til afgreiðslu menningar- og safnanefndar.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að styrkja verkefnið Töframátt tónlistar með fjárhæð kr. 100.000 vegna samfélagslegs gildis verkefnisins og mælist til þess að verkefnið verði kynnt fyrir þeim stofnunum/félögum sem við á í Garðabæ.
Málsnúmer 1701284
05
Jazzhátíð Garðabæjar 2017
Farið yfir drög að dagskrá.
Fyrir fundinum lágu drög að dagskrá Jazzhátíðar Garðabæjar sem verður haldin dagana 20.-22. apríl nk. Áfram verður unnið að undirbúningi jazzhátíðarinnar.
Umræður voru um dagskrá jazzhátíðar 2017 og um fyrirkomulag og undirbúning jazzhátíðar og annarra menningarviðburða í bænum í framtíðinni
Málsnúmer 1703007
06
Hvatningarsjóður ungra listamanna 2017
Farið yfir drög að auglýsingu og reglur.
Farið var yfir reglur vegna hvatningarsjóðs ungra listamanna og drög að auglýsingu sem verður sett á vef Garðabæjar og birt í Garðapóstinum. Auk þess verður auglýsing send til Fjölbrautaskólans í Garðabæ, Tónlistarskóla Garðabæjar og Listaháskóla Íslands.
Málsnúmer 1703008
07
Bæjarlistamaður Garðabæjar 2017
Farið yfir drög að auglýsingu og reglur.
Farið var yfir reglur vegna útnefningar bæjarlistamanns og drög að auglýsingu. Eins og síðustu ár verður stefnt að tilkynningu um val á bæjarlistamanni á menningaruppskeruhátíð í maí.
Málsnúmer 1608549
08
Miðbæjarhátíð - menningarviðburðir í miðbæ Garðabæjar
Farið yfir næstu skef.
Greint var frá hugmyndum um að koma á fundi fljótlega með hagsmunaðilum við Garðatorg til að ræða um hvernig megi efla menningarstarfsemi í miðbænum, t.d. með samstarfi um einhvers konar menningarhátíð eða viðburðum í miðbæ Garðabæjar.
Málsnúmer 1610112
09
Íbúakönnun - þjónustukönnun 2016
Íbúakönnun Gallup sem mælir viðhorf íbúa í 19 stærstu sveitarfélögum landsins tekin fyrir. Bæjarráð vísaði könnuninni til kynningar í nefndum bæjarins.
Lögð var fram til kynningar könnun Gallup þar sem viðhorf íbúa til þjónustu í 19 stærstu sveitarfélögum landsins er mælt. Farið var yfir helstu þætti könnunarinnar.
Einnig var greint frá því að bæjarráð hafi samþykkt að setja á fót rýnihópa til að greina frekar niðurstöður í einstaka málaflokkum.
Málsnúmer 1608549
10
Hönnunarsafn Íslands - auglýst eftir forstöðumanni
Auglýst verður eftir nýjum forstöðumanni Hönnunarsafns Íslands á næstu dögum. Harpa Þórsdóttir núverandi forstöðumaður safnsins hefur verið skipuð safnstjóri Listasafns Íslands til næstu fimm ára frá og með 1. mars sl.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar færir Hörpu Þórsdóttur bestu þakkir fyrir vel unnin störf við uppbyggingu starfsemi Hönnunarsafns Íslands á undanförnum árum og óskar henni velfarnaðar í nýju starfi.