Beint í efni

Starfsstyrkur samkæmt reglum um bæjarlistamann Garðabæjar.

Málsnúmer 1703008

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

26. (1792). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um að fjárhæð starfstyrks til bæjalistamanns árið 2017 verði kr. 1.000.000.

Bæjarráð Garðabæjar

02

19. (1785). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu menningar- og safnanefndar um tilnefningu á bæjarlistamanni Garðabæjar árið 2017. Tilnefningin verður tilkynnt á menningaruppskeruhátíð miðvikudaginn 31. maí nk. kl. 17:30 í samkomuhúsinu á Garðaholti.
Greint var frá viðurkenningum til menningar og lista sem verða tilkynntar sama tíma.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

24. fundur

Umræðu frá síðasta fundi haldið áfram.

Framhald umræðu frá síðasta fundi.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að leggja til við bæjarráð Garðabæjar að einn listamaður verði útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar í ár. Nefndin leggur til að útnefningin á bæjarlistamanni Garðabæjar verði tilkynnt með formlegum hætti á menningaruppskeruhátíð á Garðaholti 31. maí nk. og fer þess jafnframt á leit við alla þá sem að málinu koma að nafni viðkomandi listamanns verði haldið leyndu þangað til.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

04

23. fundur

Ábendingar um bæjarlistamann Garðabæjar árið 2017 lagðar fram og ræddar.

Auglýst var eftir ábendingum um tilnefningu til bæjarlistamanns Garðabæjar 2017 í mars og apríl og frestur til að skila inn ábendingum var til og með 2. maí sl. Listi með framkomnum ábendingum var lagður fram og ræddur. Málið verður aftur á dagskrá á næsta fundi menningar- og safnanefndar 19. maí nk.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

05

22. fundur

Farið yfir tölfræði síðustu ára í tengslum við val á bæjarlistamanni Garðabæjar.

Farið yfir tölfræði síðustu ára í tengslum við val á bæjarlistamanni Garðabæjar.
Auglýst var í Garðapóstinum og á vef Garðabæjar eftir ábendingum, auk þess sem samtök listamanna fengu senda auglýsinguna þar sem óskað er eftir tillögum/ábendingum um bæjarlistamann Garðabæjar 2017. Ábendingar verða teknar fyrir á næsta fundi nefndarinnar.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

06

21. fundur

Farið yfir drög að auglýsingu og reglur.

Farið var yfir reglur vegna útnefningar bæjarlistamanns og drög að auglýsingu. Eins og síðustu ár verður stefnt að tilkynningu um val á bæjarlistamanni á menningaruppskeruhátíð í maí.