26. (1792). fundur
26. (1792). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
11.07.2017
Kl. 08:00 - 08:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóna Sæmundsdóttir - varamaður
- Sturla D Þorsteinsson - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Ljósakur 2 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Sigríði S. Gunnlaugsdóttur, kt. 290866-4569 leyfi fyrir breytingu á útliti húss og innra skipulagi rýma í kjallara hússins að Ljósakri 2. Fyrir liggur samþykki allra eigenda og yfirlýsing um þinglýsingu kvaðar vegna útleigu og sölu viðkomandi rýma.
02
Suðurhraun 10 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hellubyggð ehf., kt. 660116-5400 leyfi fyrir breytingu á áður útgefnu byggingarleyfi fyrir nýbyggingu atvinnuhúsnæðis að Suðurhrauni 10.
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi framlagningu á innsendum athugasemdum og umsögnum við tillögu að endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.
Lagðar fram athugasemdir og umsagnir sem borist hafa við tillögu að nýju aðalskipulagi Garðabæjar 2016 -2030.
Bæjarráð vísar málinu til áframhaldandi meðferðar skipulagsnefndar.
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðanna við Suðurhraun 1 - 3.
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hlið á Álftanesi.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi. Leita skal eftir umsögnum frá Minjastofnun og Umhverfisstofnun.
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda.
Bæjarráð samþykkir með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Ránargrund 4 (veitingahús). Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir. Samþykkt breyting skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu umsóknar um byggingarleyfi á lóðinni við Haukanes 24.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna niðurrifs og nýbyggingar við Haukanes 24 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi grenndarkynningu umsóknar um byggingarleyfi á lóðinni við Mávanes 21.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við núverandi einbýlishús að Mávanesi 21 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur, Stekkjarbakki
Lögð fram.
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um viðbyggingu við Hvannarlund 4.
Lögð fram.
11
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um viðbyggingu við Hvannarlund 17.
Lögð fram.
12
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur, Kópavogsgöng
Lögð fram.
13
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu útivistarstígs við Urriðavatn, dags. 07.07.17.
Bæjarráð samþykkir að veita framkvæmdaleyfi fyrir útivistarstíg meðfram suðurmörkum hverfisverndaðssvæðis við Urriðavatn.
Stígurinn er sýndur á uppdrætti aðalskipulags Garðabæjar 2004 - 2016 en svæðið umhverfis stíginn hefur ekki verið deiliskipulagt.
Fylgiskjöl
14
Starfsstyrkur samkæmt reglum um bæjarlistamann Garðabæjar.
Bæjarráð samþykkir tillögu um að fjárhæð starfstyrks til bæjalistamanns árið 2017 verði kr. 1.000.000.
15
Tilkynning frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu um framlag úr Jöfnunarsjóði vegna séreignasparnaðar, dags. 04.07.17.
Lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl
16
Erindi Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur í september, dags. 03.07.2017.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfisnefndar, íþrótta- og tómstundaráðs og meningar- og safnanefndar.
Fylgiskjöl
17
Afgreiðsla fjölskylduráð um endurskoðun á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.
Bæjarráð samþykkir tillögu fjölskylduráðs um breytingar reglum Garðabæjar um sérstakan húsnæðisstuðning með gildistíma frá og með 1. júlí 2017.
Fylgiskjöl
18
Umsókn Katrínar Halldórsdóttur um styrk til að stunda háskólanám.
Bæjarráð samþykkir umsókn Katrínar Halldórsdóttur um styrk skólaárið 2017-2018 sem nemur sem 10% af vikulegri vinnuskyldu til að stunda nám í stjórnunarfræði menntastofnana M.Ed. við Háskóla Íslands.
19
Umsókn Önnu Björnsdóttur um styrk til að stunda háskólanám.
Bæjarráð samþykkir umsókn Önnu Björnsdóttur, leikskólaleiðbeinanda á Sunnuhvoli um styrk skólaárið 2017-2018 sem nemur sem 10% af vikulegri vinnuskyldu til að stunda nám í menntunarfræði leikskóla M.Ed. við Háskóla Íslands.
20
Umsókn Jónu Rósu Stefánsdóttur um styrk til að stunda háskólanám.
Bæjarráð samþykkir umsókn Jónu Rósu Stefánsdóttur, deildarstjóra á Sunnuhvoli um styrk skólaárið 2017-2018 sem nemur sem 10% af vikulegri vinnuskyldu til að stunda nám í forystu og stjórnun við Háskólann á Bifröst.
21
Umsókn Ingimars Ólafssonar Waage um styrk til að stunda háskólanám.
Bæjarráð samþykkir umsókn Ingimars Ólafssonar Waage, kennara við Garðaskóla um styrk skólaárið 2017-2018 sem nemur sem 10% af vikulegri vinnuskyldu til að stunda doktorsnám við menntavísindasvið Háskóla Íslands