Beint í efni

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands

Málsnúmer 1707049

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

25. fundur

Bæjarráð tók fyrir erindi Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur, dags. 3. júlí 2017, á fundi sínum 11. júlí sl. Bæjarráð vísaði erindinu til umhverfisnefndar, íþrótta- og tómstundaráðs og menningar- og safnanefndar.

Umhverfisnefnd og íþrótta- og tómstundaráð hafa fjallað um erindið og tekið jákvætt í það. Menningar- og safnanefnd tekur undir það álit nefndanna.

Búið er að skipuleggja göngur í Garðabæ alla miðvikudaga kl. 18 í september. Fyrsta gangan var farin miðvikudaginn 6. september sl. en þá var farið í hressingargöngu um Sjálandshverfið. Næsta ganga verður farin miðvikudaginn 13. september kl. 18 frá Ásgarði undir þemanu vinátta. Miðvikudaginn 18. september verður gengið undir þemanu saga frá Bjarnastöðum undir leiðsögn Péturs Ármannsonar þar sem fjallað verður um sögu merkra húsa á Álftanesi. Síðasta gangan verður farin miðvikudaginn 27. september en þá verður haldið í göngu undir þemanu náttúra í Heiðmörk undir leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Göngurnar eru um leið áframhald sögu- og fræðslugangna Garðabæjar þessa árs og síðustu ára.

Fylgiskjöl

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

31. fundur

Íþróttafulltrúa Garðabæjar er falið að finna göngustjóra 6. og 13. september skv. áætlun sem lögð var fram um þær fjórar göngur sem boðið verður upp á í Garðabæ í tengslum við verkefni FÍ.
Nánari kynning á því fer fram á næstu dögum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

03

36. fundur

Umhverfisnefnd samþykkir að taka þátt í verkefni Ferðafélags Íslands. Samráð verður haft við hinar nefndirnar

Bæjarráð Garðabæjar

04

26. (1792). fundur

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfisnefndar, íþrótta- og tómstundaráðs og meningar- og safnanefndar.

Fylgiskjöl