Beint í efni

25. fundur

08.09.2017
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

25. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

08.09.2017

Kl. 08:15 -

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
  • Erling Jóhannesson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1701327

01

Starfsáætlun menningar- og safnanefndar 2017 - 2018

Starfsáætlun menningar- og safnanefndar fyrir haustið 2017 og vorið 2018 lögð fram og rædd.

Farið var yfir stöðu fjárhags á sviði menningarmála samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2017. Á næsta fundi nefndarinnar verður fjallað um fjárhagsáætlun næsta árs.

Umræða um helstu verkefni á þessu ári og fram á vor 2018.


Málsnúmer 1707049

02

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands

Bæjarráð tók fyrir erindi Ferðafélags Íslands um lýðheilsugöngur, dags. 3. júlí 2017, á fundi sínum 11. júlí sl. Bæjarráð vísaði erindinu til umhverfisnefndar, íþrótta- og tómstundaráðs og menningar- og safnanefndar.

Umhverfisnefnd og íþrótta- og tómstundaráð hafa fjallað um erindið og tekið jákvætt í það. Menningar- og safnanefnd tekur undir það álit nefndanna.

Búið er að skipuleggja göngur í Garðabæ alla miðvikudaga kl. 18 í september. Fyrsta gangan var farin miðvikudaginn 6. september sl. en þá var farið í hressingargöngu um Sjálandshverfið. Næsta ganga verður farin miðvikudaginn 13. september kl. 18 frá Ásgarði undir þemanu vinátta. Miðvikudaginn 18. september verður gengið undir þemanu saga frá Bjarnastöðum undir leiðsögn Péturs Ármannsonar þar sem fjallað verður um sögu merkra húsa á Álftanesi. Síðasta gangan verður farin miðvikudaginn 27. september en þá verður haldið í göngu undir þemanu náttúra í Heiðmörk undir leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Göngurnar eru um leið áframhald sögu- og fræðslugangna Garðabæjar þessa árs og síðustu ára.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1701307

03

Þriðjudagsklassík 2017

Tónleikaröðin Þriðjudagsklassík er nú haldin í fimmta sinn en að þessu sinni að hausti. Dagskrá tónleikaraðarinnar ásamt kostnaðaráætlun var lögð fram.

Fyrstu tónleikarnir voru haldnir þriðjudagskvöldið 5. september sl. í sal Tónlistarskóla Garðabæjar en þá stigu á svið Sigurður Flosason saxófónleikari og Kjartan Valdemarsson píanóleikari. Næstu tónleikar verða þriðjudagskvöldið 3. október, þá kemur hið íslenska gítartríó fram. Síðustu tónleikarnir verða haldnir þriðjudaginn 7. nóvember og þá stígur á svið kammerhópurinn Camerarctica.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1709091

04

Tónlistarveisla í skammdeginu 2017

Tónlistarveisla í skammdeginu hefur verið haldin í nóvember á hverju ári undanfarin ár á Garðatorgi. Stefnt er að því að halda næstu Tónlistarveislu fimmtudaginn 9. nóvember nk. og myndlistarfélagið Gróska mun sama kvöld bjóða upp á samsýningu listamanna eins og áður. Skoðað verður í samstarfi við miðbæjarsamtök Garðabæjar hvernig fyrirtæki geta tengst verkefninu t.d. með því að hafa opið hús, tilboð eða annað á sama kvöldi.

Málsnúmer 1709092

05

Listadagar barna og ungmenna 2018

Listadagar barna og ungmenna hafa verið haldnir í Garðabæ á tveggja ára fresti með þátttöku allra skóla í bænum.

Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi frá fyrirhuguðum undirbúningi vegna listadaga barna og ungmenna sem verða haldnir vorið 2018, eða frá sumardeginum fyrsta til aprílloka.

Málsnúmer 1709090

06

Vinnuaðstaða í Króki veturinn 2017-2018

Auglýst var í ágúst eftir umsóknum um vinnuaðstöðu listamanna/fræðimanna í Króki veturinn 2017-2018. Í boði er að sækja um vinnuaðstöðuna 1-3 mánuði í senn. Alls bárust 7 umsóknir um vinnuaðstöðuna.

Menningar- og safnanefnd samþykkir að úthluta vinnuaðstöðunni í Króki til eftirfarinna listamanna:

Bjarni Bjarnason, 091165-4659, Lyngási 4, ritlist, frá 20. september - 30. nóvember 2017, ritun skáldsögu.

Sigrún Jónsdóttir, kt. 301189-2069, Einiberg 11, tónlist/myndlist, frá 1. desember 2017 - 31. janúar 2018, tónlistarsmíðar, undirbúningsvinna fyrir hljóðupptökur á plötu.

Hrefna Sigurðardóttir, 120589-2619, Birta Rós Brynjólfsdóttir, 270792-2789, og Steinunn Eyja Halldórsdóttir, 010591-2529, hönnun, frá 1. febrúar - 14. mars 2018, hönnun gólf- og veggteppa til sýningar á HönnunarMars.

Þuríður Sigurðardóttir, kt. 230149-2089, Holtsbúð 46, myndlist, frá 15. mars -15. apríl 2018, myndlistarvinna með skissum og rannsóknarvinnu út frá Króki og umhverfi.

Kristín Þóra Haraldsdóttir, kt. 040579-5599, Ljósvallagata 14, tónlist, frá 16. apríl - 31. maí 2018, tónsmíðaverkefni.


Málsnúmer 1709093

07

Önnur mál

* Bókasafnsdagurinn verður haldinn föstudaginn 8. september 2017. Bókasafn Garðabæjar býður gestum í vöfflukaffi á Garðatorgi og í Álftanessafni. Sama dag verður uppskeruhátíð sumarlesturs barna í safninu á Garðatorgi.

* Leiksmiðjan Frigg / eða leiksmiðja Garðabæjar hefur tekið til starfa með aðstöðu á Garðatorgi í tilraunaskyni veturinn 2017-2018.

* Starfsáætlun Kvennakórs Garðabæjar veturinn 2017-2018 liggur fyrir og verður send til nefndarmanna.