Þriðjudagsklassík 2017
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
27. fundur
Farið yfir hvernig til tókst með Þriðjudagsklassík á haustönn 2017. Rætt um áframhald á næsta ári.
Tónleikaröðin Þriðjudagsklassík var haldin fimmta árið í röð á vegum menningar- og safnanefndar í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Tónleikaröðin var nú haldin í fyrsta sinn að hausti til þegar þrennir tónleikar fóru fram. Ágætis aðsókn var á alla tónleikana og fór aðsókn vaxandi með hverjum tónleikum. Ánægjulegt var að sjá að nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar nýttu sér boð um að fara á tónleikana.
Umræður voru um framhald tónleikaraðarinnar haustið 2018.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
26. fundur
Tvennir tónleikar af þremur hafa nú verið haldnir í tónleikaröðinni Þriðjudagsklassík sem nú er haldin haustið 2017. Þriðjudagskvöldið 3. október sl. steig Hið íslenska gítartríó á svið í sal Tónlistarskóla Garðabæjar þar sem tónleikarnir fara fram. Ágætis mæting var á tónleikana og þar á meðal áhorfenda voru líka nemendur Tónlistarskólans sem fá ókeypis aðgang á tónleikana. Næstu og síðustu tónleikarnir í tónleikaröðinni verða haldnir þriðjudaginn 7. nóvember nk. þegar kammerhópurinn Camerarctica kemur fram.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
03
19. fundur
Nefndin lýsir yfir mikilli ánægju með þetta góða framtak og mikilvægi þess að nýta húsnæði Garðabæjar sem mest.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
25. fundur
Tónleikaröðin Þriðjudagsklassík er nú haldin í fimmta sinn en að þessu sinni að hausti. Dagskrá tónleikaraðarinnar ásamt kostnaðaráætlun var lögð fram.
Fyrstu tónleikarnir voru haldnir þriðjudagskvöldið 5. september sl. í sal Tónlistarskóla Garðabæjar en þá stigu á svið Sigurður Flosason saxófónleikari og Kjartan Valdemarsson píanóleikari. Næstu tónleikar verða þriðjudagskvöldið 3. október, þá kemur hið íslenska gítartríó fram. Síðustu tónleikarnir verða haldnir þriðjudaginn 7. nóvember og þá stígur á svið kammerhópurinn Camerarctica.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
20. fundur
Þrennir tónleikar eru fyrirhugaðir í Þriðjudagsklassík á vorönn 2017.
Klassíska tónleikaröðin Þriðjudagsklassík verður með þrenna tónleika á haustönn 2017 á þriðjudagskvöldum í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Ingibjörg Guðjónsdóttir er listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Fyrir fundinum lágu drög að dagskrá tónleikaraðarinnar.
Upplýsinga- og menningarfulltrúa var falið að fylgja málinu eftir á grundvelli fyrirliggjandi gagna.