20. fundur
20. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
27.01.2017
Kl. 08:15 - 09:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður
- Erling Jóhannesson - aðalmaður
Starfsmenn
- Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi
Ritari
- Hulda Hauksdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1701327
01
Starfsáætlun menningar- og safnanefndar 2017
Drög að starfsáætlun menningar- og safnanefndar lögð fram.
Starfsáætlun nefndarinnar um fundi nefndarinnar á árinu rædd og lögð fram.
Málsnúmer 1608549
02
Verkefni veturinn 2016-2017
Farið yfir helstu verkefni framundan á vorönn og vinnuskjal með dagsetningum helstu viðburða lagt fram.
Málsnúmer 1610280
03
Vetrarhátíð - safnanótt og sundlauganótt 2017
Farið yfir dagskrá á Vetrarhátíð, safnanótt og sundlauganótt í Garðabæ.
Greint var frá undirbúningi við Vetrarhátíð sem verður haldin 2.-5. febrúar nk. með þátttöku allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Í tilefni Vetrarhátíðar verða ýmsar byggingar lýstar upp og í Garðabæ verður forsetasetrið á Bessastöðum lýst upp ásamt klukkuturninum í ráðhúsi Garðabæjar.
Fjölbreytt dagskrá verður í boði á safnanótt föstudaginn 3. febrúar frá kl. 18-23. Söfn í Garðabæ sem taka þátt eru Hönnunarsafn Íslands, Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi, burstabærinn Krókur en auk þess er stefnt að opnun í fornminjakjallarann á Bessastöðum. Á sundlauganótt verður opið í Álftaneslaug laugardaginn 4. febrúar frá kl. 18-23. Þar verður boðið upp á dagskrá auk þess sem aðgangur er ókeypis um kvöldið.
Dagskráin í Garðabæ verður kynnt með auglýsingu og umfjöllun í Garðapóstinum og einnig á vef Garðabæjar og fésbókarsíðu bæjarins. Einnig er kynning á vegum Höfuðborgarstofu þar sem viðburðir eru kynntir sameiginlega í fjölmiðlum og hver viðburður er kynntur sérstaklega á vef Vetrarhátíðar.
Málsnúmer 1605116
04
Tónleikaröð kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar 2016-2017
Menningar- og safnanefnd samþykkir að styðja við tónleikaröð kennara á vorönn 2017 með sams konar hætti og gert var á haustönn 2016. Stefnt er að tvennum tónleika kennara á vorönn og verið er að skoða dagsetningar.
Málsnúmer 1701284
05
Jazzhátíð Garðabæjar 2017
Jazzhátíð er fyrirhuguð 20.-22. apríl 2017.
Eins og fyrri ár er stefnt að Jazzhátíð Garðabæjar með upphaf á Sumardaginn fyrsta eða nánar tiltekið dagana 20.-22. apríl 2017. Sigurður Flosason stýrir listrænni dagskrá og undirbúningur er hafinn. Upplýsinga- og menningarfulltrúi greindi var frá fyrstu hugmyndum um dagskrá á hátíðinni.
Áfram verður unnið að dagskrá og umræðu haldið áfram á næsta fundi.
Málsnúmer 1701307
06
Þriðjudagsklassík 2017
Þrennir tónleikar eru fyrirhugaðir í Þriðjudagsklassík á vorönn 2017.
Klassíska tónleikaröðin Þriðjudagsklassík verður með þrenna tónleika á haustönn 2017 á þriðjudagskvöldum í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Ingibjörg Guðjónsdóttir er listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Fyrir fundinum lágu drög að dagskrá tónleikaraðarinnar.
Upplýsinga- og menningarfulltrúa var falið að fylgja málinu eftir á grundvelli fyrirliggjandi gagna.
Málsnúmer 1701310
07
Fræðslu- og sögugöngur 2017
Farið yfir fyrstu hugmyndir að fræðslu- og sögugöngum í samstarfi við umhverfisnefnd og Bókasafn Garðabæjar.
Greint var frá fyrstu hugmyndum að fræðslu- og sögugöngum á árinu í samstarfi við umhverfisnefnd og Bókasafn Garðabæjar. Í fyrra var farið í margar fræðslu- og sögugöngur og þær tengdar afmælisári Garðabæjar. Góð aðsókn var í göngurnar og þær mæltust vel fyrir.
Umræða var um nauðsyn þess að festa dagsetningar með góðum fyrirvara til að geta kynnt allar fræðslu- og sögugöngur ársins í einu.
Málsnúmer 1701104
08
Beiðni um styrk vegna leiksýningar í FG vorið 2017
Erindi leikfélagsins Verðandi var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar og vísað til bæjarstjóra og menningar- og safnanefndar.
Erindi leikfélagsins Verðandi um styrk vegna leiksýningarinnar Kalli og súkkulaðiverksmiðjan í Fjölbrautaskólaskólanum í Garðabæ vorið 2017 var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar 10. janúar sl. og vísað til bæjarstjóra og menningar- og safnanefndar.
Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í erindið. Útfærsla á styrkveitingu verður skoðuð með það í huga að bjóða nemendum úr 10. bekk frítt á sýninguna.
Málsnúmer 1611066
09
Umhverfisstefna - endurskoðun
Drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu lögð fram til umsagnar.
Drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu Garðabæjar lögð fram til kynningar og umsagnar.
Menningar- og safnanefnd gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi drög að endurskoðaðri umhverfisstefnu.