Beint í efni

Fræðslu- og sögugöngur 2017

Málsnúmer 1701310

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

35. fundur

Fræðslu- og söguganga um Vífilistaði og nærumhverfi verður 21. júní, mæting kl 17:15
Leiðsögn: Steinar J. Lúðvíksson höfundur Sögu Garðabæjar

Fræðslu- og söguganga um Vífilistaði og nærumhverfi verður 21. júní, mæting kl 17:15
Leiðsögn: Steinar J. Lúðvíksson höfundur Sögu Garðabæjar

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

24. fundur

Greint var frá fyrirhuguðum sögugöngum á næstu vikum. Þriðjudaginn 23. maí kl. 17:15 verður boðið upp á sögugöngu um Garðahverfi undir leiðsögn Ragnheiðar Traustadóttur fornleifafræðings. Um viku síðar eða mánudaginn 29. maí kl. 17:30 verður haldin kynning á gönguleiðsagnarappinu Wappinu í Bókasafni Garðabæjar og svo haldið í göngu undir leiðsögn Einars Skúlasonar um hraunleiðina sem er í Wappinu.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

22. fundur

Samstarfi menningar- og safnanefndar, umhverfisnefndar og Bókasafns Garðabæjar með sameiginlegum sögugöngum verður haldið áfram í vor og fram á haust. Farið var yfir fyrirhugaðar göngur framundan en fyrsta gangan verður farin þriðjudaginn 25. apríl nk. á Degi umhverfisins en þá er ráðgert að halda í göngu um Arnarnesið.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

04

31. fundur

Drög að dagskrá að fræðslu- og sögugöngum á tímabilinu apríl - september 2017 lögð fram og samþykkt.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

05

20. fundur

Farið yfir fyrstu hugmyndir að fræðslu- og sögugöngum í samstarfi við umhverfisnefnd og Bókasafn Garðabæjar.

Greint var frá fyrstu hugmyndum að fræðslu- og sögugöngum á árinu í samstarfi við umhverfisnefnd og Bókasafn Garðabæjar. Í fyrra var farið í margar fræðslu- og sögugöngur og þær tengdar afmælisári Garðabæjar. Góð aðsókn var í göngurnar og þær mæltust vel fyrir.
Umræða var um nauðsyn þess að festa dagsetningar með góðum fyrirvara til að geta kynnt allar fræðslu- og sögugöngur ársins í einu.