Beint í efni

22. fundur

07.04.2017
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

22. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

07.04.2017

Kl. 08:15 - 08:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
  • Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
  • Sigríður Finnbjörnsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Hulda Hauksdóttir - upplýsinga- og menningarfulltrúi

Ritari

  • Hulda Hauksdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1704058

01

Ársskýrsla Bókasafns Garðabæjar 2016

Margrét Sigurgeirsdóttir forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar mætir á fundinn og greinir frá helstu atriðum í ársskýrslu safnsins.

Ársskýrsla Bókasafns Garðabæjar fyrir árið 2016 lögð fram.

Margrét Sigurgeirsdóttir forstöðumaður Bókasafns Garðabæjar mætti á fundinn og greindi frá helstu atriðum í ársskýrslu safnsins.

Farið var yfir helstu viðburði ársins, bókasafnið er stöðugt að skoða nýjar þjónustuleiðir og hlusta á hvað gestirnir vilja upplifa á safninu og bregðast við því. Stöðugt verið að huga að kynningarmálum og hvernig gera megi safnið sýnilegra fyrir gesti sem koma að Garðatorginu. Heilt yfir gekk mjög vel á safninu á Garðatorgi og Álftanesi í fyrra.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1701284

02

Jazzhátíð Garðabæjar 2017

Farið yfir jazzhátíðina sem verður haldin 20.-22. apríl nk.

Farið var yfir dagskrá Jazzhátíðar Garðabæjar sem verður haldin 20.-22. apríl nk. Allir kvöldtónleikar verða haldnir í Kirkjuhvoli, en auk þess verða tónleikar að degi til á laugardeginum 22. apríl í félagsmiðstöðinni Jónshúsi og í Haukshúsi á Álftanesi. Dagskráin verður kynnt í Garðapóstinum með umfjöllun og auglýsingu, auk þess sem dreifibréf verður sent inn á heimili Garðbæinga.

Málsnúmer 1605116

03

Tónleikaröð kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar 2016-2017

Næstu tónleikar í tónleikaröð kennara úr Tónlistarskóla Garðabæjar eru fyrirhugaðir þriðjudagskvöldið 25. apríl kl. 20 í sal Tónlistarskóla Garðabæjar. Þá stíga á stokk þau Þórarinn Sigurbergsson á gítar, Björn Davíð Kristjánsson á þverflautu og Sólveig Anna Jónsdóttir leikur með þeim á píanó.

Málsnúmer 1704056

04

Viðburðir Grósku á árinu 2017

Farið yfir viðburði myndlistarfélagsins Grósku og næstunni og sagt frá fundi með formanni og stjórnarmanni úr Grósku.

Formaður nefndarinnar og upplýsinga- og menningarfulltrúi áttu fund þann 3. apríl sl. með formanni og stjórnarmanni úr myndlistarfélaginu Grósku þar sem farið var yfir helstu viðburði félagsins á árinu. Framundan er árleg sumarsýning Grósku með opnun síðasta vetrardag í Gróskusalnum á Garðatorgi. Félagið er þegar farið að huga að undirbúningi Jónsmessugleðinnar sem verður haldin fimmtudaginn 22. júní meðfram strandlengjunni í Sjálandinu.

Gróska stefnir einnig að vetrarsýningu um leið og Tónlistarveisla í skammdeginu verður haldin. Samþykkt var að festa dagsetninguna 9. nóvember nk. fyrir tónlistarveisluna í ár.

Málsnúmer 1608549

05

Menningarviðburðir í miðbæ Garðabæjar

Greint frá umræðum á fundi með rekstraraðilum miðbæjar 6. apríl.

Greint frá umræðum á fundi með rekstraraðilum miðbæjar 6. apríl sl. Á fundinum var lagður grunnur að stofnun formlegra miðbæjarsamtaka þar sem Hönnunarsafnið á fulltrúa auk þess sem starfsmaður bæjarskrifstofu verður hópnum innan handar. Þar voru líka umræður um menningarviðburði í miðbænum sem gætu eflt og stutt við bæjarbraginn sem og starfssemina á torginu. Á fundinum var einnig rætt um menningarhátíð sem gæti tengt torgin betur saman með svipuðum hætti og vel heppnuð afmælishátíð Garðabæjar gerði á síðasta ári.

Upplýsinga- og menningarfulltrúa var falið að ræða um mögulega menningarhátíð Garðabæjar á Garðatorgi með haustinu við stjórn miðbæjarsamtakanna og hvernig best væri að standa að undirbúningi og framkvæmd hennar.

Málsnúmer 1701310

06

Fræðslu- og sögugöngur 2017

Samstarfi menningar- og safnanefndar, umhverfisnefndar og Bókasafns Garðabæjar með sameiginlegum sögugöngum verður haldið áfram í vor og fram á haust. Farið var yfir fyrirhugaðar göngur framundan en fyrsta gangan verður farin þriðjudaginn 25. apríl nk. á Degi umhverfisins en þá er ráðgert að halda í göngu um Arnarnesið.

Málsnúmer 1704055

07

Menningaruppskeruhátíð 2017

Farið yfir fyrirhugaða menningaruppskeruhátíð á Garðaholti í lok maí.

Fyrirhugað er að halda menningaruppskeruhátíð á Garðaholti miðvikudaginn 31. maí nk. Farið var yfir umgjörð dagskrárinnar og hvernig hátíðin hefur farið fram undanfarin ár. Á hátíðinni hefur verið tilkynnt um val á bæjarlistamanni Garðabæjar, tilkynnt um úthlutun úr Hvatningarsjóði ungra listamanna auk þess sem sérstök heiðursviðurkenning fyrir framlag til menningar og lista hefur verið veitt.

Undirbúningur menningaruppskeruhátíðar er í höndum upplýsinga- og menningarfulltrúa.

Málsnúmer 1703008

08

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2017

Farið yfir tölfræði síðustu ára í tengslum við val á bæjarlistamanni Garðabæjar.

Farið yfir tölfræði síðustu ára í tengslum við val á bæjarlistamanni Garðabæjar.

Auglýst var í Garðapóstinum og á vef Garðabæjar eftir ábendingum, auk þess sem samtök listamanna fengu senda auglýsinguna þar sem óskað er eftir tillögum/ábendingum um bæjarlistamann Garðabæjar 2017. Ábendingar verða teknar fyrir á næsta fundi nefndarinnar.