Viðburðir Grósku á árinu 2017
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
22. fundur
Farið yfir viðburði myndlistarfélagsins Grósku og næstunni og sagt frá fundi með formanni og stjórnarmanni úr Grósku.
Formaður nefndarinnar og upplýsinga- og menningarfulltrúi áttu fund þann 3. apríl sl. með formanni og stjórnarmanni úr myndlistarfélaginu Grósku þar sem farið var yfir helstu viðburði félagsins á árinu. Framundan er árleg sumarsýning Grósku með opnun síðasta vetrardag í Gróskusalnum á Garðatorgi. Félagið er þegar farið að huga að undirbúningi Jónsmessugleðinnar sem verður haldin fimmtudaginn 22. júní meðfram strandlengjunni í Sjálandinu.
Gróska stefnir einnig að vetrarsýningu um leið og Tónlistarveisla í skammdeginu verður haldin. Samþykkt var að festa dagsetninguna 9. nóvember nk. fyrir tónlistarveisluna í ár.